Fréttablaðið - 25.09.2003, Side 33
Þegar gítarleikarinn WesBorland hætti í Limp Bizkit fór
Fred Durst í heljarinnar leit um
Bandaríkin í von um að finna gítar-
leikara sem gæti fyllt upp í tóma-
rúmið. Þegar það skilaði engum ár-
angri hvatti hann aðdáendur sveit-
arinnar til þess að senda Borland
tölvupóst og biðja hann um að koma
aftur. Þegar það skilaði engum ár-
angri fór Durst í fýlu og hélt því
fram í viðtölum að hann hefði samið
alla gítara sem Borland spilaði.
Einhvern veginn trúi ég því ekki.
Það ætti því ekki að koma nein-
um á óvart að greyið hann Durst
veit ekkert í hvorn fótinn hann á að
stíga á nýju plötunni. Það vantar
brodd í rokklögin og popptilraun-
irnar mistakast. Hiphoplagið með
Snoop Dogg er bæði honum og
sveitinni til skammar.
Durst er snjall útsetjari og engin
ástæða að halda að hann geti ekki
gert ágætis plötu einn, þó það takist
ekki í þetta skiptið. Því miður.
Kannski er Britney um að
kenna? Mömmustelpan kreisti víst
blóð úr hjarta Durst og er hann bit-
ur og reiður maður í ástarsorg á
plötunni. Slíkt hentar sumum, en
ekki honum. Hann og tónlist hans
virka best í uppsveiflunni, í lögum á
borð við „Rollin“ eða „Nookie“ þar
sem Durst hefur verið í hlutverki
spillta og ríka partídrengsins.
Og er ég sá eini sem finnst nýja
smáskífulagið „Eat You Alive“
minna heilmikið á „Heima er best“
með Botnleðju?
Án efa versta plata sveitarinnar
frá upphafi.
Birgir Örn Steinarsson
LIMP BIZKIT: Results May Vary
Durst í fýlu
33FIMMTUDAGUR 25. september 2003
Næturvörður á stærsta forn-safni Ástrala var á dögunum
handtekinn fyrir að stela rúmlega
2.000 munum af safninu á fimm
ára tímabili frá 1997. Þar á meðal
var uppstoppað ljón. Maðurinn
hafði komið því og öllum munum
fyrir á heimili sínu, sem var orðið
skreytt af ómetanlegum munum.
Þótt ótrúlegt megi virðast
gerði maðurinn lítið sem ekkert
til þess að reyna að fela aðgerðir
sínar og notaði m.a. lyftara safns-
ins í nokkur skipti til þess að fjar-
lægja munina af stöðum sínum í
safninu. Á meðal muna sem vörð-
urinn tók voru hauskúpur, heilar
beinagrindur og skinn.
Ljónið uppstoppaða, sem mað-
urinn stal, var sett á safnið árið
1911.
Talsmaður safnsins segir það
augljóst að maðurinn hafi verið
að reyna að setja upp sitt eigið
safn á heimili sínu. Hvort hann
hafði í huga að hagnast á því eður
ei er ekki vitað.
Maðurinn var auðvitað rekinn
og kærður, bæði fyrir stuld og
ósiðlegt athæfi. Þetta mun vera í
fyrsta skiptið í 124 ára sögu
safnsins sem næturvörður er
ákærður fyrir að hnupla safn-
munum. ■
Næturvörður
stelur ljóni
Skrýtnafréttin Frumsýningarum helgina
Dómar í
erlendum miðlum
Jeepers Creepers 2
Internet Movie Database - 4.9 /10
Rottentomatoes.com - 25% = Rotin
Entertainment Weekly - C-
Matchstick Men
Internet Movie Database - 7.4 /10
Rottentomatoes.com - 81% = Fersk
Entertainment Weekly - B-
Los Angeles Times - 2 stjörnur (af fimm)
Gildir til 28. september eða á meðan birgðir endast.
Úlpur á ótrúlegu verði
1.999kr
verð áður 2.999-
3.999kr
verð áður 4.999-
2.499kr
verð áður 3.499-
2.499kr
verð áður 3.999-
Ökklaskór svartir st. 29-39 Kuldaskór rauðir, bláir, bleikir st. 22-34 Gönguskór dökkgráir, ljósgráir st. 28-41 Kuldaskór loðfóðraðir svartir st. 36-41
2.999kr 2.999kr 2.999kr 3.999kr
Ekta leður
Umfjölluntónlist