Fréttablaðið - 23.01.2004, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 23.01.2004, Blaðsíða 8
8 23. janúar 2004 FÖSTUDAGUR ■ Sjávarútvegur ■ Landbúnaður Best klædda konan „Ég á náttúrlega nálægt 50 síð- kjólum og dressum sem ég kalla skítagalla, það eru sko vinnu- fötin mín.“ Sigrún Hjálmtýsdóttir, Fréttablaðið 22. janúar Litli ljóti andarunginn „Ef mönnum væri hlátur í hug væri hægt að hlæja með öllum kjaftinum að gaggi Lómatjarn- arálftarinnar, þegar hún upplýs- ir að hún hafi orð kaupendanna á Rifi fyrir því að fyrir öllu verði vel séð á Akureyri.“ Sverrir Hermannsson um söluna á ÚA, Morgunblaðið 22. janúar. Vandinn leystur „Kerfið sem slíkt er orðið innan- mein í þjóðfélaginu, það er að sligast undan heilbrigðu fólki á meðan þeir sjúku komast ekki að.“ Lýður Árnason læknir um vanda heilbrigðiskerfisins, DV 22. janúar. Orðrétt Deildarforseti lagadeildar um ákvörðun dómstólaráðs: Finnum einhvern flöt á þessu MENNTUN „Við höfum átt góða sam- vinnu við dómstólana og ég reikna með að svo verði áfram. Við finn- um einhvern flöt á þessu,“ sagði Eiríkur Tómasson, deildarforseti lagadeildar Háskóla Íslands, um þá ákvörðun dómstólaráðs að hér- aðsdómstólar taki ekki laganema í námsvist á þessu ári. Eiríkur sagði að sér hefði ekki verið kunnugt um þessa ákvörðun fyrr en hann hefði lesið um hana í Fréttablaðinu í gær. Þar var jafn- framt greint frá því, að ákvörðun- in væri tekin vegna fjárhagsstöðu dómstólanna. Eiríkur sagði að nemendur hefðu víða leitað fanga með náms- vist, til dæmis hjá lögmanna- stofum, sýslumannsembættum og ýmsum opinberum stofnunum og fyrirtækjum. „Við höfum ekki orðið vör við annað en að þeim hafi gengið vel að fá slíka vinnu,“ sagði Eiríkur. „Ég held að það séu að minnsta kosti ekki vandræði enn sem kom- ið er. En ef nemendum fjölgar þá kunna að skapast vandræði. Við munum bregðast við þessu til- tekna máli fyrr en við fáum form- lega tilkynningu um þetta.“ ■ Löglegt en siðlaust Fyrirtæki á Akureyri hafa boðið starfsfólki í veikindaleyfi að skrifa undir starfslokasamninga án þess að viðkomandi hafi nýtt áunninn veikindarétt. Oftar en ekki eiga eldri konur í hlut sem komnar eru fast að starfslokum. KJARAMÁL Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri vill að gefnu tilefni vara félagsmenn sína við að skrifa undir ráðningar- samninga og/eða starfslokasamn- inga án samráðs við félagið. „Það hafa komið upp nokkur tilfelli á síðustu mánuðum þar sem starfsfólk hefur skrifað undir samninga við atvinnurekendur án þess að þekkja réttindi sín. Í haust hafa komið upp þrjú tilfelli þar sem starfsfólki í veikindaleyfi hefur verið boðið að gera starfs- lokasamninga, án þess að nýta áunninn veikindarétt sinn. Við getum lítið gert þegar búið er að skrifa undir. Þetta er löglegt en siðlaust,“ segir Úlfhildur Rögn- valdsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins. Hún segir að í hlut eigi fjöl- mennir vinnustaðir á Akureyri, fleiri en einn. Úlfhildur segir að í öllum til- fellum sé um að ræða einstaklinga sem komnir séu nálægt starfslok- um vegna aldurs. En vegna krank- leika, treysti þeir sér ekki lengur til að stunda vinnu sína. „Þetta eru eldri konur sem um ræðir og þeim hefur verið boðið að skrifa undir formleg starfslok. Vinnuveitendurnir sem í hlut eiga hafa ekki haft fyrir því að kynna viðkomandi rétt sinn, sem getur verið allt upp í sex mánuðir á full- um launum. Við megum ekki gleyma því að kjarasamningar eru gagnkvæmir og báðum aðil- um ber að túlka hann á sama hátt. Þeir sem í veikindatilfellum, skrifa undir starfslokasamninga, án þess að nýta áunninn veikinda- rétt sinn, skerða þannig rétt sinn til sjúkradagpeninga hjá stéttar- félagi. Það er full ástæða til að vara fólk við og hvetja það til að leita upplýsinga hjá sínu stéttar- félagi áður en slíkir samningar eru gerðir,“ segir Úlfhildur Rögn- valdsdóttir. the@frettabladid.is PETER SCHOOMAKER Schoomaker segir að hernaðarátökin í Írak og Afganistan hafi skilað hernum mikilvægri reynslu. Átökin í Írak: Mikilvæg reynsla BANDARÍKIN, AP Peter Schoomaker, hershöfðingi og yfirmaður banda- ríska hersins, segir að hernaðar- átökin í Írak og Afganistan hafi skilað hernum mikilvægri reynslu. Þetta kom fram í viðtali við AP-fréttastofuna og sagði Schoomaker, sem tók við yfir- stjórn hersins í ágúst, að þátttak- an í átökunum hefði gefið gott tækifæri til þess að bæta stríðs- hæfni hermannanna. Hann neitaði því þó að stríðsæsingar hefðu verið hafðar í frammi en sagði að her þyrfti ávallt að vera tilbúinn til átaka og að hermenn þyrftu ekki síður að venjast þeirri spennu sem fylgi stríðsátökum. ■ SLÁTRUN Í TAÍLANDI Grunur leikur á að fólk hafi smitast af fuglaflensu í Taílandi. Fuglaflensan í Asíu: Japanar stöðva inn- flutning JAPAN, AP Japönsk stjórnvöld hafa stöðvað innflutning á kjúklingum frá Taílandi eftir að grunur vakn- aði um þrjú fuglaflensutilfelli í mönnum í landinu, en sýni úr fólk- inu eru nú til rannsóknar. Grunur leikur á að fuglaflensa hafi þegar komið upp í kjúkling- um í Taílandi en þarlendir hafa ítrekað neitað því á síðustu dögum þrátt fyrir fjöldaslátrun. Talsmaður japanska heilbrigð- isráðuneytisins sagði í gær að ákveðið hefði verið að stöðva inn- flutninginn meðan beðið væri nið- urstaðna rannsókna. Að minnsta kosti fimm dauðs- föll eru rakin til fuglaflensu í Víetnam. ■ VEIÐA VEL AF LOÐNU Góður gangur er í loðnuveiði hjá skipum Eskju að því er fram kemur á vef félagsins. Hólmaborg fyllti sig á 30 klukkutímum og sneri aftur í höfn með 2.300 tonna afla. Jón Kjartansson hefur einnig fiskað vel og var væntanlegur til Eski- fjarðar í gærkvöldi með full- fermi. SÍLDARKVÓTINN LANGT KOMINN Lítið er orðið eftir af síldarkvót- anum. 122.000 tonn hafa borist á land það sem af er fiskveiðiárinu en heildarkvótinn er tæplega 131.000 tonn. Mest hefur borist á land hjá Skinney-Þinganesi, tæp 20.000 tonn. FINNUR INGÓLFSSON Segir erfitt fyrir VÍS að sitja, með hreinan skjöld, undir áralangri rannsókn. Rannsókn á tryggingafélögum: Óvissan erfiðust RANNSÓKN „Ég fagna því ef menn sjá fyrir endann á þessu. Þetta hefur tekið óskaplega langan tíma,“ segir Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS, um rannsókn Sam- keppnisstofnunar á tryggingafé- lögunum. Stefnt er að því að rann- sókninni ljúki í mars en það ber þó að hafa í huga að rannsókninni hefur oft seinkað frá því sem ætl- að var. Þannig sagðist Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra á Alþingi í byrjun nóvember á síð- asta ári hafa vissu fyrir því að rannsókninni lyki fyrir áramót. „Við höfum hitt þá, það voru ekki samningafundir heldur ein- vörðungu til að fara yfir stöðu málsins,“ segir Finnur um sam- skipti VÍS við Samkeppnisstofnun vegna málsins. „Það sem er erfið- ast fyrir félögin að búa við er óvissan, og það sem ýmsir hafa gaman af að láta að liggja að ein- hverju og stundum jafnvel full- yrða að hlutir séu ekki með eðli- legum hætti. Fyrir þá sem eru með hreinan skjöld, eins og VÍS en ég get ekki talað fyrir hin fé- lögin, er erfitt að sitja undir slíku.“ ■ ATVINNUSKÖPUN Í SVEITUM Stefnt er að því að efla atvinnu- sköpun á bændabýlum með tveggja ára átaksverkefni Bænda- samtakanna og Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Að því er fram kemur á vef Bændasamtakanna er meginmarkmiðið að vinna með bændum í leit að hvers konar at- vinnutækifærum og möguleikum til aukinnar tekjuöflunar til sveita. SKIPAFLUTNINGAR Trans Atlantic Lines, systurfélag Atlantsskipa, hefur gert nýjan fimm ára samn- ing við flutningadeild Bandaríkja- hers. Samningurinn er metinn á 15 milljónir dollara eða um 1.050 milljónir króna. „Samningurinn nær yfir er- lendan hlut útboðsins, sem er um 35% af heildarflutningum í magni en um 60% af útgjöldum hersins,“ segir í tilkynningu frá Atlants- skipum. Í henni kemur einnig fram að Eimskip hafi boðið í þenn- an hluta útboðsins í samstarfi við fyrirtæki í Bandaríkjunum. Atlantsskip munu ekki gera neinar breytingar á skipastól sín- um vegna samningsins. Flutn- ingaskipið M/S Geysir verður not- að við flutningana. Fyrr í mánuðinum samdi Eim- skip við herinn um íslenska flutn- ingshlutann og er sá samningur metinn á um 10 milljónir dollara eða um 700 milljónir króna. Í til- kynningu Atlantsskipa segir að það hafi óveruleg áhrif á starf- semi og þjónustu Atlantsskipa að annar hluti flutninganna sé ekki lengur á vegum fyrirtækisins. ■ EIRÍKUR TÓMASSON Það kunna að skapast vandræði ef nemendum fjölgar. Skurðaðgerð: 80 kílóa æxli fjarlægt BÚKAREST, AP Bandarískur læknir fjarlægði í fyrradag 80 kíló- gramma góðkynja æxli úr rúm- enskri konu á sjúkrahúsi í Búkarest. Lucia Bunghez, sem er 46 ára, er með sjaldgæfan litningagalla sem veldur því að æxli myndast í lík- ama hennar. Hún hefur verið rúmföst í þrjú ár vegna æxlis sem þekur allt bakið og nær niður á mið læri. Bunghez vegur 120 kíló en án æxlisins væri hún aðeins um 40 kíló að þyngd. Læknirinn McKay McKinnon bauð fram þjónustu sína án endur- gjalds. ■ ATLANTSSKIP Engar breytingar á skipastól Atlantsskipa vegna samningsins. Atlantsskip semja um flutninga fyrir varnarliðið: Milljarðssamningur við Bandaríkjaher ■ Það er full ástæða til að vara fólk við og hvetja það til að leita upplýs- inga hjá sínu stéttarfélagi ÚLFHILDUR RÖGNVALDSDÓTTIR Framkvæmdastjóri Félags verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri varar félagsmenn við að undirrita starfslokasamninga við vinnuveitendur nema að höfðu samráði við stéttarfélag. Dæmi eru um að fólk hafi afsalað sér nokkurra mánaða veikindarétti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.