Fréttablaðið - 23.01.2004, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 23.01.2004, Blaðsíða 49
41FÖSTUDAGUR 23. janúar 2003 SÍÐUSTU DAGAR ÚTSÖLUNNAR A Ð E I N S 4 V E R Ð 690 990 1490 1990 Kringlunni - Smáralind Guðmundur Guðmundsson þjálfari nær raddlaus eftir tapið gegn Slóvenum: Ekki nógu agaðir og þolinmóðir HANDBOLTI Guðmundur Guð- mundsson bar höfuðið hátt í leiks- lok þótt hann hefði augljóslega verið mjög svekktur ásamt því sem hann var nær raddlaus eftir lætin. „Þetta var rosalegur leikur og ég var sáttur við hann framan af og við vorum góðir lengstum. Það var erfitt að missa þrjá af velli og þar snerist leikurinn. Það sem gerði hlutina erfiðari er að við fórum með of mörg dauðafæri og líka tvö víti. Í heildina var liðið ekki að leika nógu vel til að sigra. Aðstæðurnar voru bara þannig að það hefði þurft algjöran topp- leik til þess að sigra. Það var samt margt jákvætt í leiknum og mikið eftir af mótinu. Við vissum að þetta yrði erfitt og sóknin var ekki nægilega beitt en í heildina var hún í lagi en betur má ef duga skal. Þetta hafðist ekki að þessu sinni og ástæðan er að nokkrir í liðinu voru ekki að spila nógu vel.“ Guðjón Valur Sigurðsson var dapur í bragði í leikslok enda úr- slitin ekki á þá leið sem hann hafði kosið. „Það var erfitt er við misstum þrjá menn af velli og ofan á það komu 5000 brjálaðir áhorfendur en þrátt fyrir það fannst mér við spila vel fram að þeim kafla. Svo fórum við líka illa með góð færi og vorum ekki nógu agaðir í sókninni. Að lenda 5-6 mörkum undir með 10 mínútur eftir er of mikið. Aðstæður voru annars í lagi því við þekkjum það allir að spila í svona aðstæðum. Það verður lítið mál að rífa sig upp. Við svekkjum okkur aðeins í kvöld en verðum klárir á morgun. Það eru fjögur stig í boði og þau viljum við,“ sagði Guðjón Valur en hann gerði 6 mörk í leiknum. Ísland spilar við Ungverja í dag og hefst leikurinn klukkan 17:00 og er hann í beinni útsendin- gu í Sjónvarpinu, RÚV, eins og allir leikir Íslands á mótinu. ■ Sex marka tap fyrir Slóveníu Íslenska landsliðið byrjaði illa í fyrsta leik á EM í Slóveníu. HANDBOLTI Íslenska landsliðið í handbolta tapaði fyrsta leiknum sínum á Evrópumótinu í Slóveníu með sex marka mun, 28-34, í Celje í gær eftir að jafnt hafði verið í hálfleik, 13-13. Íslenska liðið hafði í fullu tré við heimamenn framan af leik en úrslitin nánast réðust á fimm mín- útna kafla um miðjan seinni hálf- leik þegar slóvenska liðið skoraði sjö mörk gegn engu og breytti stöðunni úr 22-20 fyrir Ísland í 22- 27 fyrir Slóvena. Íslenska liðið var að stórum hluta þessra fimm mínútna skipað aðeins þremur mönnum sökum þriggja brott- rekstra og slóvenska liðið brunaði framúr, ákaft stutt af troðfullri höll. Slóvenarnir spiluðu leikinn mjög gróft en íslensku leikmenn- irnir fuku hinsvegar út af hver á fætur öðrum í seinni hálfleik fyr- ir litlar sem engar sakir. Guð- mundur Hrafnkelsson var besti maður íslenska liðsins og varði 18 skot þar af 11 þeirra í fyrri hálf- leik en miklu munaði að Slóvenar lokuðu á Ólaf Stefánsson sem skoraði ekki mark utan af velli síðustu 27 mínúturnar í leiknum. Það voru helst Guðjón Valur Sigurðsson (6 mörk) og Snorri Steinn Guðjónsson (5 mörk) sem tóku af skarið en ekkert gekk hjá þeim Degi Sigurðssyni og Patreki Jóhannessyni sem saman misnot- uðu öll sjö skotin sín (Dagur 5) auk þess Paterkur tapaði 4 bolt- um. Tone Tiselj, þjálfari Slóveníu, var að vonum ánægður í leikslok. „Þetta var mjög erfiður leik- ur. Ísland er með gott lið og ekki auðunnið. Þeir berjast allan timann og gefast aldrei upp og því er ég virkilega ánægður með sigurinn. Við verðum samt að halda áfram og vonandi verður sama stemning í næstu leikjum því það eru einnig erfiðir leikir.“ „Við töpuðum „kúlinu“ og þess vegna töpuðum við. Ekki vegna dómaranna,“ sagði Sigfús Sig- urðsson sem tók tapinu frekar létt og var augljóslega ekki á leið í neitt þunglyndi. Þetta voru klaufaleg brot hjá okkur og því er ekki hægt að neita. Þeir komust í gírinn og fengu húsið með sér og þar með var leikurinn farinn. Það er ógeðslega erfitt að spila hérna en líka ógeðslega gaman. Öll umgjörð frábær og stórkostlegir áhorfendur. Þeir klöppuðu líka fyrir okkur er við gerðum eitthvað gott. Þetta var mjög gaman þótt það hafi verið svekkjandi að tapa en við getum sjálfum okkur um kennt. ■ SERBAR UNNU Serbar og Svart- fellingar unnu Þjóðverja 28-26 á Evrópumótinu í handbolta í gær. Marko Krivokapic skoraði sex mörk fyrir Serba/Svartfellinga en Tosten Jansen var markahæstur Þjóðverja með átta mörk. DANIR OG SVÍAR UNNU Danir unnu Portúgala 36-32 á Evrópu- mótinu í gær og Svíar unnu Úkraínumenn 31-25. Michael Knudsen skoraði níu mörk fyrir Dani og Johann Pettersson sko- raði níu mörk fyrir Svía. ■ Evrópumótið SNORRI STEINN MEÐ FIMM MÖRK Snorri Steinn Guðjónsson brýst hér í gegn og skorar eitt af fimm mörkum sínum gegn Slóvenum í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.