Fréttablaðið - 23.01.2004, Blaðsíða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR
Bændur
fljúgast á
EIN SKEMMTILEGASTA saman-
tektin á efni Íslendingasagnanna
kemur fram i þeirri víðfrægu full-
yrðingu að þegar öllu sé á botninn
hvolft fjalli allar sögurnar um eitt
tiltekið þema. Þetta þema megi taka
saman i þrjú orð: Bændur fljúgast á.
Auðvitað kemur fram i þessum skiln-
ingi ákveðið tómlæti gagnvart sögun-
um, eins og sögurnar séu ekki líka
um eitthvað annað og meira – ástina,
lífið, dauðan, svik, hetjudáðir og ill
örlög – en það er sama. Það er ein-
hver brilljans hér á ferð. Í þessum
skilningi felst ákveðin stórkarlaleg
sýn á heiminn.
ÉG HEF STUNDUM staðið sjálf-
an mig að því að horfa á heiminn
allan með þessum gleraugum.
Þegar fregnir berast til dæmis af
stríðsátökum koma þessi orð upp í
hugann. Bændur fljúgast á. Og þeg-
ar menn eru að berja sér á brjóst í
pólitík, þá hugsa ég þetta sama.
Bændur fljúgast á. Þessi hugsunar-
háttur minn hefur gengið svo langt
að stundum sé ég allan heiminn ein-
hvern veginn uppfullan af stór-
karlalegum mönnum í gammósíum,
með skegg, i köflóttum skyrtum og
vinnubuxum að fljúgast á.
BÓNDADAGUR er í dag. Ég verð
að segja, í ljósi þess sem ég hef
þegar sagt, að bóndadagur er lík-
lega einn skemmtilegasti svona
dagurinn – sem er tileinkaður ein-
hverju – á árinu. Það er endalaust
af svona dögum. Flestir þeirra eru
tileinkaðir konum eða hafa á sér
mun kvenlegri blæ. Það er konu-
dagur, mæðradagur, V-dagur, bar-
áttudagur kvenna og fleira. Konur
hafa fullt af dögum. En það er að-
eins einn dagur sem er hreint og
klárt fyrir karlmenn. Og það er
bóndadagur.
OG ÞAR KEMUR þessi skilning-
ur a Íslendingasögunum fram aftur.
Við karlmenn erum í raun allir
bændur. Við erum bændur inn við
beinið. Dagurinn sem er tileinkaður
okkur er tileinkaður okkur sem
bændum. Undan þessu verður ekki
komist. Karlmennskan er það að
vera góður bóndi. Örlög okkar eru
að lyfta grjóti í hríðarbyl. Grafa
skurði. Moka fjós. Glíma. Evrópu-
meistaramótið í handbolta er byrj-
að. Tökum bara það sem dæmi.
Hvað er það annað en einmitt þetta:
Bændur að fljúgast á? Koma svo!
Taka á því í vörninni hérna! Þetta
er rugl dómari!
KNICKERBOX
3 fyrir 1
föstudag til sunnudags