Fréttablaðið - 19.02.2004, Page 32
nám o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur námi
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: nam@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is.
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, s. 588 5711 og 694 6103
Y O G A Y O G A Y O G A
Líkamsæfingar, öndunaræfingar, slökun og hugleiðsla.
Morgun-, hádegis-, síðdegis- og kvöldtímar.
Sértímar fyrir byrjendur og barnshafandi konur.
www.yogaheilsa og NÝTT! Astanga joga
2 vikur í júní - 3 vikur í ágúst. Íslenskir hópstjórar.
Skráning daglega í síma 8917576 og erlaara@simnet.is
Enskunám í Englandi
fyrir 12-16 ára
Upplýsingar og myndir á www.simnet.is/erlaara
nskunám í Englandi
fyrir 12-16 ára Enskuskóli Erlu Ara
2 vikur í júní og 3 vikur í ágúst.
Íslenskir hópstjórar. Skráning daglega í síma 8917576
og erlaara@simnet.is
Nýtt Náttúrufræðahús:
Lesa frammi á gangi
Líffræði- og jarðfræðinemar íHáskóla Íslands eru óánægðir
með lesaðstöðuna í nýju Náttúru-
fræðahúsi, en bókasafnið hefur enn
ekki verið opnað og eru nemend-
urnir einungis með lesaðstöðu
frammi á gangi. „Þetta er mjög
slæmt,“ segir Bryndís Marteins-
dóttir, formaður Haxa, hagsmuna-
félags líffræðinema. „Ekki síst þeg-
ar prófin fara að nálgast. Fólk situr
frammi í þessu stóra rými þar sem
allt heyrist og ekkert næði er til að
lesa. Við höfum tekið málið upp á
skorarfundum og rætt hefur verið
við arkitektinn en við vitum enn
mjög lítið um gang mála.“
Bryndís segir að á bókasafninu
sé jafnframt aðeins gert ráð fyrir
um tuttugu borðum
fyrir almenna
nemendur. „Við
vorum með svipað-
an fjölda borða á
gamla staðnum en
þar voru bara líf-
fræðinemar og nú
hafa jarðfræði-
nemar bæst við. Að
auki eru glerveggir
á bókasafninu og
mastersnemar sem
eru búnir að fá að-
stöðu á efri hæð
safnsins hafa þegar
minnst á að þegar mikill umgangur
er á kaffistofunni heyrist það inn á
bókasafnið.“
Framkvæmdir standa enn yfir í
byggingunni en Ásgeir Brynjar
Torfason, skrifstofustjóri rekstr-
ar- og framkvæmdasviðs háskól-
ans, segir að bókasafnið og les-
aðstaða nemenda verði tilbúin á
næstu vikum, löngu áður en próf
hefjast. Aðstaða er fyrir nemend-
ur á svölunum í húsinu, en hún er
ekki lokuð af. Þar eiga eftir að
koma vinnuborð fyrir nemendur í
viðbót við þau hringborð og hóp-
vinnuborð sem eru þar fyrir. Ás-
geir segir verkið ekki fullklárað og
ástandið tímabundið. Fólk sé að
flytja inn í þetta hús úr sjö mis-
munandi húsum og hafi haft ólíka
aðstöðu fyrir. Þarna sé komin betri
samnýting á aðstöðunni. ■
Sigríður Ólafsdóttir héraðs-dómari hefur farið nokkrum
sinnum á golfnámskeið erlendis,
bæði til Spánar og Danmerkur.
Hún vill þó fara varlega í yfirlýs-
ingar um að hún sé mikil golf-
manneskja. „Ég er nú ekki búin
að ná mér í forgjöf og reyni að
trúa því að þegar maður byrjar
svona fullorðinn gangi þetta svo-
lítið hægar. En mér finnst alveg
óheyrilega gaman að þessu.“
Sigríður segist hafa byrjað að
spila golf af einhverri alvöru fyr-
ir þremur árum, en fyrir fjórum
árum fór hún á námskeið hér
heima. „Vinkona mín hafði farið
á námskeið og taldi sig fullfæra
til að kenna mér golf. Hún hafði
ekki farið á völl en dró mig með
sér á svona æfingapalla og reyn-
di að sýna mér hvernig átti að slá
kúlu. Kúlan fór nú aldrei í loftið
hjá mér heldur skreið eftir jörð-
inni þann dag. En ég er svo
þrjósk að ég hugsaði með mér
„ég verð að lyfta henni.“ Við fór-
um svo saman á námskeið ári
seinna, fórum svolítið á palla en
ekki strax á völl.
Þegar við fréttum af þessum
námskeiðum ákváðum við að skel-
la okkur í vikuferð til
Matalascanas á Spáni. Það var
bæði lærdómsríkt og skemmtilegt.
Sama sumar var önnur vinkona
mín að fara með hópi kvenna
á námskeið í Danmörku.
Ég fór síðan aftur í
fyrra í hálfsmánað-
arferð til Spánar og
hún var eiginlega
ennþá skemmtilegri.
Þá dreifðist nám-
skeiðið og þá hafði
ég meiri tíma inn á
milli til að vinna úr
því sem ég lærði.
Kennslan var al-
veg frábær og
svo kynntist ég
skemmtilegu
fólki.“ ■
BRYNDÍS
MARTEINS-
DÓTTIR
Formaður hags-
munafélags líf-
fræðinema.
SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR
Hefur skellt sér á nokkur
golfnámskeið í Danmörku
og á Spáni.
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON
„Ég prófaði að kenna fyrir tveimur árum, líkaði það vel og líst vel á
námið. Svo verður maður að mennta sig. Ég er á fyrsta ári á grunn-
skólabraut og líkar vel, hér vilja allir allt fyrir mann gera.“
Hvers vegna Kennó?KENNARAHÁSKÓLI ÍSLANDS Um 1.800 nem-
endur stunda nám í Kennaraháskólanum. Sex
brautir í grunnnámi standa til boða; grunn-
skólabraut, íþróttabraut, kennsluréttinda-
braut, leikskólabraut, tómstundabraut og
þroskaþjálfabraut. Einnig er hægt að leggja
stund á framhaldsnám við Kennaraháskólann.
Námið er hægt bæði að stunda sem staðnám
og fjarnám.
Golfnámskeið á Spáni:
Toppkennsla og
skemmtilegt fólk