Fréttablaðið - 19.02.2004, Side 36

Fréttablaðið - 19.02.2004, Side 36
ferðir o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur ferðalögum Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: ferðir@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Eftirminnilegt ferðalag: Höfuðkúpubrotinn á grísku sjúkrahúsi Ein eftirminnilegasta ferð semég hef farið í var til Þessa- lóníku í Grikklandi. Ég fór með Djöflaeyjuna á kvikmyndahátíð og á fyrsta degi datt ég á hausinn og höfuðkúpubrotnaði,“ segir Friðrik Þór Friðriksson kvik- myndaframleiðandi. „Það eru áhöld um það hvað gerðist ná- kvæmlega en sú mynd sem situr eftir í mínum huga er græn papr- ika. Þetta var í partíi þar sem all- ir gestir hátíðarinnar, um þúsund manns, voru að borða mat af pappadiskum. Á gólfinu var svart granít og matur af diskunum kominn á gólfið. Ég veit um minnst fjóra aðra sem duttu á þessu gólfi. En það brotnaði eng- inn nema ég.“ Friðrik Þór var lagður inn á grískan spítala og segist ekki óska nokkrum lifandi manni hið sama. „Við vorum fjórir karlar í svona tíu fermetra herbergi. Þar var kjötseyði í hvert mál. Svo settu þeir mig á stera, þessir doktorar, þannig að ég svaf ekki neitt í þessar þrjár vikur sem ég var þarna. Ég kann arkitektúr þessarar spítala- byggingar utan að því ég strunsaði þarna um alla ganga á nóttunni. Það var eiginlega ferða- lag í sjálfu sér og mjög fróðlegt.“ Friðrik Þór segir þó að þetta hafi verið s k e m m t i l e g ferð, svona eft- ir á að hyggja. „Þetta er nátt- úrlega löng spítalasaga en þeir sem voru með mér þarna voru mjög s k e m m t i l e g i r menn. Þetta voru sjó- arar, eiturlyfjabarón- ar og dílerar sem höfðu verið skotnir í tætlur og það kom alls konar lið inn á stofuna. Ég fékk líka líf- vörð, því algengustu ránin eru á sjúkrahúsunum. Hann sat við rúmstokkinn þessi maður sem hafði boðið sig fram því hann hélt að hann gæti lært ensku af mér. En ég var svo viðskotaillur að ég nennti aldrei að tala við hann og hann lærði ekkert nema blóts- yrði.“ Friðrik Þór neitar því að hafa fengið bót meina sinna á þessu sjúkrahúsi en hann var loks flutt- ur á íslenskt sjúkrahús eftir þrjár vikur. „Hausinn á mér var nú aldrei mín sterkasta hlið og alls ekki eftir þetta.“ audur@frettabladid.is ■ Út í heim UTANLANDSFERÐIR í boði á næstunni: Skíðaferð til Crans-Montana í Sviss 02.-11.04. Flogið um Kaupmannahöfn til Zürich og heim frá Genf. VERÐ: 124.500,- Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, akstur milli flugvalla og Crans-Montana, gisting í tveggjamanna herbergi á 4stjörnu hóteli, morgunverður, kvöldverður og íslensk fararstjórn. Fararstjóri William Þór Dison Budapest-Vínarborg 24.04.-01.05. Flogið til Vínarborgar og gist þar 2 nætur, þaðan er svo ekið til Budapest og gist þar 5 nætur. VERÐ: 92.900,- Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting í tveggjamanna herbergi, morgun- verður, akstur milli flugvallar og gististaða, akstur milli Budapest og Vínarborgar, skoðunarferðir um Vínarborg og Budapest og íslensk fararstjórn. Að auki verða í boði skoðunarferðir meðan dvalið er í Budapest. Fararstjóri Emil Örn Krisjánsson Berlín 19.-26.05. Flogið til Kaupmannahafnar og ekið þaðan til Berlínar. Í Berlín er gist í 6 nætur en á 7. degi er ekið aftur til Kaupmannahafnar og gist þar síðustu nóttina. VERÐ: 89.900,- Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting í tveggjamanna herbergi, morgun- verður, akstur milli Kaupmannahafnar og Berlínar, skoðunarferð um Berlín, skoð- unarferð til Potsdam, skoðunarferð um Kaupmannahöfn og íslensk fararstjórn. Auk þess verður í boði dagsferð til Dresden. Fararstjóri: Emil Örn Kristjánsson Norðurlandaferð 17.-24.06. Flogið til Kaupmannahafnar, ekið um Svíþjóð og Noreg til Bergen. Þaðan er siglt með Norrænu þann 22. júní um Hjaltland og Færeyjar og komið til Seyðisfjarðar 24. júní. Ekið til Reykjavíkur. VERÐ: 83.700,- Innifalið í verði er flug, flugvallarskattar, gisting í tveggjamanna herbergjum (í fjögurra manna klefum í Norrænu) og allur akstur. Einnig er áætluð ferð í september með siglingu til Danmerkur, akstri um Danmörku og Þýskaland og flugi heim frá Frankfurt. Berlín-Dresden-Prag 01.-07.08. Flogið til Berlínar og gist þar 2 nætur, þaðan er svo haldið til Dresden og gist eina nótt og svo áfram til Prag þar sem gist er 3 nætur. VERÐ: 81.900,- Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting í tveggjamanna herbergi, morgun- verður, akstur Berlín-Dresden-Prag, skoðunarferð um Berlín, skoðunarferð um Dresden, skoðunarferð um Prag, skoðunarferð um Terezín með hádegisverði og íslensk fararstjórn. Fararstjóri: Emil Örn Kristjánsson Beint flug til Prag 25.07.-07.08. VERÐ 18.900 Innifalið í verði er flug og flugvallaskattar. Stangveiðiferðir til Grænlands Fjögurra og fimm daga stangveiðiferðir til Suður-Grænlands í júní, júlí og ágúst. VERÐ FRÁ 74.900,- FERÐASKRIFSTOFA GUÐMUNDAR JÓNASSONAR EHF. Borgartúni 34, sími 511 1515 netfang: outgoing@gjtravel.is heimasíða: www.gjtravel.is FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON Hefur upplifað margt eftirminnilegt á ferðalögum en man sérstaklega eftir dvölinni á gríska spítalan- um. SUMARFRÍIÐ? „Ég ætla að leyfa fimmtán ára dóttur minni að ráða því hvert við förum en mér sýnist að það verði annað hvort Benidorm eða Portúgal. Ég fór síðast í sólarlandaferð árið 1992 en þá fór ég með þrjár dætur mínar til Benidorm og líkaði bara vel. Núna langar mig að fara aftur með þá yngstu en það getur þó ekki orð- ið af því fyrr en í lok ágúst.“ Sigrún Sæmundsdóttir, matar- tæknir á Hólum í Hjaltadal. TIL DYFLINNAR UM HELGINA Beint flug verður til Dyflinnar nú um helgina, 20.-22. febrúar, á vegum Úrvals-Útsýnar. Aðeins fáein sæti í boði. Verð á flugsæti 27.340 kr. með sköttum. Flugið tekur ekki nema tvær klukku- stundir, farið er út á föstudags- morgni og komið til baka á sunnudagskvöldi. JAMAÍKA Á MORGUN Á morgun er sérflug á vegum Heimsferða til Jamaíka. Síðustu sætin eru seld tvö á verði eins og kosta þá 39.950 á mann ef bókað er á Net- inu. Að auki er hægt að velja um úrval hótela hjá Heimsferðum. Netverð. SÍÐUSTU SÆTIN TIL KANARÍ Á ÞRIÐJUDAGINN Tveggja vikna ferð til Kanarí á þriðjudaginn 24. febrúar á verði frá kr. 59.995. Hitastigið á Kanarí um miðjan febrúar er um 25 stig. Verðið miðast við tvo fullorðna og tvö börn, tveggja til ellefu ára, og að bókað sé á Netinu. Símbókunar- gjald er kr. 2.000. GOLFFERÐ Á TILBOÐI GB ferðir eru með tilboð á fimm daga golf- ferð 25. mars á kr. 69.900. Inni- falið er flug með Iceland Ex- press, gisting í 4 nætur með morgunverði á Hanbury Manor og fjórir golfhringir á Jack Nick- laus Championship vellinum. Flugvallarskattar kr. 4.260 eru ekki innifaldir í verðinu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.