Fréttablaðið - 07.05.2004, Blaðsíða 1
● lögðu eyjastúlkur í gærkvöld
Úrslitakeppnin í handbolta:
▲
SÍÐA 33
Valsstúlkur jöfnuðu
metin á Hlíðarenda
● tekst á við öll frægustu skrímslin
Van Helsing:
▲
SÍÐA 37
Lífgað upp á
blóðsugubana
● spilaði við eið smára
Haukur Baldvinsson:
▲
SÍÐA 42
Ungur Liverpool-
aðdáandi
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
FÖSTUDAGUR
SAMVINNA Málþing um þróunarsam-
vinnu verður haldið í Odda klukkan 14.
Heiðursgestur málþingsins og frummæl-
andi er Carlos Lopes, svæðisstjóri Þróun-
arstofnunar Sameinuðu þjóðanna í Bras-
ilíu.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
HLÝINDIN KOMIN Ágæt hlýindi strax
í dag og meiri um helgina. Bjart með
köflum í borginni og hægur vindur víðast,
þó ekki á Vestfjörðum. Sjá síðu 6
7. maí 2004 – 124. tölublað – 4. árgangur
VEXTIR HÆKKA Vaxtahækkunarferli
Seðlabankans er hafið. Bankinn hækkar
vexti á þriðjudag 0,2 prósent. Stýrivextir
Seðlabankans hækkuðu síðast síðari hluta
árs 2000. Sjá síðu 2
DÝRT STRÍÐ Bandaríkjastjórn hefur farið
þess á leit við repúblikana í báðum deild-
um Bandaríkjaþings að þeir samþykki
1.835 milljarða króna fjárveitingu til stríðs-
reksturs í Írak. Sjá síðu 4
MILLJARÐUR Í TAP Tap af rekstri
borgarsjóðs á síðasta ári var rúmum einum
milljarði meira en fjárhagsáætlanir gerðu
ráð fyrir. Borgarstjóri segir árangurinn við-
unandi. Sjá síðu 8
RANNSÓKNARVINNA FLUTT Í und-
irbúningi er að flytja allar rannsóknir, sem
unnar eru nú á heilsugæslustöðvum á
Reykjavíkursvæðinu, til Landspítala há-
skólasjúkrahúss. Sjá síðu 10
Sa
m
kv
æ
m
t f
jö
lm
i›l
ak
ön
nu
n
Ga
llu
ps
m
ar
s
'0
4
48%65%
Kvikmyndir 38
Tónlist 28
Leikhús 28
Myndlist 28
Íþróttir 30
Sjónvarp 40
Guðbjörg Glóð Logadóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Fylgifiskar á
Skólavörðustíg
● matur ● tíska ● heimili
Efnahagshorfur:
Blóm í haga
HAGVÖXTUR Samfelldur vöxtur
verður í efnahagslífinu eins langt
og vísustu menn sjá. Þetta má lesa
í nýrri þjóðhagsspá fjármálaráðu-
neytisins. Árlegur hagvöxtur
verður yfir fjögur prósent til árs-
ins 2006 en þá dregur úr honum.
Hagvöxtur verður samkvæmt
spánni um þrjú prósent eins langt
og spáin nær eða til 2010.
Aðhaldssöm ríkisfjármál og
markviss peningastjórnun Seðla-
bankans ráða miklu um fram-
vindu. Takist það vel mun hækk-
andi kaupmáttur, lág verðbólga og
lítið atvinnuleysi einkenna næstu
sex árin.
Sjá nánar síðu 6.
KÖNNUN Nær tveir af hverjum
þremur landsmönnum eru and-
vígir fjölmiðlafrumvarpi ríkis-
stjórnarinnar um eignarhald á
fjölmiðlum og um það bil helm-
ingur telur að það verði til að
minnka fjölbreytni fjölmiðlunar.
Þetta kemur fram í nýrri skoð-
anakönnun Gallups.
65 prósent aðspurðra segjast
andvíg fjölmiðlafrumvarpinu, 24
prósent segjast hlynnt því en 12
prósent segjast bæði og. Tals-
verður munur er á afstöðu fólks
eftir því hvort það styður ríkis-
stjórnina eða ekki. 46 prósent
stuðningsmanna stjórnarinnar
segjast hlynnt frumvarpinu en 40
prósent andvíg. Einungis sjö pró-
sent þeirra sem styðja ekki
stjórnina segjast fylgjandi frum-
varpinu en 84 prósent segjast
andvíg því.
Fjórtán prósent telja að frum-
varpið tryggi fjölbreytni fjölmiðl-
unar og 37 prósent segja það engu
breyta en 49 prósent telja að það
verði til að minnka fjölbreytni. Sé
þetta skoðað með hliðsjón af af-
stöðu til ríkisstjórnarinnar telja
23 prósent stuðningsmanna
stjórnarinnar að frumvarpið
tryggi fjölbreytni en 35 prósent
telja það verða til að minnka
hana. 42 prósent segja lagasetn-
ingu engu breyta. 64 prósent
þeirra sem eru andvígir stjórn-
inni segja frumvarpið verða til að
minnka fjölbreytni í fjölmiðlun
en sex prósent telja það verða til
að tryggja fjölbreytnina. 30 pró-
sent telja það engu breyta.
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
stjórnarformaður Norðurljósa,
segir niðurstöðuna benda til þess
að það sé ekki mikil stemning í
samfélaginu fyrir þessum breyt-
ingum.
„Fólk sér að markmið laganna
stenst ekki,“ segir Skarphéðinn
Berg. „Svona lög munu draga úr
fjölbreytni fjölmiðlanna en ekki
auka hana. Ég held að þetta sé
fullkomlega upplýst afstaða því
málið hefur verið mjög vel kynnt
í fjölmiðlum – frá öllum hliðum.“
Einar Oddur Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
segir niðurstöðuna endurspegla
neikvæða umfjöllun fjölmiðla um
málið.
„Það hafa verið mikil mótmæli
gegn þessu frumvarpi og þau
hafa yfirgnæft annað og það seg-
ir okkur það sem við vitum að
fjölmiðlar geta haft mikil áhrif,“
segir Einar Oddur.
Guðmundur Árni Stefánsson,
þingmaður Samfylkingarinnar,
segir niðurstöðuna í takt við það
sem hann heyri allt í kringum
sig.
„Fólk áttar sig vel á því að það
eru engar málefnalegar ástæður
sem liggja að baki þessu frum-
varpi heldur einhver hefndarhug-
ur sem enginn skilur,“ segir Guð-
mundur Árni. „Ég held að réttlæt-
iskennd fólks sé einfaldlega mis-
boðið.“
Gallup gerði könnunina fyrir
Norðurljós dagana 28. apríl til 4.
maí. Úrtakið var 937 manns og
svarhlutfallið 63 prósent.
brynjolfur@frettabladid.is
trausti@frettabladid.is
M
YN
D
/A
P
Skógareldar í Kaliforníu:
Ná tökum
á eldunum
KALIFORNÍA Slökkviliðsmenn eru
að ná undirtökum í baráttunni
við skógarelda sem hafa geisað í
Kaliforníu síðustu daga og er
búist við því að slökkviliðsmenn
nái fullri stjórn á eldinum síðar
í dag. Eldarnir, sem hafa brunn-
ið á tíu þúsund hektara svæði,
þykja óvenju snemma á ferð-
inni.
Nokkur hundruð manns sem
urðu að flýja heimili sín hafa
fengið að snúa aftur. Víða fá íbú-
ar ekki að tryggja heimili sín
vegna eldhættu og eiga því á
hættu að tapa öllu sínu.
Eldarnir geisuðu af mestum
krafti í Riverside-sýslu þar sem
um þúsund heimili voru í hættu.
Þar hefur maður verið ákærður
fyrir að vera valdur að eldsvoð-
unum. Hann dró járnbút á eftir
bíl sínum með þeim afleiðingum
að eldar kviknuðu hér og þar. ■
GEORGE W. BUSH
Sagði að sér biði við misþyrmingunum.
Misþyrmingar fanga:
Bush þykir
þetta leitt
WASHINGTON, AP „Mér þótti leitt að
íraskir fangar og fjölskyldur
þeirra hefðu verið auðmýkt með
þessum hætti,“ sagði George W.
Bush Bandaríkjaforseti við
Abdullah II Jórdaníukonung á
fundi þeirra í gær. „Ég sagði hon-
um að mér þætti líka leitt að fólk
sem sæi þessar myndir skildi ekki
raunverulegt eðli Bandaríkj-
anna,“ sagði Bush á blaðamanna-
fundi að loknum fundi sínum með
konunginum.
Daginn áður hafði Bush rætt
við tvær arabískumælandi sjón-
varpsstöðvar en þá gekk hann
ekki svo langt að biðjast afsökun-
ar. ■
BARIST VIÐ SKÓGARELDA
Skógareldarnir kviknuðu þremur vikum fyrr í ár en í fyrra. Slökkviliðsmenn hafa barist gegn þeim af krafti og meðal annars kveikt stað-
bundna elda til að búa til varnarsvæði þar sem hinir eiginlegu skógareldar eiga, samkvæmt kenningunni, að stöðvast.
Minnki fjölbreytni
49,4%
Andvíg(ur)
64,5%
Bæði og - i meðallagi
11,5%
Hlynnt(ur)
24,1%
Breyti engu
36,7%
Tryggi fjölbreytni
13,8%
SPURT VAR:
Telur þú að frumvarpið tryggi fjölbreytni í
fjölmiðlun?
SPURT VAR:
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur)
fjölmiðlafrumvarpinu?
Tveir þriðju á móti
fjölmiðlafrumvarpi
Nær þrefalt fleiri eru andvígir fjölmiðlafrumvarpi ríkisstjórnarinnar en
fylgjandi því samkvæmt könnun Gallups. Helmingur telur að það verði
til að draga úr fjölbreytni fjölmiðlunar.