Fréttablaðið - 20.05.2004, Qupperneq 16
16 20. maí 2004 FIMMTUDAGUR
BRÚÐKAUP Í BOSTON
Tvær konur fagna í Boston eftir að hafa
fengið hjónavígslu í kirkju í borginni.
Hjónaband samkynhneigðra hafa verið
leyfð í Massachusetts-ríki. Julia og Hillary
Goodridge, sem sjást á myndinni, stóðu
að málsókn sem leiddi til þess að hjóna-
bönd samkynhneigðra voru leyfð.
Auglýsingar í grunnskólum:
Settar verði
verklagsreglur
SKÓLAMÁL Menntamálaráðuneytið
hefur beint þeim tilmælum til
sveitarfélaga að þau taki upp við-
ræður í hverju sveitarfélagi fyrir
sig með það að markmiði að settar
verði verklagsreglur í samvinnu
við skólastjórnendur um aug-
lýsingar í grunnskólum.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu
segir að því hafi nýlega borist
bréf frá grunnskóla þar sem vak-
in var athygli á aukinni ásókn ým-
issa fyrirtækja í að auglýsa beint
eða óbeint í grunnskólum. Jafn-
framt var ráðuneytið spurt hvort
komið hefði til tals að semja regl-
ur á landsvísu til að takmarka
ásókn einkafyrirtækja í grunn-
skólana.
Ráðuneytið svaraði því til að
ekki hafi komið til tals að mennta-
málaráðuneytið semji slíkar regl-
ur á landsvísu, enda skorti það
heimildir til þess. Ráðuneytið tel-
ur til fyrirmyndar að hvert sveit-
arfélag setji sér verklagsreglur
um auglýsingar í grunnskólum í
samráði við grunnskóla sveitar-
félagsins. Mikilvægt sé að slíkar
reglur séu vel kynntar meðal
nemenda, starfsfólks skóla og
foreldra. Eðlilegt sé að birta slík-
ar verklagsreglur í skólanámskrá
skólans. ■
Aldrei fleiri skemmti-
ferðaskip en í sumar
Fimmtungs aukning er á komum skemmtiferðaskipa til landsins í sumar. Á síðustu tíu árum
hefur komum skipa fjölgað um tæplega 80 prósent. Við komu skipanna verða hafnirnar
afgirtar til að koma í veg fyrir hugsanleg hryðjuverk.
SKEMMTIFERÐASKIP Aldrei hafa fleiri
skemmtiferðaskip tilkynnt komu til
landsins. Í sumar leggjast 69 skip að
höfn í Reykjavík. Það stærsta,
Adonia, er 71 þúsund brúttótonn og
með rúmlega 2000 farþega innan-
borðs.
Ferðaskrifstofan Atlantik sér
um skipulagningu dagsferða
fyrir flest skipin. Ólafía Sveins-
dóttir, deildarstjóri skipadeild-
ar Atlantik, segir fyrirtækið
sinna um 30 til 40
prósentum fleiri
verkefnum í
ár en í
fyrra. „Það koma dagar þar sem
yfir 3000 farþegar koma með
skipunum. 70–80 prósent farþega
fara í dagsferðir við komuna til
landsins. Skipulagið er ansi mik-
ið,“ segir Ólafía. Ferðaskrifstofan
sér einnig um skipakomur á
landsbyggðinni og eru
160 verkefni á tak-
teininum þar í sumar.
Pétur Ólafsson, skrifstofu- og
markaðsstjóri Akureyrarhafnar,
segir 53 skemmtiferðaskip væntan-
leg til Akureyrar í sumar. Reikna
má með að farþegar verði um
30.000 með þess-
um skipum en
árið 2003
komu 23.458
far-
þegar með 45 skipum. Fjölgun gesta
er því tæplega 28 prósent. Í fyrra
voru gestirnir á Akureyri frá 48
þjóðum. Annasamasti dagur sum-
arsins verður þann 27. júní þegar
þrjú skip verða í höfninni og gest-
irnir um 3.300 talsins.
Í Reykjavík voru gestirnir
31.264 í fyrrasumar. Þjóðverjar eru
duglegastir að heimsækja Ísland
með skipunum og eru um 40 prósent
gesta. Bretar og Bandaríkjamenn
næstir með um 20 prósent hvor og
Frakkar í fjórða sæti með fimm
prósent heimsókna.
Hvert fer fólkið?
Flest skipin stoppa daglangt í
höfn. Fyrir norðan kjósa farþegar
gjarnan að kíkja í Mývatnssveitina,
hvalaskoðun á Húsavík eða að fljú-
ga til Grímseyjar. „Bandaríkja-
menn og Bretar eru einnig mjög
hrifnir af jólahúsinu í Eyjafirði og
margir skoða sig um á Akureyri,“
segir Ólafía. Á Suðurlandi er vin-
sælast að skoða Gullfoss og Geysi.
„Þjóðverjar eru mjög duglegir að
fara þessa ferð en Bandaríkjamenn-
irnir vilja frekar fara styttri ferðir.
Þeir fara meira í ferðir um Reykja-
vík og í Bláa lónið. En farþegarnir
eru svolítið að yngjast og þeir vilja
vera virkari í því sem gert er og
fara því í jeppaferðir, flúðasiglingar
eða upp á jökul.“ Mörg skipanna
stoppa bæði í Reykjavík og á Akur-
eyri. „Þá er mjög vinsælt að ferðast
yfir Kjöl á tveimur dögum. Farþeg-
arnir yfirgefa lúxusinn um borð til
að sjá og fræðast.“ Ekki má geyma
því segir Ólafía að öllum skipum
fylgir áhöfn. „Það er orðið meira
um það að til að halda starfsfólkinu
ánægðu sé boðið upp á ferðir í höfn-
unum.“
Ólafía segir að séu mörg skip í
höfn í einu geti verið erfitt að fá
góða leiðsögumenn sem skipti
geysilegu máli og rútur til að flytja
fólkið á áningastaði. Hluti rútu-
flotans sé einnig gamall og því geti
verið erfitt að uppfylla gæðakröfur
farþeganna á slíkum tímum.
Betri aðstæður og öryggi
Ólafía segir helsta vandamálið
hérlendis að taka á móti mjög stór-
um skipum því hafnaraðstaðan sé
ekki nægilega góð. „Þessi stóru skip
vilja geta lagst að bryggju. Það er
mikið hagræði fyrir farþeganna.
Þau vilja líka geta tekið vatn og vist-
ir og losað sig við sorp og annað
slíkt.“ Það stendur til bóta, segir
Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri
SMÁRALIND
Sími 517 7007
Við höfum dregið út 25 heppnar konur sem þátt tóku í
Sumarhappdrætti CHANGE þar sem hver þeirra vann
6.000 kr. úttekt á
undirfatnaði eða
baðfatnaði úr
glæsilegri sumarlínu
CHANGE.
Vinningarnir bíða
ykkar í CHANGE
í Smáralind
Björg Eir Birgisdóttir, Mosfellsbæ
Edda Karlsdóttir, Rvík
Ása Elísa Einarsdóttir, Akureyri
Tinna G. Lúðvíksdóttir, Vogum
María Björk Gunnarsdóttir, Hellu
Sigurlín Ólafsdóttir, Seltjn.
Heiðrún Sveinbjörnsdóttir, Akranesi
Elsa Jónsdóttir, Bolungarvík
Svava Þórðardóttir, Hveragerði
Þóra Bjarnadóttir, Þorlákshöfn
Birna F.S. Hannesdóttir, Bíldudal
Katrín Þorláksdóttir, Akureyri
Guðný S. Jónsdóttir, Reykjanesbæ
Sandra R.H. Pálmadóttir, Rvík
Fanney Ýr Gunnlaugsdóttir, Rvík
Guðmunda Ingim., Kópavogi
Auður Þorgeirsdóttir, Kópavogi
Sigrún Edda Sigurðardóttir, Hafnarf.
Guðbjörg Oddsdóttir, Rvík
Elísabet Guðrúnardóttir, Rvík
Hlín Reykdal, Rvík
Snædís Perla Sigurðardóttir, Rvík
Dagbjört Rán Guðmundsdóttir, Hafnarf.
Rósa Margrét Húnadóttir, Rvík
Bryndís Arnþórsdóttir, Garði
ÞÆR HEPPNU!
HÉRAÐSDÓMUR
Maður var sýknaður af því að hafa valdið
árekstri af gáleysi.
Skortur á rannsókn
bifreiðarinnar:
Sýknaður af
gáleysisakstri
DÓMSMÁL Maður á þrítugsaldri var
sýknaður í Héraðsdómi Reykjavík-
ur af því að hafa valdið árekstri af
gáleysi. Maðurinn fór yfir á rangan
vegarhelming á Eiðsgranda í
Reykjavík og keyrði þar á annan bíl.
Kona sem ók þeim bíl slasaðist al-
varlega á höfði, hlaut innvortis
áverka og beinbrotnaði. Þá úlnliðs-
brotnaði farþegi í bíl konunnar.
Hvorki konan né hinn ákærði
muna aðdraganda slyssins. Þegar
slysið varð var maðurinn að borða
hamborgara, sem fannst á gólfinu
fyrir framan farþegasætið við rann-
sókn á bílnum. Þó nærtækast kunni
að virðast að maðurinn hafi verið að
beygja sig eftir hamborgaranum á
gólfið liggur ekkert fyrir um það, að
því er fram kemur í dómnum. Þá
segir að nokkur skortur hafi verið á
rannsókn á bíl mannsins og því sé
ekki lögfull sönnun þess að slysið
verði rakið til gáleysi mannsins svo
það varði við lög. ■
GRUNNSKÓLAR
Ásókn ýmissa fyrirtækja í að auglýsa í grunnskólum hefur aukist.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
■ MIÐAUSTURLÖND
FANGELSAÐUR FYRIR GUÐSPJÖLL
21 árs Kúvæti hefur verið dæmdur
til tíu ára fangelsisvistar fyrir guð-
spjöll. Maðurinn gaf í fyrra út
snældu þar sem hann er sagður fara
móðgandi ummælum um fylgi-
sveina Múhameðs spámanns. Hon-
um var sleppt úr haldi fyrir nokkru
fyrir mistök og gengur enn laus.
GUNNHILDUR A. GUNNARSDÓTTIR
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
AUKNING Á KOMUM
SKEMMTIFERÐASKIPA
Á AKUREYRI
Vel á annað hundrað komur skemmtiferðaskipa eru skráðar í bækur hafna landsins í
sumar. Flest skipanna stoppa í tveimur höfnum og það eykst að minni skipin fari
hringferð um landið. Til Akureyri koma 53 skip í sumar.