Fréttablaðið - 20.05.2004, Side 22
Alcatraz, Pier 39 og Golden
Gate, hvar erum við núna? Við
erum að sjálfsögðu í San
Francisco. Erum búnir að skoða
marga þekkta staði svo sem
Hyde- og
L o m b a r d -
stræti, Pier 39
og Fishermans
wharf. Frá San
F r a n c i s c o
héldum við til
Y o s e m i t e -
þjóðgarðsins
sem er í um
fimm tíma
fjarlægð frá
Frisco. Í hon-
um er hæsta
bera granít-
berg í heimi (1.200 m), stórfeng-
legir fossar og miklir dalir. Þar
eru einnig eldgömul og gríðar-
lega stór rauðviðartré (giant
sequoias), hið elsta, kallað Great
Grizzly, er talið vera um 2.700
ára. Þaðan keyrðum við til Las
Vegas, sem má með sanni kalla
borg ljósanna. Við komum í
gegnum eyðimörkina að kvöldi
til og sáum borgina uppljómaða í
næturmyrkrinu. Það er hægt að
gera ýmislegt hérna á glæsi-
hótelunum í Las Vegas, til dæm-
is fara á ströndina, fara í gondól,
rússíbana, sjá danssýningar og
tónleika. Við fórum í hæsta rús-
síbana í heimi (380 metra hár
uppi á Stratosphere turninum.
Þegar rökkva tekur færist líf í
borgina sem
er eins og
draugabær að
degi til. Flest
glæsihótelin
eiga það sam-
eiginlegt að
þau eru innan-
tóm, endalaus-
ar raðir af
spi lakössum
og borðum. Í
stað þess að
spila, nýttum
tímann á dag-
inn til að skoða Dauðadalinn og
Hoover-stífluna. Á kvöldin höfð-
um við nóg að gera að skoða all-
ar sýningarnar sem boðið er upp
á, meðal annars gosbrunnasýn-
ingu við Bellagio-hótelið og sjó-
ræningasýninguna við Treasure
Island. Eftir stutt stopp í Las Ve-
gas héldum við vegaferðalaginu
okkar áfram. Þegar við skilum
bílaleigubílnum verðum við bún-
ir að keyra um 5.700 kílómetra á
átta dögum (rúmlega fjórum
sinnum hringinn).
Með kveðju, Þórir og Gunnar.
Fjórum sinnum hringinn á átta dögum
Heimsferð
GUNNAR OG ÞÓRIR SKRIFA FERÐAPISTLA
ÚR 120 DAGA HEIMSREISU SINNI.
Las Vegas lifnar við á kvöldin.
Útlit er fyrir að besta veðrið verði á Austurlandi um helgina.
Á morgun verður áttin suðlæg með rigningu eða súld nema
fyrir austan. Á laugardag verður áttin vestlæg og áfram verður
rigning eða súld nema austanlands þar sem verður léttskýjað.
Á sunnudag verður hægviðri og víða bjart. Helgarhitinn er frá
4 og upp í 15 stig austanlands.
[ SKÝ KOMIÐ ÚT ]
Nýtt útlit með
nýjum ritstjóra
Fyrsta tölublað af tímaritinu Skýi í rit-
stjórn Anne Kristine Magnúsdóttur er
komið út. Tímaritið er gefið út annan
hvern mánuð fyrir farþega Flugfélags Ís-
lands svo og aðra Íslendinga. Í ný-
útkomnu tölublaði er meðal annars að
finna úttekt Aldísar Baldvins um það
hvað heillar karlmenn við konur, gein
um hinn nýja metrosexúal karlmann,
grein um samskipti mennskra við
huldufólk eftir Vilmund Hansen, viðtal
við Eggert Þorleifsson sem er frægur
orðinn fyrir garðinn sinn og grein um
Barcelona. Þá er spáð í framtíð Davíðs
Oddssonar í haust og viðtal við Örn
Svavarsson í Heilsuhúsinu að ógleymdri
stjörnuspá og mörgu fleira. Tímaritið
hefur breytt um útlit en hönnuður
blaðsins er Helga Guðný Ásgeirsdóttir
sem er nýkomin úr námi frá Boston.
FERÐASKRIFSTOFA
GUÐMUNDAR JÓNASSONAR EHF.
Borgartúni 34, sími 511 1515
netfang: outgoing@gjtravel.is
heimasíða: www.gjtravel.is
GÓÐAR FERÐIR
BERLÍN-DRESDEN-PRAG 01.-07.08.
Flogið til Berlínar og gist þar 2 nætur, þaðan er svo
haldið til Dresden og gist eina nótt og svo áfram til Prag
þar sem gist er 3 nætur. Flogið heim frá Prag.
VERÐ: 81.900,-
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting í tveggjamanna herbergi,
morgunverður, akstur Berlín-Dresden-Prag, skoðunarferð um Berlín,
skoðunarferð um Dresden, skoðunarferð um Prag, skoðunarferð um
Terezín með hádegisverði og íslensk fararstjórn.
Fararstjóri Emil Örn Kristjánsson
AKSTUR OG SIGLING 01.-12.09.
Ekið til Seyðisfjarðar og siglt um Færeyjar og Hjaltland til
Danmerkur, litast um á Jótlandi, dvalið 5 daga í Tra-
vemünde við Eystrasaltsströnd Þýskalands og farnar
dagsferðir þaðan, ekið um Mósel- og Rínardali og flogið
heim frá Frankfurt.
VERÐ: 105.300,-
Innifalið í verði er sigling, flug, flugvallarskattar, gisting í tveggjamanna
herbergjum (í fjögurra manna klefum í Norrænu) morgunverður á
hótelum, 4 kvöldmáltíðir á Hótel Maritim í Travemünde og allur akstur.
BEINT FLUG TIL PRAG 25.07.-07.08.
VERÐ 18.900
Innifalið í verði er flug og flugvallaskattar.
Brekkugötu 27a
sími: 461 2500 • gsm: 895 0625 • fax: 461 2502
600 Akureyri • akurinn@hotmail.com
MAÍ TILBOÐ
Gistiheimilið Akur Inn
3 nætur á 15.000
2 manna herbergi
fjórða nóttin frí
Paradísin Gardavatn á Ítalíu:
Heimilislíf á draumkenndum
stað við rætur Alpafjalla
Einn draumkenndasti staður ver-
aldar er við Gardavatn á Ítalíu.
Vatnið er það stærsta á Ítalíu og
liggur upp með ítölsku Alpafjöll-
unum; umkringt glæfralegum
fjallstindum og fádæma fagurri
náttúru. Gardavatn er val þeirra
sem vilja upplifa ítalska töfra og
munúð í litlum, ævintýralegum
þorpum þar sem gestrisnin er eft-
irtektarverð og aðbúnaður allur
fyrsta flokks. Fremur dýrt er á
ítalskan mælikvarða að gista á
hótelum við Gardavatn, en þeim
mun eftirsóknarverðara er að
leigja íbúðir í sjarmerandi hverf-
um þorpanna fyrir miklum mun
lægra verð.
Fanney Sigurðardóttir, sem
búið hefur í Sirmione við Garda-
vatn síðastliðinn áratug, hefur
milligöngu um íbúðaleigu í
Sirmione og nágrenni. Hægt er að
leigja íbúðirnar, sem allar eru
heimilislegar og búnar nútíma
þægindum, í allt frá viku upp í
lengri tíma. Göngufæri er frá hús-
unum að freistandi ströndum Gar-
davatns þar sem hitastigið leyfir
sund og busl yfir sumartímann og
víst liggja vegir til allra átta frá
vatninu að hinni ómótstæðilegu
Ítalíu; Veróna, Feneyjum, Mílanó,
Flórens og fjallaþorpum Alpanna,
en bíltúr á þessa staði eru margir
innan við klukkustund.
Gardavatn er staður elskenda
því rómantík svífur yfir vatninu
en ekki er síðra að fara með börn
á þessar slóðir því steinsnar er í
Gardaland, sem er með stærstu
skemmtigörðum Evrópu, og
Caneva, sem er glæsilegur vatna-
garðar með spennandi renni-
brautum og vatnaupplifun. Matar-
listin er sverð og skjöldur Ítala og
öruggt að finna girnileg veitinga-
hús við vatnið, auk þess sem
Fanney gefur vísbendingar um
heimilislega matsölustaði í fá-
förnum uppsveitum Gardavatns
þar sem Ítalir sitja að borðum og
ítölsk mamma sér um matar-
galdrana.
Þess má geta að Sirmione þykir
kóróna Gardavatns; með forn-
frægum kastala og óviðjafnan-
legu náttúruumhverfi. Vikuleiga á
íbúðum í Sirmione yfir sumar-
tímann er frá 300 evrum.
Nánari upplýsingar gefur
Fanney í síma 0039-030 919 438 og
netfanginu: fannar@inwind.it ■
Gardavatn er með fegurstu stöðum jarðar. Fanney Sigurðar-
dóttir sér um útleigu íbúða við vatnið allt árið um kring.
Blað fyrir farþega Flugfélags Íslands.