Fréttablaðið - 20.05.2004, Síða 34

Fréttablaðið - 20.05.2004, Síða 34
Me i s t a r a f l o k k a rBreiðabliks fengu á sig tólf mörk í 1. umferð Landsbankadeildanna. Karlaliðið tapaði 4-0 í Njarðvík og kvennaliðið tapaði 8-1 í Eyjum og hafa meistaraflokkarnir aldrei fengið aðra eins útreið í upphafi móts. Karlaliðið tapaði í 1. umferð þriðja árið í röð. Í fyrra töpuðu Blikar 2-1 fyrir Þór í Kópavogi og 2-0 fyrir Haukum árið 2002. Kvennaliðið hefur hins vegar ekki tapað í fyrstu umferð síðan 1986 þegar Blikar töpuðu 3-1 fyrir Val í Kópavogi. Karlaliðið hóf mótið árið 1986 með því að sigra Kefla- vík 1-0 í Kópavogi. Upphafið var samt ekki vísbending um endinn því karlaliðið féll en kvennaliðið varð í öðru sæti á eftir Val. 26 20. maí 2004 FIMMTUDAGUR RONALDINHO Brasilíumaðurinn Ronaldinho á æfingu á Stade de France fyrir landsleikinn gegn Frökkum. Leikurinn er liður í hátíðar- höldum vegna 100 ára afmælis FIFA. FÓTBOLTI ÍBV á ekki eftir að ofmetnast Úlfar Hinriksson, aðstoðarþjálfari A-landsliðs kvenna, spáir Val, KR og Stjörnunni sigri í leikjum dagsins. FÓTBOLTI Fyrstu umferð Lands- bankadeildar kvenna lýkur í dag með þremur leikjum. FH og Valur leika í Kaplakrika, KR og Fjölnir í Frostaskjólinu og Stjarnan og Þór/KA/KS leika á Hofsstaðavelli í Garðabæ. Fréttablaðið bað Úlfar Hinriksson, aðstoðarþjálfara A- landsliðs kvenna, að spá í leiki dagsins. Fyrst var þó rétt að staldra að- eins við stóran sigur ÍBV á Breiðabliki á þriðjudag. „Ég sá leikinn,“ sagði Úlfar. „Tölurnar eru stórar en þetta þýðir í raun og veru bara þrjú stig fyrir ÍBV og þrjú stig töpuð fyrir Breiðablik. Það kemur nýr leikur og ÍBV á ekki eftir að ofmetnast við þetta. Þær halda bara áfram sínu ferli og Blikarnir hrista þetta af sér. Það skemmtilega við fótboltann er að það getur allt gerst í honum. Við getum bara vitnað í 7-0 hjá FH og KR í karlaboltanum í fyrra.“ „Það verður væntanlega Vals- sigur þar,“ sagði Úlfar um leik FH og Vals. „Val hefði kannski verið spáð Íslandsmeistaratitlinum ef úrslitaleikurinn í deildabikar- keppninni hefði verið sólarhring seinna. Ég held að þetta hafi snú- ist þegar ÍBV vann.“ FH er búið að missa Sif Atla- dóttur til KR. „Þá er broddurinn farinn úr FH-liðinu, og ekki bara inni á vellinum heldur er þetta líka áfall fyrir hópinn. Hún var stór póstur hjá FH og þær gætu verið að vinna sig út úr þessu. FH hefur verið að gera ágætis hluti en Valur á að vinna þetta.“ „Menn ættu ekki að afskrifa KR. Félagið hefur fengið fimm mjög öfluga leikmenn og verður með sitt sterkasta lið fram að 15. ágúst og spilar við öll þessi stór- lið. Þær spila svo tvo leiki sem þær geta hugsanlega klárað án þessara leikmanna,“ sagði Úlfar. „Ég hef ekki séð Fjölni spila. Þær eru kannski stórt spurninga- merki en þjálfarinn þeirra, Andrés Ellert Ólafsson, hefur ver- ið í þessu áður og veit hvað hann er að fara út í. Ef hann er þolin- móður og nær að spila skynsam- lega sleppur Fjölnir frá þessum leik með lágmarksskaða. En hann sækir væntanlega ekki stig í Frostaskjólið.“ „Ég veit ekki nákvæmlega hvernig Þór/KA/KS er. Þetta er ungt lið, og eflaust sveiflukennt, en ef þær hitta á góðan dag gætu þær allt eins sigrað. Þær sigruðu þarna í fyrra. Stjarnan er líka með ungt lið en ég myndi hallast að Stjörnusigri þó ég yrði ekki undr- andi þó þetta endaði með jafntefli, 1-1 eða 2-2.“ Ásta Árnadóttir fór frá Þór/KA/KS í Val og Tinna Mark Antonsdóttir til Stjörnunnar og Guðrún Viðarsdóttir, marka- hæsti leikmaður þeirra í fyrra, missir líklega af leiknum vegna náms í Danmörku. „Á móti kem- ur að Þór/KA/KS hefur fengið Alexöndru Tómasdóttur frá Neskaupstað, sem millilenti í KR í fyrra, og tvær stelpur frá Sauðárkróki, Margréti Vigfús- dóttur og Ingu Birnu Friðjóns- dóttur. Þór/KA/KS er örugglega með nokkuð þétt lið en mjög ungt. Stjarnan er kannski með eldra lið en það munar samt ekki miklu. Eigum við ekki að segja 2-1 fyrir Stjörnuna,“ sagði Úlfar Hinriksson. ■ Íslenska handbolta- landsliðið: Flanders- hópurinn tilbúinn HANDBOLTI Íslenska landsliðið í hand- knattleik tekur þátt á Flanders Cup í Belgíu um helgina ásamt Tún- ismönnum, Dönum og Serbum og Svartfellingum. Guðmundur Guð- mundsson landsliðsþjálfari valdi í gær 15 manna hóp fyrir mótið en hann var með 19 manna æfingahóp fyrir mótið. Þeir leikmenn sem duttu út fyrir mótið eru Vilhjálmur Hall- dórsson, Hrafn Ingvarsson, Pálmar Pétursson og Ólafur Gíslason. „Þetta er eins og alltaf að maður hefur völina sem og kvölina. Ég var með fjóra markverði í hópnum og mér fannst nóg að fara með tvo. Vil- hjálmur gat aldrei verið með þar sem hann meiddist á annarri æf- ingu og Hrafn var ekki valinn að þessu sinni,“ sagði Guðmundur. Landsliðsþjálfarinn hefur oft verið gagnrýndur fyrir að skilja Birki Ívar eftir úti í kuldanum og lét leikmaðurinn nokkuð stór orð falla í viðtali við DV er hann var ekki val- inn í landsliðið fyrir EM. Guðmund- ur segir að þrátt fyrir það séu engin leiðindi á milli hans og Birkis Ívars. „Það er engin togstreita á milli okkar. Ég hef þá einu reglu að velja alltaf sterkasta liðið hverju sinni og fara eftir minni sannfæringu með það. Ég eltist ekkert við einhver um- mæli sem menn láta falla í hita leiks- ins svo framarlega sem þau fara ekki úr böndunum. Ég er alls ekkert hörundsár,“ sagði Guðmundur. Eftir leikina í Belgíu fer Guð- mundur með mikið breyttan leik- mannahóp til Grikklands þar sem landsliðið leikur tvo æfingaleiki áður en það mætir Ítölum í umspils- leik um sæti á næsta HM. Guð- mundur sagði í gær að hann myndi væntanlega taka þrjá leikmenn úr þessum hópi til Grikklands. ■ ■ TALA DAGSINS 12 FÓTBOLTI Dusko Dimitrijevic var hetja Neistamanna í 1. umferð Visa-bikars karla í knattspyrnu þegar hann skoraði sigurmark liðsins í framlengingu í 1-0 sigri á GKS. Fagnaðarlæti Dimitrijevic voru þó honum dýrkeypt því eftir að hann skoraði markið úr víti á 115. mínútu fagnaði hann með því að fara úr keppnistreyju sinni og varð þar með fyrsta fórnarlamb nýrrar reglubreytingar í knatt- spyrnuheiminum. Dusko hafði fengið gult spjald á 75. mínútu en gleymdi sér í fögnuðinum eftir markið og fékk þá sitt annað gula spjald og þar með rauða spjaldið. Frá og með þessu tímabili fá menn áminningu fyrir að fagna marki með því að fara úr keppnis- treyju. Það var Sverrir Pálmason dóm- ari sem var vel með á nótunum og fyrstur til að spjalda menn hér á landi eftir þessa reglubreytingu FIFA og KSÍ. Breytingin tekur ekki gildi annars staðar fyrr en eftir lokakeppni EM í Portúgal. ■ 18 ára landsliðið til Makedóníu: Hópurinn klár HANDBOLTI Heimir Ríkharðsson, þjálfari U-18 ára landsliðs karla í handknattleik, valdi í gær 16 manna hóp fyrir undankeppni Evrópumótsins sem fram fer í Skopje í Makedóníu og hefst á morgun. Liðið, sem inniheldur sex leikmenn Fram, hefur titil að verja en það mun mæta Grikkjum á föstudaginn, Makedónum á laugardaginn og Frökkum á sunnudaginn. ■ Handknattleikslið Hauka fá liðsstyrk: Liðstyrkur til Ásvalla HANDBOLTI Karla- og kvennalið Hauka í handknattleik hafa fengið liðsstyrk. Gunnar Ingi Jóhanns- son er kominn til Ásvalla frá Ás- garði en hann er uppalinn Stjörnu- maður. Gunnar er sonur Gunnars Inga Jóhannssonar, sálfræðings og fyrrverandi þjálfara karla- landsliðsins og karlaliðs Hauka, og þykir efnilegur vinstri horna- maður. Til kvennaliðsins er komin aftur stórskyttan Nína Kristín Björnsdóttir, sem lék með ÍBV í vetur en var tvö árin þar á undan í herbúðum Hauka. Hún var ekki í sínu besta formi í vetur og lék þar af leiðandi ekki mikið en takist henni að koma sér í sitt gamla góða form er alveg víst að hún styrkir Haukaliðið mikið enda afar öflug skytta. Mikill hugur er í kvennaliðinu, sem ætlar sér mun stærri hluti en í fyrravetur. ■ Jay-Jay Okocha: Framlengir við Bolton KNATTSPYRNA Stuðningsmenn Bolton önduðu léttar í gær þegar fyrirliði liðsins, Jay-Jay Okocha, skifaði loks undir samning við fé- lagið. Nýi samningurinn er til þriggja ára og tekur reyndar ekki gildi fyrr en Okocha hefur fengið atvinnuleyfi sitt á Englandi fram- lengt. „Að klára þennan samning við Okocha sýnir þann metnað sem félagið hefur til þess að ná enn lengra í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Sam Allardyce, stjóri Bolton, í gær. ■ FÓTBOLTI Eyjakonur byrjuðu Landsbankadeild kvenna á besta hugsanlega hátt með því að bursta Breiðablik, 8-1. Þótt athygl- in væri öll á Margréti Láru Viðars- dóttur eftir leikinn, þökk sé frá- bærum leik hennar og fernu, þá náði félagi hennar í framlínunni, Olga Færseth, að skora í níunda heimaleiknum í röð. Olga hefur þannig skorað í öllum heimaleikj- unum sem hún hefur spilað með ÍBV í deild og bikar á Hásteins- vellinum í Eyjum, 14 mörk í átta deildarleikjum og þrjú mörk í ein- um bikarleik. Samtals gera þetta 17 mörk í níu leikjum og að minns- ta kosti eitt mark í hverjum ein- asta leik. Mark Olgu gegn Breiða- bliki kom með glæsilegri hjól- hestaspyrnu á 66. mínútu en Mar- grét Lára hafði þá þegar skorað þrjú af fjórum mörkum sínum í leiknum. Margrét Lára hefur sjálf skorað 17 mörk í umræddum níu leikjum (spilaði ekki tvo fyrstu af þeim vegna meiðsla) og samtals hefur því þetta stórhættulega framherjapar skorað 34 mörk í síðustu níu leikjum ÍBV á Há- steinsvelli eða 3,8 mörk að meðal- tali í leik.Næsti heimaleikur ÍBV er gegn FH á mánudaginn og þá er að sjá hvort Olga, sem er marka- hæsti leikmaður efstu deildar kvenna frá upphafi með 209 mörk í aðeins 153 leikjum, skori í tíunda leiknum í röð. ■ Visa-bikar karla í knattspyrnu: Skoraði en fékk rautt spjald á 115. mínútu HÓPURINN Markverðir Björn Friðþjófsson Fram Hjalti Þorvarðarson Fjölni Aðrir leikmenn Arnór Þór Gunnarsson Þór Ak. Ernir Hrafn Gunnarsson Aftureldingu Elvar Friðriksson Val Fannar Friðgeirsson Val Gunnar Harðarson Fram Gísli Jón Þórisson Haukum Guðmundur Örn Arnarson Fram Gunnar Steinn Jónsson Fjölni Jón Brynjar Ólafsson Fram Ingvar Árnason Val Magnús Einarsson Aftureldingu Rúnar Kárason Fram Sigfús Páll Sigfússon Fram Sveinn Þorgeirsson Fjölni OLGA Á HEIMA Í EYJUM Olga Færseth hefur skorað í öllum níu heimaleikjunum sem hún hefur spilað með ÍBV í deild og bikar.MÖRK Í 9 HEIMALEIKJUM ÍBV 2003-2004 Olga Færseth 17 Margrét Lára Viðarsdóttir 17 Aðrir leikmenn ÍBV 20 Mótherjar ÍBV 10 Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu: Olga skorar alltaf í Eyjum LANDSBANKADEILD KVENNA FH og Valur mætast í 1. umferð Landsbankadeildar kvenna eins og í fyrra. LANDSBANKADEILD KVENNA Leikir í dag kl. 16 FH - Valur Kaplakrikavöllur KR - Fjölnir KR-völlur Stjarnan - Þór/KA/KS Hofsstaðavöllur ÍSLENSKI LANDSLIÐSHÓPURINN Markverðir Birkir Ívar Guðmundsson Haukar Björgvin Páll Gústavsson HK Aðrir leikmenn Sturla Ásgeirsson ÍR Baldvin Þorsteinsson Valur Bjarni Fritzson ÍR Þórir Ólafsson Haukar Róbert Gunnarsson Århus GF Vignir Svavarsson Haukar Arnór Atlason KA Ingimundur Ingimundarson ÍR Heimir Örn Árnason Valur Kristján Andrésson GUIF Ásgeir Örn Hallgrímsson Haukar Einar Hólmgeirsson ÍR Valdimar Þórsson Fram AFTUR Í NÁÐINNI Birkir Ívar Guðmundsson er aftur kominn í íslenska landsliðið í handbolta eftir frá- bæra frammistöðu með Haukum í vetur.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.