Fréttablaðið - 20.05.2004, Síða 36

Fréttablaðið - 20.05.2004, Síða 36
28 20. maí 2004 FIMMTUDAGUR SHAQUILLE O’NEAL Skorar fyrir Los Angeles Lakers gegn San Antonio Spurs. KÖRFUBOLTI Hneyksli í frjálsíþróttaheiminum: Kelli White í tveggja ára bann FRJÁLSAR Bandaríska spretthlaupa- konan Kelli White hefur verið dæmd í tveggja ára keppnisbann eftir að hafa viðurkennt ólöglega lyfjaneyslu. White var tekin í lyfjapróf eftir sigurinn í 100 metra hlaupinu á HM í París í fyrra. Hún reyndist hafa tekið EPO, lyf sem eykur framleiðslu rauðra blóðkorna, og ólöglega stera auk lyfsins modafinil sem White segist reyndar hafa tekið við drómasýki og hafa fengið til þess lyfseðil frá lækni. Kelli White varð reyndar tvö- faldur heimsmeistari á heims- meistaramótinu í París en þar vann hún einnig til gullverðlauna í 200 metra hlaupi. Þau verðlaun hafa nú bæði verið tekin af hinni 27 ára White, sem lét hafa eftir- farandi eftir sér þegar dómurinn var birtur: „Með gjörðum mínum hef ég ekki einungis sjálf svindlað heldur líka farið á bak við fjöl- skyldu mína, vini og alla í frjáls- íþróttaheiminum. Mér þykir afar leitt hvernig mál hafa farið og ákvarðanir mínar voru augljós- lega rangar.“ White vonast eftir að bannið verði stytt því hún hyggst starfa að forvarnarmálum í kjölfar dómsins og gera allt hvað hún getur til að bæta fyrir misgjörðir sínar. ■ Æsispennandi rimma í austrinu Detroit Pistons og New Jersey Nets mætast í oddaleik í kvöld. KÖRFUBOLTI Viðureignir New Jers- ey Nets og Detroit Pistons hafa verið hin besta skemmtun og hafa miklar sviptingar orðið. Pistons, sem hefur endurheimt gamla við- urnefnið sitt, Bad Boys, vann báða heimaleikina og lék liðið feikna- sterka vörn. Eftir að hafa haldið hinu geysiöfluga Nets-liði í 56 stigum í fyrsta leiknum voru margir á því að hér væri við ofurefli að etja fyrir leikmenn New Jersey. En staðan átti heldur betur eftir að breytast. Næstu tveir leikir fóru fram á heimavelli New Jersey og sýndu leikmenn Nets að þeir eru full- færir um að spila varnarleik, rétt eins og Pistons. Þeir náðu til dæm- is að halda liði Detroit í 64 stigum í fyrri heimaleiknum. Skemmst er frá því að segja að Nets vann þrjá leiki í röð en Detroit náði að knýja fram sigur í sjötta leik liðanna og oddaleikur því staðreynd. Hann fer fram í nótt á heimavelli Detroit og miðað við tölur liðanna (sem hingað til hafa verið hnífjafnar hvað stigaskor, stoðsendingar, fráköst og skot- nýtingu varðar) ætti leikurinn að verða æsispennandi. Fréttablaðið fékk Hlyn Bær- ingsson, fyrirliða úrvalsdeildar- liðs Snæfells, til að spá í spilin. „Ég held að Detroit vinni þetta, það er nokkuð ljóst,“ segir Hlyn- ur. „Mér finnst þeir vera með miklu betra lið á meðan Nets virð- ist standa og falla með einum leik- manni, Jason Kidd. Ég myndi líka vilja fá ný lið í úrslitin, ekkert jafn gaman að fylgjast með sömu liðunum kljást um þetta ár eftir ár,“ bætir Hlynur við. „Reyndar er ótrúlegt hvað Kidd rífur þetta upp hjá Nets. Hann gerir menn í kringum sig enn betri og er dug- legur að mata samherjana,“ segir Hlynur, fullur aðdáunar. „Þjálfari Pistons, Larry Brown, virkar líka betur á mig en unglambið hjá Nets. En reynslan er meiri hjá New Jersey, liðið hefur verið í þessari stöðu áður en Pistons hef- ur ekki komist svona langt síðan Isiah Thomas og Joe Dumars voru í liðinu,“ segir Snæfellingurinn. „Ég vildi nú ekki vilja mæta Wallace-gaurunum hjá Detroit,“ staðhæfir Hlynur. „Annar er lík- amlega geðveikur og hinn er and- lega geðveikur. Annars er Ric- hard Hamilton minn maður í Detroit, einn af skemmtilegustu leikmönnum NBA í dag.“ Hlynur er sammála íþrótta- deild Fréttablaðsins um að úr- slitakeppnin í ár sé sú allra skemmtilegasta í langan tíma. „Þetta hefur verið frábær keppni og vonandi hefur hún ekki farið framhjá körfuboltaáhugamönn- um. Til að mynda var fimmti leik- ur Nets og Pistons þríframlengd- ur og svo hafa lið eins og Miami Heat komið á óvart. Rimman milli Minnesota og Sacramento var líka stórkostleg,“ segir Hlynur, ánægður með gang mála. „Núna er bara vonandi að einhverjir aðr- ir en Lakers vinni þetta, þó svo að þeir séu nú líklegastir til þess. Þrátt fyrir að Shaq sé ekki að eiga góða leiki þá er svo mikil breidd í liðinu og Kobe Bryant gerir nátt- úrlega það sem þarf,“ segir Hlyn- ur að lokum. Oddaleikur Detroit og New Jersey er sýndur í kvöld á Sýn á miðnætti. ■ Fernando Morientes: Vill fara til Englands KNATTSPYRNA Heitasti framherjinn í Evrópu í dag, Fernando Mori- entes, greindi frá því í gær að hann vildi ólmur fara til Eng- lands. Arsenal og Chelsea eru bæði talin hafa mikinn áhuga á framherjanum, sem talinn er kosta um 18 milljónir punda. „Ég er stoltur af því að bæði Arsenal og Chelsea skuli hafa áhuga á mér,“ sagði Morientes í gær. „Ef það kemur tilboð frá Englandi þá er málið í höndum Real Madrid en ég væri vel til í að fara til Englands.“ Morientes fór á kostum með Monaco í vetur en þar hefur hann verið í láni frá Real Madrid. Hann veit sem er að hann mun ekki moka Raúl eða Ronaldo úr Ma- drídarliðinu og því er hann opinn fyrir ýmsum möguleikum. ■ Tími Houlliers á enda? Ræðst á næstu dögum KNATTSPYRNA Framtíð Frakkans Gerards Houllier ræðst á næstu dögum er stjórn Liver- pool hefur fundað um mál fram- kvæmdastjór- ans. Eins og gefur að skilja er ekki eintóm ham- ingja með störf hans hjá félaginu þar sem árangur- inn síðustu ár hefur ekki verið í takt við væntingar. Stjórnarformaðurinn David Moores mun ræða við Houllier ásamt Rick Parry, yfirmanni knattspyrnumála hjá félaginu. Á þeim fundi þarf Houllier að heilla Moores og Parry ef hann vill halda starfinu. Hann þarf að sannfæra stjórnarmennina um að nýju mennirnir sem eru á leið til félags- ins muni gera gæfumuninn á næsta ári. Houllier hefur þegar gert samning við Djibril Cisse, framherja Auxerre, og svo er hann að reyna við Joey Barton, leik- mann Manchester City, og fram- herjann Alan Smith hjá Leeds. Nokkur nöfn eru þegar á lofti þegar rætt er um arftaka Houlli- ers og má þar nefna Martin O’Neill, stjóra Celtic, Alan Curbishley, stjóra Charlton, Rafa Benitez, stjóra Valencia, og svo hafa sum blöð talað um Kenny Dal- glish. ■ HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 17 18 19 20 21 22 23 Fimmtudagur MAÍ SAKBITIN Spretthlauparinn Kelli White sést hér á blaðamannafundi eftir að tilkynnt var um tveggja ára keppnisbann hennar í kjölfar ólöglegrar lyfjaneyslu. 3. deild karla í fótbolta: Fengu 19 frá Völsungi FÓTBOLTI 3. deildar lið Boltafélags Húsavíkur fékk góðan liðstyrk í gær þegar 19 leikmenn frá Völs- ungi og einn frá Þrótti skiptu yfir í félagið en liðið spilar fyrsta leik tímabilsins í kvöld þegar það tek- ur á móti 2. deildar liði Leift- urs/Dalvíkur í 1. umferð Visa- bikars karla. Boltafélagið er ný- stofnað og tekur nú þátt í Íslands- mótinu í fyrsta sinn en Völsungur frá Húsavík er nú í 1. deild karla í fyrsta sinn í átta ár. Leikmennirn- ir sem skiptu í félagið eru flestir ungir að árum, þeir yngstu eru á 17. ári. ■ ■ ■ LEIKIR  14.00 ÍA leikur við Grindavík á Akranesvelli í Landsbankadeild karla í fótbolta.  14.00 ÍBV fær Fram í heimsókn á Hásteinsvöll í Landsbankadeild karla í fótbolta.  16.00 FH og Valur keppa á Kaplakrikavelli í Landsbankadeild kvenna í fótbolta.  16.00 KR mætir Fjölni á KR-velli í Landsbankadeild kvenna í fót- bolta.  16.00 Stjarnan og Þór/KA/KS leika á Hofsstaðavelli í Lands- bankadeild kvenna í fótbolta.  19.15 Leik Fylkis við FH á Fylkis- velli í Landsbankadeild karla í fót- bolta hefur verið frestað.  19.15 Keflavík og KR keppa á Keflavíkurvelli í Landsbankadeild karla í fótbolta. ■ ■ SJÓNVARP  16.10 NBA á Sýn. Útsending frá leik Minnesota og Sacramento.  18.10 Olíssport á Sýn. Fjallað er um helstu íþróttaviðburði heima og erlendis.  18.30 Saga EM í fótbolta á RÚV.  19.30 Bandaríska mótaröðin á Sýn. Fréttaþáttur um bandarísku mótaröðina í golfi.  20.00 Sterkasti maður heims á Sýn. Í þættinum verður fjallað um keppnina árið 1986.  20.10 Leiðin á EM 2004 á RÚV.  21.00 Bandaríska mótaröðin á Sýn.  21.55 Fótboltakvöld á RÚV. Þáttur um Landsbankadeildina í fótbolta.  22.00 Íslensku mörkin á Sýn. Þátt- ur um Landsbankadeildina í fót- bolta.  23.25 Boltinn með Guðna Bergs á Sýn. Enski boltinn frá ýmsum hliðum.  23.40 Aldarafmæli FIFA á RÚV. FAGNAÐARLÆTI NEW JERSEY Rodney Rogers og Richard Jefferson, leikmenn New Jersey Nets, fagna hér sigrinum á Detroit Pistons í fimmta leiknum. Intertoto-keppnin: Fylkir mætir Gent FÓTBOLTI Nú er orðið ljóst að Fylk- ismenn mæta belgíska liðinu Gent í 1. umferð Inter- toto-keppninnar í knattspyrnu í næsta mánuði. Fylkismenn höfn- uðu í fjórða sæti L a n d s b a n k a - deildarinnar á síðasta ári en Gent hafnaði í níunda sæti belgísku deildarinnar, aðeins stigi á undan Íslendingaliðinu Lokeren sem hafnaði í tíunda sæti. KA-menn léku í Intertoto- keppninni í fyrra en duttu út í fyrstu umferð eftir tap fyrir bosn- íska liðinu Slobodan Tuzla í víta- keppni á Akureyrarvelli. ■ KÖRFUBOLTI Indiana Pacers er komið í úrslit austurdeildarinnar í NBA-körfuboltanum í fyrsta sinn síðan árið 2000 eftir sigur á Miami Heat, 73-70 í sjötta leik liðanna í Miami í fyrrinótt. Það var ljóst að leikmenn Miami ætluðu ekki að leyfa Pacers að sleppa auðveldlega frá verkefninu. Þeir byrjuðu með miklum látum strax í fyrsta fjórð- ung og náðu mest átta stiga for- skoti. Pacers náði þó að saxa á muninn og komust yfir rétt fyrir lok fyrri hálfleiks, 33-36. Liðið hélt fengnum hlut út þriðja leik- hluta en Miami var aldrei skammt undan. Þeir minnkuðu muninn í 71-67 þegar fáeinar mínútur voru til leiksloka en Jermaine O’Neal gulltryggði Pacers sigurinn með því að verja skot frá Caron Butler. O’Neal var ánægður með sigurinn en sagði að viðureignin hefði ver- ið erfið. „Heat er með mjög gott og vel þjálfað lið,“ sagði O’Neal. „Það þarf að hafa mikið fyrir sigri á þessum heimavelli.“ O’Neal gekk ekki vel í sókn- inni, skoraði aðeins sjö stig en tók 13 fráköst og spilaði góða vörn. Ron Artest var stigahæsti maður vallarins með 27 stig en í liði Heat var Dwayne Wade atkvæða- mestur með 24 stig. Með sigrinum er Indiana Pacers komið í úrslit austurdeild- arinnar og mætir Detroit Pistons eða New Jersey Nets, sem mætast í hreinum úrslitaleik í nótt. ■ REGGIE MILLER Skoraði fimmtán stig í sigri Indiana á Miami Heat. Indiana komið í úrslit austursins: O’Neal bjargaði Pacers BALLIÐ BÚIÐ? Framtíð Gerards Houlli- er ræðst á næstu dög- um og hann hefur fulla ástæðu til þess að hafa áhyggjur af stöðu mála.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.