Fréttablaðið - 20.05.2004, Síða 37
FIMMTUDAGUR 20. maí 2004
FÓTBOLTI Spænska liðið Valencia,
nýkrýndir Spánarmeistarar, bar
sigurorð af franska liðinu
Marseille, með tveimur mörkum
gegn engu í úrslitaleik
Evrópukeppni félagsliða sem
fram fór á Ullevileikvanginum í
Gautaborg í gærkvöld.
Valencia var sterkari aðilinn í
fyrri hálfleik án þess þó að ná
afgerandi tökum á leiknum.
Alger vendipunktur varð í
leiknum þegar komið var fram í
uppbótartíma í fyrri hálfleik en
þá braut Fabien Barthez,
markvörður Marseille, illa á
Miguel Mista innan vítateigs.
Barthez fékk rautt spjald og
Valencia víti sem Vicente skor-
aði úr af miklu öryggi.
Eftir þetta var ekki mikil
spenna og nokkuð ljóst hvoru
megin sigurinn myndi lenda.
Miguel Mista innsiglaði síðan
sigurinn með fallegu marki á 58.
mínútu og engin vafi á því hver
var maður leiksins en þetta var
tuttugasta og fimmta mark hans
á leiktíðinni.
Fyrsti Evróputitill Valencia
frá árinu 1980 því staðreynd en
þá vann liðið sigur í Evrópu-
keppni bikarhafa. Liðið hefur
tvisvar áður beðið lægri hlut í
úrslitaleik Meistaradeildar
Evrópu. ■
Lokahóf HSÍ fór fram í gærkvöld:
Arnór og Sylvia best
HANDBOLTI KA-maðurinn Arnór
Atlason var maður kvöldsins í
gær þegar HSÍ hélt árlegt lokahóf
sitt á Broadway. Arnór var valinn
handknattleiksmaður ársins auk
þess sem hann var valinn efnileg-
asti leikmaður ársins. Arnór, sem
gengur til liðs við þýska stórliðið
Magdeburg í sumar, var einnig
markahæsti leikmaður deildar-
innar sem og besti sóknarmaður-
inn.
Hin austurríska Sylvia
Strass, sem leikur með ÍBV, var
valin handknattleikskona ársins.
Strass var lykilmaður í sterku
liði ÍBV sem vann alla þrjá titla
vetrarins auk þess sem liðið
komst í undanúrslit í Áskor-
endakeppni Evrópu. Anna Úr-
súla Guðmundsdóttir var valin
efnilegasti leikmaðurinn hjá
konunum en litháíska stórskytt-
an Ramune Pekarskyte hjá
Haukum var besti sóknarmað-
urinn sem og markahæst í
RE/MAX-deild kvenna. ■
Valencia Evrópumeistarar félagsliða eftir sigur á Marseille:
Miguel Mista maður kvöldsins
ARNÓR ATLASON
Efnilegastur, markahæstur og bestur í sókn hjá körlunum. Þetta var kvöldið hans.
SYLVIA STRASS
Lykilleikmaður ÍBV var valin besti leikmaður ársins.
VERÐLAUN
RE/MAX-deild karla
Markahæsti leikmaður
Arnór Atlason KA
Besti varnarmaður
Júlíus Jónasson ÍR
Besti sóknarmaður
Arnór Atlason KA
Besti markmaður
Ólafur Helgi Gíslason ÍR
Besti þjálfari
Óskar Bjarni Óskarsson Val
Efnilegasti leikmaður
Arnór Atlason KA
Besti leikmaður
Arnór Atlason KA
Re/MAX-deild kvenna
Markahæsti leikmaður
Ramune Pekarskyte Haukum
Besti varnarmaður
Birgit Engl ÍBV
Besti sóknarmaður
Ramune Pekarskyte Haukum
Besti markmaður
Berglind Íris Hansdóttir Val
Besti þjálfari
Aðalsteinn Eyjólfsson ÍBV
Efnilegasti leikmaður
Anna Úrsúla Guðmundsd. Gróttu/KR
Besti leikmaður
Sylvia Strass ÍBV
VALENCIA EVRÓPUMEISTARI
Leikmenn nýkrýndra Spánarmeistara
Valencia sjást hér fagna verðskulduðum
sigri á Marseille í úrslitaleik Evrópukeppni
félagsliða.