Fréttablaðið - 20.05.2004, Page 39

Fréttablaðið - 20.05.2004, Page 39
31FIMMTUDAGUR 20. maí 2004 O U T L E T 1 0 F A X A F E N I 1 0I RISA GÖTUMARKAÐUR Í DAG Allt á 500 eða 900 Kr. (ÞÚ KAUPIR TVÆR FLÍKUR OG FÆRÐ ÞRIÐJU FRÍTT) ÞRIÐJA HVER FLÍK FRÍ !!! MERK JAVAR A Á ÓTR ÚLEGU VERÐ I s í m i 5 3 3 1 7 1 0m e r k i f y r i r m i n n a opið 12-18 í dag DKNY DIESEL LEVI'S INWEAR FCUK TARK WRANGLER LEE MATINIQUE 4YOU EVERLAST FILA STUDIO NY GERARD DAREL IMITZ SAINT TROPEZ KOOKAI MORGAN EINBEITTUR KONUNGUR Bandaríski blúsgítarleikarinn B.B. King er lifandi goðsögn í tónlistarheiminum og er jafnan talinn með betri gítarleikurum sögunnar. Hér sést King leika listir sínar á tónleikum í Kreml í Moskvu á dögunum. Vantaði greinilega ekkert upp á einbeitinguna hjá konungin- um frekar en fyrri daginn. TÓNLIST Söngkonan Björk, sem er að klára að taka upp næstu plötu sína, ætlar að gera aðra strax á eftir. Þetta kemur fram í viðtali sem tímaritið I-D tók við hana og hljómsveitina Sigur Rós. Þar kemur fram að Björk hlakki til að spila aftur á tónleik- um eftir að hafa verið í hljóðveri undanfarin misseri. „Þegar mað- ur er á tónleikaferðalagi getur verið erfitt að semja ný lög,“ sagði Björk. „Ég fór í tvær tón- leikaferðir í röð, vegna plötunn- ar Vespertine og Greatest Hits, og ætla því að verðlauna mig með því að gera tvær plötur í röð. Ég hef alltaf klárað plötu, hljóðblandað hana og farið á tón- leikaferðalag. Síðan hef ég hugs- að: „Hvað ef ég hefði verið heima í einn mánuð í viðbót?“ Stundum semurðu þitt besta efni þegar þú ert nýbúinn að hljóð- blanda og ert ennþá í stuði.“ ■ Maus hitar upp fyrir Placebo TÓNLIST Rokksveitin Maus kemur til með að hita upp Laugardalshöllina fyrir tónleika Placebo þann 7. júlí næstkomandi. Liðsmenn Placebo fengu afhenta nokkra geisladiska með íslenskum sveitum sem þóttu koma til greina. Musick, nýjasta breiðskífa Maus þótti falla best að eyrum og verður sveitin sú eina sem sér um upphitun. Maus mun leika í um þrjú korter, bæði eldra og splunkunýtt efni. Í haust gefur Skífan út tvöfalda safn- plötu með öllum þekktustu lögum Maus og einhverjum nýjum. Auk þess mun fylgja með sérstakur aukadiskur sem mun innihalda áður óútgefið efni. Hvort sem það eru óheyrðar útgáfur af eldri lögum, lög sem komust aldrei á breiðskífurnar, tónleikaupptökur eða endurhljóð- blandanir. Sveitin stefnir svo á út- gáfu sinnar sjöttu breiðskífu á næsta ári. Miðasala á Placebo fór vel af stað en fljótlega hægðist á sölunni eftir að tilkynnt var um tónleika Metallica í Egilshöll, þremur dögum fyrr. Eitthvað mun vera eftir af miðum ennþá. ■ Greenwood ráðinn til BBC TÓNLIST Jonny Greenwood, gítarleikari Radiohead, hefur verið ráðinn sem tónskáld hjá breska ríkisútvarpinu, BBC. Mun hann semja nýtt tónverk fyrir eina af útvarps- stöðvum stofnunarinnar. Reiknað er með að verk- efnið standi yfir í þrjú ár. Greenwood fær að nota alla tónlistaraðstöðu sem BBC getur boðið upp á, þar á með- al getur hann nýtt sér sinfón- íuhljómsveit útvarpsins. Anne Dudley, hljómborðs- leikari hljómsveitarinnar Art of Noise sem gerði garðinn frægan á níunda áratugnum, gegndi starfinu á undan Greenwood. Hlaut hún Ósk- arsverðlaunin árið 1997 fyrir tónlistina við myndina The Full Monty. Starf Greenwood, sem ein- nig er þrautþjálfaður lág- fiðluleikari, mun ekki stang- ast á við gítarspil hans með Radiohead. ■ MAUS Það er margt spennandi framundan hjá liðsmönnum Maus. Upphitun fyrir Placebo í júlí og safnplata með haustinu. AP /M YN D JONNY GREENWOOD Greenwood og félagar í Radiohead hafa verið þekktir fyrir tilraunastarfsemi á plötum sínum. Björk gerir tvær plötur BJÖRK Samkvæmt viðtali í tímaritinu I-D ætlar Björk að taka upp tvær plötur í röð áður en hún fer í tónleikaferð.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.