Fréttablaðið - 20.05.2004, Qupperneq 41
FIMMTUDAGUR 20. maí 2004 33
Fram koma:
• Lofgjörðarsveit Samhjálpar
• Rúnar Júlíusson
• Stoneslinger
• Edgar Smári Atlason
• Guðrún Gunnarsdóttir og Valgeir Skagfjörð
• Eyjólfur Kristjánsson
• Vinir Dóra
• Júlíana Þórólfsdóttir
og fleiri
TÓNLEIKAR Í FÍLADELFÍU
TIL STYRKTAR SAMHJÁLP
LAUGARDAGINN 22. MAÍ KL. 17
MIÐAVERÐ ER KR 2000
Miða er hægt að fá á skrifstofu Samhjálpar, Hverfisgötu 42
STYRKTARFÉLAG SAMHJÁLPAR
BILL BOURNE
Kominn hingað til lands í þriðja sinn. Hann kemur fram ásamt KK og Eivöru Pálsdóttur í
Stúdentakjallaranum í kvöld.
Nýkominn
úr Evróputúr
Við eigum greinilega eitthvaðsameiginlegt,“ segir Kristján
Kristjánsson tónlistarmaður um sig
og kanadíska vísnasöngvarann Bill
Bourne.
„Mér finnst hann skemmtilegur
tónlistarmaður og hann nýtur
mikillar virðingar í Kanada, fékk
meðal annars kanadísku Grammy-
verðlaunin.“
Allt frá því að Bill Bourne kom
hingað til lands í fyrsta sinn fyrir
nokkrum árum hafa þeir KK hald-
ið sambandi og starfað saman í
hvert sinn sem tækifæri hefur
gefist.
Nú er Bill kominn í þriðja sinn til
Íslands og þeir KK spiluðu og sungu
saman af hjartans lyst í Rósenberg-
kjallaranum um síðustu helgi.
Þeir ætla að endurtaka leikinn í
kvöld í Stúdentakjallaranum og
hafa nú fengið Eivöru Pálsdóttur
hina færeysku í lið með sér.
„Bill er að koma hingað úr Evr-
óputúr. Hann er með umboðsmann í
Þýskalandi og fer á hverju ári í túr
um Evrópu.“
Bill kom hingað fyrst í tengslum
við útgáfu Viðars Hreinssonar á
fyrra bindi ævisögu Stephans G.
Stephanssonar.
„Móðuramma Bills var dóttir
Stephans G. Hann kom svo aftur
hingað þegar seinna bindið kom út
og svo hafði hann núna samband við
mig og langaði að koma aftur. Og
mig langaði að fá hann.“
Þannig að hingað er hann kom-
inn, bæði til þess að spila með KK
og Eivöru og til þess að taka upp
plötu með KK.
„Við höfum talað um það lengi og
hún verður gefin út bæði hér á landi
og erlendis. Á henni verða lög eftir
okkur báða og líka eitthvað eftir
aðra tónlistarmenn.“
Tónleikarnir í kvöld hefjast
klukkan 21. Á laugardaginn ætla
þau Bill, KK og Eivör síðan að halda
lokatónleika sína í Salnum í Kópa-
vogi.
„Við spilum öll saman og sitt í
hvoru lagi og alla vegna,“ segir KK,
en segir þó ekkert hafa verið ákveð-
ið um hvort Eivör muni syngja eitt-
hvað með þeim Bill á plötunni vænt-
anlegu. ■
21.00 Biggi (Maus), Bob Justman, Viking
Giant (Heiðar Botnleðja) og Indigo halda tón-
leika á Bar 22. Biggi og Bob frumflytja eigið efni
sem er væntanlegt á breiðskífum þeirra. Indigo
og Giant Viking verða einnig með frumsamin lög
útgefin og óútgefin. Eftir tónleikana spilar Steini
í Quarashi nokkra vel valda rokkslagara.
Bubbi Morthens spilar og syngur í bíóinu á
Akranesi.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Græna landið eftir Ólaf Hauk Sím-
onarson á litla sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Vesturport sýnir Rómeó og Júlíu eftir
Shakespeare í Borgarleikhúsinu.
■ ■ LISTOPNANIR
13.00 Leikur og samtal fjölskyldunnar skip-
ar stóran sess á nýrri yfirlitssýningu á verkum Ás-
mundar Sveinssonar sem verður opnuð í Ás-
mundarsafni við Sigtún á afmælisdegi myndlist-
armannsins, sem fæddur var árið 1893.
Erla B. Axelsdóttir opnar 16. einkasýningu
sína í Kirkjuhvoli á Akranesi.
Hjá Handverki og hönnun í Aðalstræti 12
verður í dag opnuð sýningin Bókverk - bókalist.
■ ■ SKEMMTANIR
Stórdansleikur með hljómsveitinni Í svörtum
fötum á Broadway. Fyrsta ballið eftir Eurovision.
Hljómsveit Hilmars Sverrissonar skemmtir
á Rauða ljóninu.
■ ■ ÚTIVIST
09.00 Dagsganga Ferðafélags Íslands á Ok.
Þetta er bæði göngu og skíðaferð enda er að
sögn fararstjórans enn nægur snjór á fjallinu.
Brottför er frá Mörkinni 6. Ekið verður um Þing-
völl, norður undir Kaldadal þar sem gangan á
fjallið hefst. Fararstjóri Pétur Þorleifsson. Frí
þátttaka og allir sprækir göngumenn velkomnir.
■ ■ KVIKMYNDHÁTÍÐIR
Landvernd boðar til kvikmyndahátíðar
Náttúra Íslands í lifandi myndum í
Háskólabíói kl. 11–18. Frumsýning kl. 14
á mynd Páls Steingrímssonar um
Vatnajökul og nágrenni „World of
Solitude“. Passi á 1000 kr. gildir á allar
myndirnar meðan húsrúm leyfir.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
■ TÓNLEIKAR