Fréttablaðið - 04.03.2004, Side 9
FIMMTUDAGUR 4. mars 2004
Í átta ár hefur NTV boðið upp á Skrifstofu- og tölvunám. Á þessum árum
hefur námskeiðið þróast mikið og áherslur þess breyst í takti við tímann
og vinnumarkaðinn. Það er samdóma álit þeirra sem ljúka náminu að
það sé krefjandi en umfram allt uppbyggilegt, styrkjandi og skemmtilegt.
Námið er 258 stundir og skiptist í fjóra flokka:
Þetta er síðasta Skrifstofu- og tölvunámskeiðið
á þessari önn. Kennt er alla virka daga frá
kl. 8:15-12:15. Námskeiðið byrjar 22. mars.
- Windows stýrikerfið
- Word ritvinnsla
- Excel töflureiknir
- Power Point kynningarefni
- Access gagnagrunnur
- Internetið & Tölvupóstur
Tölvunám - 96 stundir
- Verslunarreikningur
- Bókhald
- Tölvubókhald Navision MBS®
Viðskiptagreinar - 108 stundir
- Tímastjórnun og
markmiðasetning
- Sölutækni og þjónusta
- Framsögn og framkoma
- Mannleg samskipti
- Streitustjórnun
- Atvinnuumsóknir
Sjálfsstyrking - 30 stundir
- Auglýsingatækni
- Markhópagreining
- Gerð birtingaráætlana
- Gagnvirk tenging forrita
- Flutningur lokaverkefnis
Lokaverkefni - 24 stundir
„Með náminu öðlaðist ég
hugrekki til að gera það
sem mig langaði til!“
Eftir að hafa unnið í matvöru-
verslun í 15 ár ákvað Elín að
fara í skóla og reyna fyrir sér
á öðrum starfsvettvangi. Hún
starfar í dag sem skrifstofu-
stjóri hjá BabySam á Íslandi.
Í tölvuhlutanum er lögð áhersla á þau forrit sem
nemandi þarf að kunna á til að öðlast TÖK-skírteini
sem er alþjóðleg viðurkenning á tölvukunnáttu hans.
NTV er eini skólinn þar sem öll 7 TÖK prófin og
alþjóðlegt prófskírteini er innifalið í náminu.
Kenndur er sá hluti stærðfræðinnar sem er mest notaður
á skrifstofunni og tekin fyrir flest þau atriði sem þarf til
að færa bókhald fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
NTV leggur mikið upp úr því að ná fram því besta úr
hverjum og einum nemanda. Það er ekki nóg að búa
yfir þekkingu og hæfileikum. Nemandinn þarf einnig
að þekkja styrk sinn og veikleika, kunna að stýra tíma
sínum, setja sér skýr markmið og kunna að selja öðrum
hugmyndir sínar og skoðanir.
„Skemmtilegasti og erfiðasti hluti námsins“ segja margir.
Unnið er í 3-4 manna hópum að markaðssetningu á
vöru eða þjónustu. Lokaverkefnisvinnan er skemmtileg,
krefjandi og framsett á þann hátt að hún taki á flestum
þáttum námskeiðsins.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS
Hlíðasmára 9 - Kópavogi
SKRIFSTOFU-
& TÖLVUNÁM
ATHAFNALÍF Leiðbeiningar um
stjórnarhætti í fyrirtækjum,
sem unnar hafa verið af Verslun-
arráði, Samtökum atvinnulífsins
og Kauphöll Íslands, verða
kynntar um miðjan mánuðinn.
Að sögn Þórs Sigfússonar, fram-
kvæmdastjóra Verslunarráðs, er
þar tekið heildstætt á málum
sem gagnast öllum hluthöfum og
styrkja innviði fyrirtækja.
Hann segir spennandi að far-
in sé sú leið að markaðurinn
setji sjálfur leiðbeiningar um
stjórnunarhætti og markaðurinn
veiti fyrirtækjum aðhald.
Um lagafrumvarp Einars K.
Guðfinnssonar og fleiri, sem
ætlað er að styrkja stöðu smárra
hluthafa, segir Þór að þar komi
fram hugmyndir sem séu að
sumu leyti ágæt viðleitni til að
auka traust minni hluthafa á
fyrirtækjum. „Það er þó ekki
farsælt að draga hluthafa í fyrir-
tækjum í dilka og reyna of mikið
með lögum og reglum að hafa
áhrif á völd tiltekinna hluthafa-
hópa,“ segir hann.
„Ég vil þó heldur sjá að tekið
sé heildstætt á þessum málum
og reynt að skoða hvernig megi
styrkja innra eftirlit hjá stjórn-
um fyrirtækja og efla stjórnirn-
ar. Það er hagur allra,“ segir
Þór. ■
STJÓRNMÁL Sex þingmenn úr öllum
flokkum og undir forystu Einars
K. Guðfinnssonar, Sjálfstæðis-
flokki, hafa lagt fram tvö frum-
vörp á Alþingi til breytinga á lög-
um um verðbréfaviðskipti og
hlutafélög. Að sögn Einars er
markmið lagabreytinganna að
tryggja betur stöðu smærri hlut-
hafa.
Í tillögunum er gert ráð fyrir
að einungis þurfi
stuðning 10 prósenta
hluthafa til þess að
fara fram á rannsókn
á málefnum tengd-
um félaginu en í nú-
gildandi lögum þarf
stuðning 25 prósenta
hluthafa. Þá eru til-
greint í lögunum að
óháð verðmat þurfi
að eiga sér stað þeg-
ar áhrifaaðilar félagi
í selja eignir til
hlutafélagsins.
Á lögum um verð-
bréfaviðskipti eru
lagðar til þær breyt-
ingar að þegar yfir-
tökuskylda myndast í
félagi sem lítil viðskipti eru með á
markaði skuli dómkvaddir menn
skera úr um verðmæti félagsins.
„Oft er erfitt að átta sig á því
hvert raunverulegt markaðsvirði
félaga er. Í flestum tilfellum er
þetta ekki vandamál vegna þess að
viðskipti með bréfin eru virk. En í
þeim tilfellum sem svo er ekki
myndast ekki raunverulegt mark-
aðsverð á hlutabréfin og þá þarf
eitthvert efnislegt úrræði sem
menn geta stuðst við,“ segir Einar
K. Guðfinnsson.
Í frumvarpinu er miðað við að
tiltekinn veltuhraði þurfi að vera á
bréfum á markaði til þess að verð-
myndun teljist vera eðlileg, ann-
ars séu dómkvaddir menn kallaðir
til verðmats.
Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt
í Viðskipta- og hagfræðideild Há-
skóla Íslands, segir hugsunina í
frumvarpinu vera
rétta en fyrir séu í lög-
um ákvæði sem eigi að
koma í veg fyrir hlut-
hafar geti haft annar-
legan ágóða af við-
skiptum við félög sem
þeir tengjast. Hann
segir að í frumvarpinu
sé verið að girða fyrir
að hlutafélög kaupi af
stjórnendum og hlut-
höfum á óeðlilegum
kjörum en ekki sé síð-
ur mikilvægt að koma
í veg fyrir að félög
selji stjórnendum og
stórum hluthöfum á
óeðlilegu verði.
Hann segir einn
helsta vanda smærri hluthafa fel-
ast í því að erfitt sé að sækja rétt
sinn. „Litlir hluthafar þurfa að
hafa afl og getu til að nota þessi
réttindi en eins og það er í dag
þarf mikla vinnu til að sækja rétt
sinn,“ segir Vilhjálmur.
Í frumvarpinu eru einnig lagð-
ar til breytingar á skilgreiningum
á því hvenær lögaðilar og einstak-
lingar teljist vera skyldir í skiln-
ingi laganna. ■
Í þágu smærri
hluthafanna
Þverpólitísk samstaða er um tvö frumvörp sem
miða að bættri stöðu smærri hluthafa. Kaup
hlutafélaga á eigum hluthafa þurfa að sæta mati.
EINAR K. GUÐFINNSSON
Segir lagabreytingarnar miða að því að tryggja rétt smærri hluthafa.
Stjórnarhættir í fyrirtækjum:
Nýjar reglur kynntar
VILHJÁLMUR BJARNASON
Segir erfitt fyrir smærri hlut-
hafa að sækja rétt sinn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T