Fréttablaðið - 04.03.2004, Side 22
Mig langar að gefa mér óperu-ferð og sjá Brúðkaup Fígarós
á næstu dögum,“ segir Friðrik Er-
lingsson rithöfundur sem á af-
mæli í dag. Friðrik heldur því
fram að trúlega sé hann sá af
sinni kynslóð sem hógværast
heldur upp á afmæli og sér í lagi
fertugasafmælið.
„Ég hitti fjóra vini mína á Vín-
barnum um áttaleytið og sátum
við til miðnættis. Á meðan við
spjölluðum drukkum við rauðvín
og átum smábrauð að hætti húss-
ins. Þetta var geysilega hógvært
fertugsafmæli. Ég kannski spring
út á fimmtugsafmælinu og geri þá
eitthvað brjálað.“
Friðrik starfar hjá Íslensku
auglýsingastofunni og hefur þann
sérstaka titil að vera krefjandi.
En hvað er að vera krefjandi?
„Þetta er starfsheiti sem ekkert
íslenskt orð hefur verið til yfir.
Enska heitið er „creative direct-
or“ og þegar horft er á orðið út-
leggst það á íslensku sem sköpun-
arferilsstjóri. Mér datt fyrst í hug
að nota orðið almáttugur. Það orð
lýsir starfinu sem kallar á að hafa
vit og skoðanir á öllum sköpuðum
hlutum í orðsins fyllstu merkingu.
Krefjandi fannst mér skemmti-
legt orð. Ég þarf stöðugt að gera
kröfur til annarra og um leið kröf-
ur til sjálfs mín, svo ég geti gert
kröfur á aðra. Þetta er allt saman
mjög krefjandi,“ segir hann og
hlær.
Fyrir utan að vera stöðugt
krefjandi segir Friðrik að ýmis-
legt sé í pípunum. „Ég sit ekki
beinlínis við skrif eftir að vinnu
lýkur en stefni engu að síður að
því. Ég er með ýmislegt í höndun-
um sem ég hef unnið lengi að og
efni sem útheimtir svolitla sagn-
fræðilega stúdíu og pælingar.“
Friðrik er höfundur sögunnar
um Litlu lirfuna ljótu sem fyrsta
íslenska tölvugerða teiknimyndin
var gerð eftir. Myndin hlaut mjög
góðar viðtökur og var sýnd víða
erlendis. „Þeir sem sáu myndina
eru spenntir að fá meira. Við
hugsuðum fyrstu myndina sem
kynningarmynd fyrir áframhald-
andi seríu en erfitt hefur verið að
finna hefðbundna styrktaraðila
kvikmynda hér innanlands til að
leggja okkur lið. Vandamálið hef-
ur verið að staðsetja og skilgreina
myndina til að hún falli í einhvern
úthlutunarflokk. Menn eru
óþreytandi að senda inn umsóknir
og vonandi opnast augu manna.“
Ljóst er að spennandi tímar
eru framundan hjá Friðriki og
hafði blaðamaður orð á því. „Það
er alltaf eitthvað spennandi
framundan hjá mér og alltaf eitt-
hvað að gerast. Lífið er ein stór
skemmtun.“ ■
22 4. mars 2004 FIMMTUDAGUR
Time Inc. og Warner Commun-ications Inc. tilkynntu ákvörð-
un um sameiningu fyrirtækjanna á
þessum degi árið 1989 en þar með
lágu fyrir drögin að stærsta fjöl-
miðlarisa heims.
Warner hafði á þessum tíma
verið arðbærasta kvikmyndafyrir-
tæki Bandaríkjanna í tuttugu ár og
Time var stærsti tímaritaútgefandi
landsins sem náði til allt að 30
milljóna lesenda í Bandaríkjunum
og 120 milljóna út um allan heim.
Sameinaða fyrirtækinu var gef-
ið nafnið Time Warner Inc. og var
metið á 18 milljarða dollara og árs-
tekjur voru áætlaðar um 10 millj-
arðar dollara.
Yfirmenn fyrirtækjanna sögðu
sameininguna vera viðbragð við
breyttum aðstæðum með tilkomu
innri markaðar Evrópubandalags-
ríkjanna en einungis öflugar
bandarískar einingar myndu kom-
ast af í breyttu umhverfi. Samning-
urinn gerði ráð fyrir að Time eign-
aðist Warner og þar með fæddist
stærsti tónlistar-, tímarita- og
bókaútgefandi heims sem einnig
var öflugastur á sviði kvikmynda-
gerðar og framleiðslu sjónvarps-
efnis fyrir kapalsjónvarp.
Bæði fyrirtækin voru stofnuð
1923 og með aðalstöðvar í New
York. ■
Kristinn Arnarson hefur tekiðvið starfi stjórnanda bóka-
klúbba hjá Eddu útgáfu þar sem
hann mun koma að mjög ólíkum
verkefnum, allt frá bókum um
tertuskreytingar til Andrésar And-
ar með viðkomu í heimsbókmennt-
unum. „Það má segja að ég sé kom-
inn heim aftur,“ segir Kristinn en
hann starfaði hjá Vöku-Helgafelli
allt til 1996, þegar hann hvarf til
annarra starfa, nú síðast sem út-
gáfustjóri Skerplu ehf.
„Bókaklúbbar eru eitthvað sem
ég hef mikinn áhuga á, ekki síst
þróunarstarfið, að vinna að nýjum
verkefnum; í því sé ég mikla
möguleika í klúbbum og áskrift-
um.“
Fyrsta stóra verkefni Kristins
er nýr bókaklúbbur sem er að
hefja göngu sína og kallast Hug-
myndabanki heimilanna. „Þetta er
klúbbur þar sem sköpunargleðin
ræður ríkjum og í bókunum verð-
ur fjölbreytt efni sem tengist tóm-
stundum heimilanna. Fyrsta bókin
fjallar um tertuskreytingar og síð-
an koma bækurnar Málað á tré og
gler og Blóm og servíettur.“
Fleiri verkefni bíða Kristins
eins og undirbúa stóra afmælis-
veislu fyrir sumarið. „Það er ein
góð önd sem á sjötugsafmæli í júní
og það væri gaman að halda upp á
það.“ ■
Afmæli
FRIÐRIK ERLINGSSON
■ rithöfundur er 42 ára í dag og langar
að gefa sjálfum sér óperuferð. Hann
útilokar ekki að hann rasi almennilega út
á fimmtugsafmælinu.
PATSY KENSIT
Söng- og leikkonan er 36 ára í dag. Hún
kom einu lagi á vinsældalista með hljóm-
sveit sinni Eighth Wonder og stjarna henn-
ar reis hæst í bíó þegar hún lék á móti Mel
Gibson í Leathal Weapon 2. Hún var um
tíma eiginkona Liams Gallagher úr Oasis.
4. mars
■ Þetta gerðist
TIME WARNER
■ Þessi öflugu fjölmiðla- og
útgáfufyrirtæki sameinuðust í öflugasta
fjölmiðlarisa heims.
4. mars
1989
HÖFUÐSTÖÐVAR TIME
WARNER Í NEW YORK
Fjölmiðlarisinn kom sér fyrir í þessu litla
borgvirki í heimaborg sinni.
Fjölmiðlarisi verður til 1634 Samuel Cole opnar fyrstu kránna
í Boston.
1801 Thomas Jefferson er fyrsti forseti
Bandaríkjanna sem sver
embættiseið í Washington.
1861 Abraham Lincoln tekur við
embætti forseta Bandaríkjanna.
1933 Fyrsta kjörtímabil Franklins D.
Roosevelt sem forseti Bandaríkj-
anna hefst.
1952 Ronald Reagan,
kvikmyndaleikari
og síðar ríkisstjóri
í Kaliforníu og
forseti Bandaríkj-
anna, gengur að
eiga Nancy Davis.
Bókaútgáfa
KRISTINN ARNARSON
■ Nýr stjórnandi bókaklúbba
hjá Eddu útgáfu
Vildi vera almáttugur
en varð krefjandi
FRIÐRIK ERLINGSSON
Hefur í nógu að snúast og segir að lífið sé ein stór skemmtun.
■ Andlát
Hlynur Júlíusson, Þórðarsveig 5, Reykja-
vík, lést mánudaginn 1. mars.
Sigurlaug Guðlaugsdóttir, Ási, Vatnsdal,
lést sunnudaginn 15. febrúar. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey.
Sigríður Björnsdóttir frá Ormsstöðum,
Eiðaþinghá, lést þriðjudaginn 10. febrú-
ar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Stefán Björn Ólafsson, múrarameistari,
Ólafsvegi 2, Ólafsfirði, lést sunnudaginn
29. febrúar.
Þuríður Eyjólfsdóttir, Haukeland Topp-
enhaugveien 9, Drammen, Noregi, lést
mánudaginn 1. mars. Útförin fer fram í
Drammen þriðjudaginn 9. mars.
■ Andlát
13.30 Svandís Elimundardóttir frá
Dvergasteini, Hellissandi, verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavík.
Sér mikla möguleika í bókaklúbbum
Greipur
eða Garpur
Ég hugsa að ég vildi heita Greip-ur eða Garpur. Af því að Greip-
ur er til í fjölskyldunni og Garpur
er svo íslenskt og þjóðlegt,“ segir
Hjalti Árnason lyftingakappi.
„Ég er mjög hrifinn af íslensk-
um nöfnum. En vil samt hafa bara
eitt nafn en ekki tvö. En annars
var ég skírður Hjalti eftir sögun-
um um Hjalta litla eftir Stefán
Jónsson. Mér var sagt það seinna
meir. Annars er ég alveg sáttur
við nafnið mitt. Það er komin af
hjöltum, sverðahjöltum. Þegar
haldið er á sverði eru hjöltin
krossinn sem lófinn nemur við og
kemur í veg fyrir að höndin renni
fram á sverðið.“ ■
Hvað vildirðu heita
ef þú hétir ekki...?
■ Afmæli
Árni Snævarr, blaðamaður og fjölmiðla-
fulltrúi í Kosovo, er 42 ára.
KRISTINN ARNARSON
Byrjar á bók um tertuskreytingar í nýjum
bókaklúbbi en þarf svo að fara að huga að
afmæli Andrésar Andar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R