Fréttablaðið - 04.03.2004, Side 45
Fréttiraf fólki
45FIMMTUDAGUR 4. mars 2004
20% afsláttur fyrir korthafa VISAÞAR SEM ÍSLENDINGUM FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA
FRÍTT INN MILLI KL. 11 OG 12
FRÍTT INN MILLI KL. 11 OG 12
06.-03.’04LAUGARDAG
05.-03.’04FÖSTUDAG
GUS GUS
STRAUMAR
& STEFÁN
Leikkonan Renée Zellwegerlenti í leiðinlegri lífsreynslu
strax að lokinni Óskarsverðlauna-
afhendingu.
Hún fór og
fagnaði sigri
sínum á vel
þekktum veit-
ingastað í Los
Angeles en
ákvað að skilja
styttuna sína
eftir í límósín-
unni sem hún ferðaðist með það
kvöldið. Síðar þegar hún ætlaði
að ná í hana aftur fann hún hana
ekki og brast í grát. Svo, þegar
hún var búin að vola nær allan
vökva úr líkama sínum og ásaka
bílstjórann um stuld, áttaði hún
sig á því að hún var að leita í
rangri límósínu. Eftir að hafa
fundið styttuna aftur sór hún
þess eið að skilja hana aldrei eft-
ir aftur á glámbekk.
Forseti Suður-Afríku lofsöngleikkonuna Charlize Theron
eftir að hún vann Óskarsverð-
launin aðfaranótt mánudags fyrir
besta leik í aðalhlutverki. Theron
er fædd og uppal-
in í landinu og
kastaði kveðju
til þjóðarinnar í
þakkarræðu
sinni. Thabo
Mbeki sagði að
þjóðin væri
stolt af henni og
sagði hana tákn-
mynd hinnar
sterku suður-
afrísku konu.
Elton John segistvilja giftast elskhuga sínum til
margra ára, David Furnish. Hann
sagði í viðtali að hann biði eftir
því að brúðkaup samkynhneigðra
yrðu lögleidd í Bretlandi. Þetta
yrði annað brúðkaup hans því
árið 1984 giftist hann Renate
Blauel en hjónaband þeirra end-
ist aðeins í fjögur ár. Kannski
vegna þess að
Elton var einum
of mikill hommi
fyrir eiginkonu
sína. Elton gæti
fengið ósk sína
uppfyllta mjög
bráðlega því fljót-
lega verður það tekið upp á
breska þinginu hvort lögleiða eigi
hjónabönd samkynhneigðra.
Flestir virðast bjartsýnir á að það
komist í gegn, þar á meðal Breta-
drottning.
Kylie Minogue neyddist til þessað taka myndavél af æstum
aðdáanda á tónleikum á GAY-
klúbbnum í London um
helgina. Ástæðan var
sú að sjónarhorn
hans var þannig að
hann hefði getað
tekið ansi margar
myndir undir pils
hennar. Þetta lík-
aði Kylie ekki og lét
lífvörð sinn sækja
myndavélina úr
höndum mannsins.
Henni var þó skil-
að til baka, filmu-
lausri, eftir tón-
leikana.
VIVIENNE WESTWOOD
Breski fatahönnuðurinn Vivienne Westwood
átti góða sýningu í París í gær. Þar sýndi
hún meðal annars þessa litríku flík sem
saumuð er saman úr hinum ýmsu efnum.
Pondus
Hey, Anna! Viltu
koma út að leika?
Jæja,
félagi...
meira góða
ráðið að
kasta steini
í gluggann!
SMÁSTEINI,
KJARRI,
SMÁSTEINI!