Fréttablaðið - 19.03.2004, Side 41
FÖSTUDAGUR 19. mars 2004 41
Ársfundur Séreignalífeyrissjó›sins ver›ur haldinn
29. mars 2004, kl. 17.15 í höfu›stö›vum KB banka
a› Borgartúni 19, 4. hæ›.
Stjórn sjó›sins vill hvetja sjó›félaga til a› mæta á fundinn.
1. Fundarsetning.
2. Sk‡rsla stjórnar.
3. Ársreikningur fyrir li›i› starfsár lag›ur fram.
4. Tryggingafræ›ileg úttekt.
5. Fjárfestingarstefna sjó›sins.
6. Sameining Séreignalífeyrissjó›sins og Frjálsa lífeyrissjó›sins.
7. Önnur mál.
DAGSKRÁ
ÁRSFUNDUR
SÉREIGNALÍFEYRISSJÓ‹SINS
Hingað til lands kemur á Lista-hátíð í vor karlakór St. Basils-
dómkirkjunnar í Moskvu. Þessi
kór syngur jöfnum höndum rúss-
nesk þjóðlög og miðaldatónlist
ásamt tónlist sem flutt er við
guðsþjónustur í rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjunni.
Í kórnum eru bæði óperu-
söngvarar og poppsöngvarar, þar
á meðal Mikhaíl nokkur Serissjev,
sem mun vera fræg þungarokk-
stjarna í Rússlandi. Þar að auki er
hann þekktur borðtennisleikari.
St. Basils-kórinn hefur að
undanförnu verið að leita að
dreng til að syngja með þeim; sá
sem var fyrir er kominn í mútur!
Þeir hafa vikum saman hlustað á
drengi í drengjakórum og tónlist-
arskólum og hafa prófað mikinn
fjölda. Nú er loksins kominn botn
í það mál og hafa þeir fengið 12
ára dreng, sem þeir segja að sé
stórkostlegur og stundar söng-
nám í besta tónlistarskóla sinnar
tegundar í Moskvu.
Frá því miðasala Listahátíðar
hófst hefur gríðarleg aðsókn ver-
ið á tónleika þessa kórs, og það
þrátt fyrir að þeir hafi nánast ekk-
ert verið auglýstir. Tónleikar
kórsins hér á landi verða tvennir,
þann 15. maí klukkan 17 og klukk-
an 23.
Þeir sem ekki fá miða geta
huggað sig við að tónleikarnir
verða í beinni útsendingu í Sjón-
varpinu, en auk þess mun kórinn
væntanlega syngja í lokaðri guðs-
þjónustu fyrir fólk í rétttrúnaðar-
kirkjunni, sem býr hér á landi. ■
Þungarokkari í
munkakórnum
Þeir Ívar og Jóhann Helgi, semstanda fyrir Warp-kvöldunum á
Kapítal, eru sann-
færðir um að
breski tónlistar-
maðurinn Chris
Clark sé alger
snillingur. Þeir
hafa fengið hann
til landsins og í
kvöld verður hann
á Kapítal þar sem
hann spilar á
græjur sínar.
„Þetta er 23
ára strákur frá Brighton. Hann er
búinn að gefa út þrjár plötur, og
það kom fljótt í ljós að hann er al-
ger snillingur,“ segir Jóhann
Helgi. „Hann spilar svona sam-
suðu af electro, hip hop, drum &
bass og techno.“
Warp-kvöldin á Kapítal eiga að
verða mánaðarlegir viðburðir. Jó-
hann Helgi segir jafnan vera gríð-
arlega stemningu á þessum kvöld-
um, og það borgi sig fyrir fólk að
mæta snemma til að komast ör-
ugglega inn. Plássið er ekki það
mikið.
Ásamt Chris Clark koma einnig
fram í kvöld Midijokers,
Mastermind, Einóma, Sunboy og
Biggi veira. ■
CHRIS CLARK
Spilar á græjur
sínar á Kapítal
ásamt nokkrum
plötusnúðum.
„Hann er alger snillingur“
Eins og hálfur helmingur afhálfum fjórðaparti af hálfri
köku,“ segir Birgir Andrésson
vera einkunnarorð sýningar sinn-
ar, sem hann opnaði í galleríinu i8
við Klapparstíg í gær.
Hann sýnir þar bæði blýants-
teikningar af hafi og svo textalýs-
ingar á hestum, sem eru svipaðar
þeim mannlýsingum sem hann
hefur gert og margir kannast við.
„Ég er líka með eitt veggmál-
verk, sem er þungamiðjan í sýn-
ingunni. Svo er ég með litlar sæt-
ar punktamyndir niðri, og ljós-
myndir líka; grófar hestamyndir
sem ég hef fundið hér og hvar og
stækkað mikið.“
Birgir segist annars ekki hafa
mikið að segja um sýninguna,
enda önnum kafinn við að setja
hana upp þegar blaðamaður
heyrði í honum í gær.
„Þetta fjallar bara um liti og
myndir, og hvernig þær birtast. En
sjón er sögu ríkari,“ segir hann, og
bætir því við að vinur hans, Krist-
inn E. Hrafnsson, sé einnig þátt-
takandi í þessari sýningu.
„Hann er með heljarmikinn
skúlptúr sem er eins og ballest í
sýningunni. Það er bara raftur úr
húsi sem er steyptur í pottjárn. Á
honum standa orðin „hugsanlegt“
og „áþreifanlegt“.“
Sýningin stendur til 30. apríl og
er opin fimmtudaga og föstudaga
milli klukkan 11 og 18.
Birgir er annars nýkominn frá
Danmörku þar sem hann var að
opna sýningu. Þar sýnir hann
einnig bæði ljósmyndir af hestum
og veggmálverk.
„Þar var ég líka með hluti sem
sýnast bæði nær en þeir eru og
fjær en þeir eru.“ ■
Einn af sextíu og fjórum
BIRGIR ANDRÉSSON
Hann opnaði í gær sýningu í
gallerí i8 við Klapparstíg.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
■ MYNDLISTARSÝNING
■ LISTAHÁTÍÐ
■ TÓNLIST
RÚSSNESKA ÞUNGAROKKSVEITIN
MASTER
Mikhaíl Serissjev, sem mun vera þriðji frá
vinstri á þessari mynd, lætur sig ekki muna
um að syngja þungarokk með vinsælli
hljómsveit milli þess sem hann syngur í
guðsþjónustum við Rauða torgið.
ST. BASILS-KÓRINN
Þessi rússneski karlakór syngur hér á landi
á Listahátíð í vor.