Fréttablaðið - 25.05.2004, Síða 15
15ÞRIÐJUDAGUR 25. maí 2004
tvísýna baráttu við dr. Gunnar
Thoroddsen. Geir myndaði síð-
an ríkisstjórn eftir stórsigur
flokksins í alþingiskosningum
1974 og var forsætisráðherra til
1978. Þorsteinn Pálsson var
kjörinn formaður á landsfundi
haustið 1983. Þorsteinn varð
forsætisráðherra eftir kosning-
ar 1987 en stjórn hans varð
skammlíf. Þann 10. mars 1991
bar Davíð Oddsson sigurorð af
Þorsteini í afar tvísýnum for-
mannslag á landsfundi. Davíð
stýrði flokknum síðan til sigurs
í kosningum þá um vorið og hef-
ur síðan gegnt embætti forsæt-
isráðherra.
Það segir sína sögu um for-
ystuhlutverk Sjálfstæðisflokks-
ins að af sjö formönnum hans
hafa sex orðið forsætisráðherra.
Sá sem varð ekki forsætisráð-
herra, Jón Þorláksson, var borg-
arstjóri Reykvíkinga í for-
mennskutíð sinni. ■
Guðjón A. Kristjánsson:
Foringja-
dýrkun
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN Guðjón
Arnar Kristjánsson, formaður
Frjálslynda flokksins, er ekki
hrifinn af þróun
síns gamla flokks.
„Mér finnst gæta
mikillar ofstjórn-
unar og foringja-
dýrkunar. Mér
finnst einnig að
iðulega hafa verið
gengið þannig
fram með laga-
setningu að það
hafi rýrt lýðræðið
í landinu og at-
vinnurétt hinna
dreifðu byggða.“
„Ég vona að flokkurinn eigi eft-
ir að breytast í aðra veru en hann
hefur verið að þróast á síðustu
árum,“ sagði Guðjón. ■
Afganistan:
Fyrsti norski
hermaður-
inn fallinn
AFGANISTAN Fyrsta mannfall Norð-
manna í baráttunni gegn hryðju-
verkamönnum er staðreynd. Á
sunnudagskvöld lést norskur her-
maður af sárum sínum eftir árás
talibana á bílalest hermanna í
Afganistan. Var hann ásamt félög-
um sínum á heimleið til höfuð-
stöðva sinna í Kabúl þegar árásin
var gerð en aðrir í bíl hans sluppu
ómeiddir. Eru Norðmenn minntir
óþægilega með þessum hætti á að
þrátt fyrir að stríðið í Afganistan
hafi fallið í skuggann á öðrum
átökum er langur vegur frá því að
þar sé búið að reka hermenn tali-
bana frá landinu. ■
Spánn:
Áhorfsmet á
brúðkaup
SPÁNN Rúmlega 25 milljónir
Spánverja sátu sem fastast fyrir
framan sjónvarpsskerminn á
laugardaginn var þegar Felipe
Spánarprins giftist sjónvarps-
stjörnunni Letizíu Ortís í beinni
útsendingu spænska ríkissjón-
varpsins. Er þetta áhorfsmet í
landinu samkvæmt tölum TVE
en fyrra met vegna viðburðar af
þessu tagi voru 22 milljónir
manna. Meðaláhorf hvers og
eins var mælt 94 mínútur alls. ■
ÁTÖK Í AFGANISTAN
Langur vegur er frá því að ástandið sé
orðið tryggt í Afganistan þrátt fyrir loforð
Bandaríkjamanna þar um.
HJÓNABANDIÐ INNSIGLAÐ
Brúðkaup Felipe Spánarprins og unnustu
hans vakti gríðarlega athygli á Spáni.
M
YN
D
/A
P
GUÐJÓN A.
KRISTJÁNSSON
Steingrímur J. Sigfússon:
Þarf hvíld
frá völdum
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN „Ég óska
flokknum til hamingju, það er
ekki annað við hæfi á tímamótum
í sögu stórra hreyfinga, hvort sem
maður er þeim fylgjandi eða
ekki,“ sagði Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður Vinstrigrænna.
Orðið sem mér
dettur í hug sem
lýsir ástandi
flokksins nú um
stundir er orðið
valdþreyta, flokk-
urinn þarfnast
sárlega hvíldar
frá völdum og
endurhæfingar.“
Hann segir
flokkinn hafa ver-
ið gríðarlega öfl-
uga valdastofnun í landinu, meira
og minna allan sinn tíma. „Sem
betur fer hefur verkalýðshreyf-
ingin og harðsnúnir vinstrisinnað-
ir stjórnmálaflokkar tryggt nokk-
uð mótvægi við hann,“ sagði
Steingrímur. ■
STEINGRÍMUR
SIGFÚSSON