Fréttablaðið - 25.05.2004, Blaðsíða 30
22 25. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
■ AFMÆLI
Fyrsta Stjörnustríðsmyndin(Star Wars) var frumsýnt fyr-
ir 27 árum í dag, eða 1977. Mynd-
in varð strax mjög ofarlega á öll-
um vinsældarlistum og sló hvert
aðsóknarmetið á fætur öðru.
Myndin hlaut samtals sex Ósk-
arsverðlaun fyrir bestu sviðs-
mynd, búninga, tæknibrellur,
klippingu, tónlist og hljóðvinnslu.
Auk verðlaunanna var leikstjóri
myndarinnar, George Lucas, til-
nefndur fyrir bestu leikstjórn,
myndin var tilnefnd sem besta
myndin auk þess sem Alec
Guinness var tilnefndur fyrir
besta leik í aukahlutverki.
Myndin var að mestu tekin í
Túnis, Gvatemala og í Kaliforníu.
Tæknin sem notuð var í myndinni
hafði ekki sést áður á hvíta tjald-
inu og vakt því mikla athygli. Ge-
orge Lucas tefldi fram í aðalhlut-
verkum þremur ungum og
óþekktum leikurum, Marki Hamil
sem Luce Skywalker, Harrison
Ford sem Han Solo og Carrie Fis-
her sem Prinsessan Leia.
Myndin var endurútgefin árið
1997 og nýtur enn gríðarlega vin-
sælda. Þeir listar sem gerðir hafa
verið yfir bestu myndir allra
tíma innihalda iðulega þessa
fyrstu Stjörnustríðsmynd enda
áhrif hennar á kvikmyndaheim-
inn mikil. ■
■ ANDLÁT
Aðalsteinn Axelsson, fyrrum bifreiða-
stjóri, Grenivöllum 28, Akureyri, lést
laugardaginn 22. maí.
Bára Helgadóttir, Unufelli 29, Reykjavík,
lést miðvikudaginn 12. maí.
Guðmundur Sigurðsson, Hörgslundi 4,
Garðabæ, lést föstudaginn 14. maí í
Brighton, Englandi.
■ JARÐARFARIR
13.30 Bára Kjartansdóttir frá Mið-
hvammi, til heimilis að Byrgis-
holti, Aðaldal, verður jarðsungin
frá Húsavíkurkirkju.
13.30 Stefán Sigurðsson frá Reyðará í
Lóni, verður jarðsunginn frá
Hveragerðiskirkju.
13.30 Þorsteinn Gestur Eiríksson
hljómlistarmaður, Álftamýri 24,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju.
15.00 Bergur Eiríksson, Austurbrún 6,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju.
15.00 Guðmundur S. Thorgrímsen
verður jarðsunginn frá Grensás-
kirkju.
15.00 Ingvar Daníelsson, Hólabergi 76,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju.
Jón Kjartansson frá Pálmholti er 74 ára.
Hugo L. Þórisson sálfræðingur er 55 ára.
Jóhannes Karl
Guðjónsson
knattspyrnumaður
er 24 ára.
Þetta er eins og hver annardagur og ekkert planað í til-
efni dagsins,“ segir Jóel Pálsson,
saxófónleikari sem er 32 ára í
dag. Aðspurður segir Jóel hafa í
ýmsu að snúast þessa dagana.
Hann var að ljúka við gerð tón-
listar við dansverk Íslenska
dansflokksins, en verkið var sýnt
á opnun listahátíðar fyrr í mán-
uðinum. Auk þess spilar Jóel í
Edith Piaf en sýningin var frum-
sýnd á dögunum í Þjóðleikhúsinu
og er uppselt á flestar sýningar
fram í miðjan júní.
Jóel segist ekki vanur að halda
upp á afmæli sitt heldur kýs hann
fremur að fara út að borða með
konu sinni. 32 ára afmælið verð-
ur engin undantekning að því
leyti að veisla hefur ekki verið
skipulögð. „Ætli kvöldinu verði
ekki eytt í faðmi fjölskyldunnar,“
segir Jóel.
Þegar Jóel er inntur eftir eft-
irminnilegasta afmælisdeginum
kveðst hann ekki muna eftir ein-
um degi frekar en öðrum, í minn-
ingunni ber 25. maí þó alltaf upp
á góðviðrisdegi. „Ætli ég hafi
ekki eytt ófáum afmælisdögum í
útiveru þegar ég var yngri. Ég
var ekkert sérstaklega mikið af-
mælisbarn en man þó eftir ein-
hverri spennu sem tengdist deg-
inum,“ segir Jóel og bætir við að
nú taki hann deginum svona
mátulega hátíðlega. „Eitt af því
merkilegra við daginn er að
Miles Davis á sama afmælisdag
og ég,“ bætir Jóel við hlæjandi.
„Nú er bara að bíða og sjá hvort
veðrið verði ekki frábært eins og
á mínum yngri árum,“ segir Jóel
að lokum. ■
AFMÆLI
JÓEL PÁLSSON
■ er 32 ára í dag. Ætlar að eyða
deginum með fjölskyldunni.
LAURYN HILL
Afmælisbarn dagsins er 29 ára. Lauryn er
söngkona og hefur getið sér gott orð með
hljómsveitinni The Fugees auk þess sem
hún hefur gefið út sólóplötu.
25. MAÍ
HAMELL, FISHER OG FORD
Hér sjást ungu og óþekktu leikararnir í
hlutverkum sínum í fyrstu
Stjörnustríðsmyndinni.
Fyrsta Stjörnustríðsmyndin
FYRSTA STJÖRNUSTRÍÐSMYND-
IN FRUMSÝND
■ Leikstjórinn George Lucas frumsýndi
Stjörnustríðsmynd sína á þessum degi
fyrir 27 árum.
25. MAÍ 1977
Við þökkum innilega þeim fjölmörgu sem sýndu okkur samúð
og hlýhug í orði og verki í veikindum, við andlát og útför okkar
elskaðrar móður, sambýliskonu, tengdamóður og ömmu
Gerðar Sigfúsdóttur
Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeildar Landspítalans
og líknardeildarinnar í Kópavogi.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Karl Sesar Sigmundsson
Sveinbjörg Sigurðardóttir Gunnrún Gunnarsdóttir
Magnús G. Helgason Friðrik Marinó Friðriksson
Helgi Magnússon Guðrún Inga Grétarsdóttir
Gerður Lind Magnúsdóttir Ingunn Hlín Friðriksdóttir
Guðbjartur Magnússon Arnar Már Friðriksson
Sólrún Dögg Magnúsdóttir Gunnar Friðriksson
JÓEL PÁLSSON
Saxófónleikarinn hefur í
nógu að snúast þessa
dagana. Hann leikur
meðal annars í Edith
Piaf í Þjóðleikhúsinu.
Sama afmælisdag og
Miles Davis
Bókmenntaverðlaun norrænnaglæpasagna, Glerlykillinn,
voru afhent með viðhöfn í Nor-
ræna húsinu nú um helgina. Að
þessu sinni féllu þau í skaut Norð-
manninum Kurt Aust, fyrir bók-
ina Hjemsökt eða Heimsókn eins
og það myndi útleggjast á ís-
lensku. Þetta er þriðja skáldsaga
Austs og jafnframt þriðja sagan
um félagana Thomas af
Boueberge, prófessor við Kaup-
mannahafnarháskóla og norska
sveitapiltinnÝog munaðarleys-
ingjann Petter Hortten, aðstoðar-
mann hans. Sagan gerist, eins
ogÝfyrri tvær skáldsögur Austs, í
upphafi 18. aldar. Hér greinir frá
ýmsum hremmingum sem sögu-
maður lendir í þegar honum er
falið að fylgja útsendara páfa-
garðs um hið harð- og strjálbýla
heimaland sitt, Noreg árið 1703.
Bókin var valin besti norski
reyfarinn í fyrra en stjarna Aust
hefur farið rísandi í heimalandi
hans. Í umsögn um bókina er hún
sögð feikilega vel heppnuð og vel
unnin söguleg glæpasaga, sem
tekur á þeim miklu breytingum
sem áttu sér stað á sviði heim-
speki og vísinda um aldamótin
1700 og sagan sé miklu meira en
„bara“ glæpasaga. Íslendingar
sáu á eftir Glerlyklinum í ár en
Arnaldur Indriðason hlaut hann
síðustu tvö skiptin. ■
VERÐLAUN
GLERLYKILLINN AFHENTUR
■ Kurt Aust valinn besti norræni glæpa-
sagnahöfundur síðasta árs.
Glerlykillinn til Noregs
KRISTINN KRISTJÁNSSON
Formaður Hins íslenska glæpafélags sem stóð að afhendingu Glerlykilsins
í Norræna húsinu um helgina.
■ ÞETTA GERÐIST
1787 Stjórnarskrárráðstefna er sett í
Philadelphiu, Bandaríkjunum.
1810 Uppreisn Argentínu gegn Spáni
hefst.
1895 Leikskáldið Oskar Wilde er dæmt
í fangelsi vegna blygðunarbrota.
1946 Transjórdanía, sem nú heitir
Jórdanía, verður konungdæmi.
1961 John F. Kennedy, forseti Banda-
ríkjanna, leggur það til að maður
verði sendur til tunglsins fyrir lok
áratugarins.
2002 Meira en 200 manns láta lífið
þegar kínversk farþegaþota,
Boeing 747, fórst.