Fréttablaðið - 13.06.2004, Side 8
8 13. júní 2004 SUNNUDAGUR
Eldri dóttir Saddams Hussein segir líf sitt fullt af
þjáningum:
Vill aftur til Íraks
EGYPTALAND, AP „Ef aldur væri
mældur í angist og depurð hefði
ég orðið áttræð í dag,“ sagði
Raghad, elsta dóttir Saddams
Hussein, í samtali við kvenna-
tímaritið Sayidaty. Hún segir líf
sitt hafa verið fullt af andlegri
þjáningu og að hún myndi snúa
aftur til Íraks ef hún ætti þess
kost. Skilaboð hennar til föður
síns væru einföld: „Ég elska
þig.“
Raghad, Rana systir hennar
og börn þeirra héldu til Jórdaníu
í fyrra eftir innrás Bandaríkja-
manna og Breta í Írak og hafa
búið þar síðan. Viðtalið í
Sayidaty er fyrsta blaðaviðtalið
sem hún veitir frá þeim tíma.
Systurnar héldu sig út af
fyrir sig í Írak á sínum tíma og
var samband þeirra við föður
sinn slæmt um tíma en árið 1996
fyrirskipaði hann að eiginmenn
þeirra yrðu teknir af lífi. Rag-
had sagðist hafa fengið bréf frá
föður sínum fyrir milligöngu Al-
þjóða rauða krossins en að þrjár
af sex línum bréfsins hefðu ver-
ið þurrkaðar út. Bréfin fóru í
gegnum ritskoðun Bandaríkja-
hers.
Raghad sagðist sakna Íraks.
„Ef ég hefði tækifæri myndi ég
fara þangað aftur fljótar en þú
getur ímyndað þér.“ ■
Fjöldi vopna óskráður
Skotvopnaskrá ríkislögreglustjóra verður fullkláruð árið 2010. Eftirlit
með vopnum var lengi dapurt segir formaður Skotvís.
SKOTVOPN Alls eru 71 skotvopn
stolið eða týnt samkvæmt upp-
lýsingum úr skotvopnaskrá rík-
islögreglustjóra, þar af hafa
sextán glatast síðan árið 2000.
Samkvæmt skránni eru um
50.000 skráð skotvopn á landinu.
Snorri Sigurjónsson hjá ríkis-
lögreglustjóra segir að allur
gangur sé að því að stolin eða
týnd skotvopn komi í leitirnar,
en fleiri skili sér heldur en
færri. Flest
stolnu vopnanna
eru haglabyssur
en engin óhefð-
bundin skotvopn
eins og skamm-
byssur eru á skrá
yfir óskilamuni.
Árið 2000 var
hafist handa við
gerð skotvopnaskrár og voru þá
allar upplýsingar lögreglu-
umdæma landsins um skráð
skotvopn landsmanna sam-
ræmdar í einn gagnagrunn.
Snorri segir skrána vera nokkuð
áreiðanlega, en hún verði ekki
fullkláruð fyrr en árið 2010 þeg-
ar leyfi fyrir öllum skotvopnum
á landinu hefðu verið endurnýj-
uð.
Í apríl síðastliðnum var fimm
veiðirifflum stolið úr heimahúsi
í Grindavík; fjórir þeirra fund-
ust stuttu síðar en einn þeirra er
enn ófundinn. Haustið 2003 var
þremur haglabyssum og þremur
rifflum stolið úr heimahúsi í
Keflavík. Í desember síðast-
liðnum voru tvær haglabyss-
anna notaðar við Bónusrán í
Kópavogi, en ræningjarnir vís-
uðu einnig á tvo riffla. Einnar
haglabyssu og eins riffils er enn
saknað.
Sigmar B. Hauksson, for-
maður Skotveiðifélags Íslands,
telur að margar byssur á land-
inu séu óskráðar: „Óskráð vopn
á landinu eru alla vega á bilinu
10-20 þúsund. Það var mikið um
smygl á vopnum með skipum til
landsins áður fyrr, sérstaklega á
sjöunda áratugnum. Einnig var
mikið um að byssur söfnuðust
upp innan fjölskyldna þegar
eigendurnir féllu frá því lengi
vel var eftirlit með skotvopnum
afar dapurt.“
Snorri Sigurjónsson segir
ómögulegt að giska á hversu
margar byssur eru óskráðar á
landinu. „Það er svo sem hægt
að varpa fram einhverjum
tölum en það væru bara hug-
myndir.“
bergsteinn@frettabladid.is
Noregur og ESB:
Minna fylgi
við aðild
NOREGUR Stuðningur við aðild Noregs
að Evrópusambandinu hefur minnkað
mjög síðasta mánuðinn, samkvæmt
nýrri skoðanakönnun sem birtist í
Aftenposten.
Nú segjast 52 prósent þeirra sem
taka afstöðu vera fylgjandi aðild en
voru 59 prósent fyrir mánuði. Nú er
nær helmingur, 48 prósent, andvígur
aðild en fyrir mánuði var aðeins 41
prósent andvígt Evrópusambands-
aðild. Mestur mældist stuðningur við
aðild í janúar 2003. Þá sögðust 67 pró-
sent vilja fylgja öðrum löndum eftir
inn í Evrópusambandið, en þá var um-
ræðan um stækkun sambandsins til
austurs í algleymingi. ■
Móður synjað um fæð-
ingarorlof:
Aðstæður
ekki metnar
UMBOÐSMAÐUR ALÞINGIS: Umboðs-
maður Alþingis hefur úrskurðað
að Tryggingastofnun ríkisins
hafi ekki metið megin mál-
aðstæður þegar hún synjaði
móður í fullu námi við HÍ um
fæðingarstyrk veturinn 2001 til
2002. Forsendur Tryggingastofn-
unar voru að konan hefði ekki
lokið tilskildum einingafjölda.
Umboðsmaður Alþingis komst
að þeirri niðurstöðu að gögn frá
HÍ sem konan lagði fram sýndu
að hún hefði verið í fullu námi
um veturinn en ekki getað þreytt
lokapróf vegna veikinda. Um-
boðsmaður beinir því þeim til-
mælum til Tryggingastofnunar
að hún taki mál konunnar upp
aftur óski hún eftir því. ■
Varaforsetaefni:
McCain ekki
með Kerry
BANDARÍKIN, AP Repúblikaninn
John McCain hefur sagt John
Kerry, forsetaefni demókrata,
að hann myndi ekki þiggja út-
nefningu sem varaforsetaefni
hans. AP-fréttastofan hefur
þetta eftir ónafngreindum ráða-
mönnum í Demókrataflokknum.
Kerry er sagður hafa rætt við
McCain um möguleikann á að
repúblikaninn gæfi kost á sér
sem varaforsetaefni demókrata,
án þess þó að bjóða honum út-
nefninguna. Taldi hann að með
því mætti mynda sterkt banda-
lag gegn George W. Bush
Bandaríkjaforseta sem næði út
yfir flokkslínur. ■
■ ÍRAK
,,Óskráð
vopn á
landinu eru
alla vega á
bilinu 10-
20 þúsund.“
SVONA ERUM VIÐ
LOÐNUAFLI ÍSLENDINGA 1965-2002
Ár Tonn
1965 49.735
1970 191.763
1975 501.093
1980 759.519
1985 992.999
1990 693.740
1995 715.551
2000 884.858
2002 1.083.135
Heimild: Sjávarútvegurinn í tölum 2003.
Við gerum betur
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú
leggur af stað – Það borgar sig
Hringdu til AVIS í síma 591-4000
Innifalið í verði er ótakmarkaður akstur, trygging, vsk. og
flugvallargjald. (Verð miðast við lágmarksleigu 7 daga).
Ekkert bókunargjald - Gildir til 31. mars 2005.
Verð háð breytingu á gengi.
Frankfurt kr. 2.700,- á dag m.v. A flokk
Munichenkr. 2.700,- á dag m.v. A flokk
Berlin kr. 2.700,- á dag m.v. A flokk
www.avis.is
Við
gerum
betur
Þýskaland
AVIS Knarrarvogi 2 - 104 Reykjavík - Sími 591 4000 Fax 591 4040 - Netfang avis@avis.is
Munið Visa
afsláttinn
Ástþór kærir RÚV:
Vill fresta kosningum
FORSETAKOSNINGAR Ástþór Magnús-
son hefur kært Ríkisútvarpið til
Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu fyrir „grófa ritskoðun og
alvarlegt brot“ á þeim reglum
sem séu við lýði.
Vísar Ástþór í viðtal sem Kast-
ljós tók við þýska fræðimanninn
Dietrich Fischer í maí og sendi út
í fyrrakvöld. Að mati Ástþórs
voru veigamestu atriðin í mál-
flutningi Fischer klippt út úr
þættinum, meðal annars þar sem
hann lýsti hvers vegna Ástþór
ætti að gegna embætti forseta.
Ástþór segir að framganga ís-
lenskra fjölmiðla sé að grafa und-
an lýðræðislegri umræðu og að
komandi forsetakosningar verði
helst í ætt við það sem gerist í al-
ræmdum einræðisríkjum.
Ástþór fer fram á það við
stjórnvöld að forsetakosning-
unum verði frestað um óákveðinn
tíma eða „þangað til hægt er að
halda lýðræðislegar kosningar og
gefa fjölmiðlamönnum kost á að
setjast á skólastól svo þeir læri al-
mennileg vinnubrögð“. Hann
kveðst hafa lítil viðbrögð fengið
frá ÖSE, en hann hafði fyrst sam-
band við stofnunina í mars vegna
meintrar hlutdrægni fjölmiðla. ■
ARIEL SHARON
Stefnir að því að allir landtökumenn verði
á brott frá Gaza í september á næsta ári.
Landtökumenn:
Brotthvarfi
verði flýtt
JERÚSALEM, AP Ísraelska ríkisstjórn-
in gæti byrjað að bjóða landtöku-
mönnum á Gaza bætur fyrir að
flytja þaðan þegar í næsta mánuði,
þrátt fyrir að stjórnin hafi ekki
ákveðið endanlega að flytja land-
nema á brott. Samkvæmt tímaáætl-
un sem var birt á fimmtudag var
ekki gert ráð fyrir að bótagreiðslur
hæfust fyrr en í ágúst.
Ísraelskir fjölmiðlar segja að
bótagreiðslur til hverrar meðal-
stórrar fjölskyldu landtökumanna
muni nema rúmum 20 milljónum
króna, tekið verði tillit til fjölda
fjölskyldumeðlima og hversu lengi
fólkið hafi búið í landnemabyggð á
Gaza. ■
BABÝLON EYTT Á NÝ Stjórn her-
námsliðsins í Írak hefur fyrirskipað
rannsókn á afleiðingum stækkunar
herstöðvar nærri rústum hinnar
sögulegu borgar Babýlon. Talið er að
sögulegar minjar hafi eyðilagst við
framkvæmdirnar. Borgin var ein
helsta borg heims í um þúsund ár en
lagðist í eyði á sjöttu öld.
RÁÐIST Á LÖGREGLUSTÖÐVAR Víga-
menn hafa ráðist á fjórar lögreglu-
stöðvar í Írak undanfarna daga og
hrakið illa vopnaða lögreglumenn á
brott. Lögreglustöðvarnar hafa verið
sprengdar í loft upp í gær og á dög-
unum féllu sjö lögreglumenn fyrir
hendi vígamanna í bænum Musayyib.
BRENND OG BROTIN FÖÐURMYND
Eldri dóttir Saddams Hussein segist ekki
óttast dauðann en vera hræddari við
hneykslismál.
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON
Segir fjölmiðla grafa undan lýðræðislegri umræðu.
SIGMAR B. HAUKSSON
Segir fjölda óskráðra vopna hlaupa á tug-
um þúsunda.
STOLNAR HAGLABYSSUR
Þessar byssur voru notaðar við rán í fyrra