Fréttablaðið - 13.06.2004, Page 16
Tækni- og hugbúnaðarfyrirtæki
áttu góð ár í lok nýliðinnar aldar.
Við lok gullaldarinnar stofnuðu
þrír skólabræður úr verkfræði
fyrirtækið Handtölvur eða Hand-
point, eins og fyrirtækið heitir á
ensku.
Á þessum tíma voru margar
ævintýralegar hugmyndir í gangi
sem ekki lifðu af niðursveiflu á
markaðnum. „Það var gæfa okkar
í gegnum þetta ferli að við vorum
að vinna lausnir sem spara fyrir-
tækjum tíma og peninga. Eigend-
um fyrirtækja er alveg sama
hvort menn hafa gaman af að nota
handtölvur eða ekki. Ef þær spara
peninga, þá eru þær notaðar.“ seg-
ir Davíð Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins. Í
niðursveiflunni drógu fyrirtæki
úr fjárfestingum. Davíð segir
Handpoint ekki hafa farið var-
hluta af samdrættinum. „Við urð-
um að halda okkur á jörðinni.“
Fyrirtækið er ekki stórt, en
hefur á þessum tíma orðið algjör-
lega leiðandi í lófatölvulausnum
fyrir fyrirtæki. Stærstu heildsöl-
urnar og stærstu verslunarfyrir-
tækin nota nú búnaðinn sem spar-
ar mikinn tíma og fjármuni. Til-
koma stýrikerfa fyrir handtölvur
opnaði möguleika á því að búa til
kerfi og vera með úrvinnslu á
staðnum.
Stöðlun í heimi sérlausna
Þessa möguleika nýttu þeir fé-
lagarnir sér og þróuðu staðlaðan
hugbúnað sem heldur utan um
vörur, pantanir og fleira sem lítur
að heildsölu og smásöluverslun.
Við hófum að búa til staðlaðar
lausnir í heimi þar sem sérsmíð-
aðar lausnir voru allsráðandi.
Davíð segir að sama hafi verið
uppi á teningnum þegar PC-tölv-
urnar komu fyrst fram. Sama þró-
un muni verða í þróun handtölva
og hugbúnaðar fyrir þær.
Handtölvurnar eru með strika-
merkjalesara og geta sent pantan-
ir beint í kerfi heildverslunar.
Pöntun liggur því fyrir um leið og
hún er lesin inn og við það sparast
bæði tími og pappírsvinna. Þar
við bætist að villur í pöntunum
snarminnka vegna þess að við inn-
slátt pantana geta alltaf orðið vill-
ur, segir Davíð. Það fer ekki á
milli mála að hann er vanur að
telja upp kostina fyrir væntan-
lega viðskiptavini.
Fyrirtækið stendur á tímamót-
um. Að baki er vöruþróun og ár-
angursrík markaðssókn innan-
lands. Framundan eru spennandi
tímar þar sem hafin er sókn á er-
lenda markaði. Verslun hér á
landi er framarlega í að nýta sér
upplýsingatækni. Varan okkar er
þróuð í samstarfi við verslanir,
þannig að viðbrögð við vörunni og
árangur af notkuninni er komin
inn í lausnina.
Áhugi fjárfesta á sprotafyrir-
tækjum hvarf eftir að netbólan
sprakk. Þeir félagar hjá Hand-
tölvum hafa því þurft að stíga var-
lega til jarðar. Dýr sókn á erlenda
markaði var því ekki inni í mynd-
inni.Við erum í samstarfi við
Landsteina Streng sem selja
kassakerfi og verslanakerfi. Þeir
eru með samstarfsaðila um allan
heim. Þannig komumst við inn í
þeirra dreifikerfi. Síðan höfum
við komið okkur upp okkar eigin
samstarfsaðilum líka.
Framleiða eigin vélar
Þegar er lausn Handpoint í
notkun í Levis-búðinni á Oxford-
street sem er hluti verslanakeðju
sem hyggst nota lausnina í búðum
sínum. Dansk Supermarked er
einnig að skoða lausnir fyrirtækis-
ins. Þegar við komum til Dansk
Supermarked, þá sögðu þeir við
okkur að við kæmum á heppileg-
um tíma. Þeir sögðust akkúrat
ætla að nota þetta ár til þess að
skoða lausnir. Þetta var 2002 og
Danirnir reiknuðu með þremur
árum í að velja kerfi. Hér heima er
ákvörðunarferlið nokkrir mánuðir,
segir Davíð og brosir.
Það er margt að gerast í fyrir-
tækinu. Handpoint hefur hafið
framleiðslu á eigin lófatölvum.
Kveikjan að því er samningur við
Norvik sem rekur BYKO og
Kaupásverslanirnar. „Þeir þurftu
harðgerðar vélar með tilteknum
búnaði og báðu okkur að athuga
möguleikana. Við fórum á stúfana
og sáum fyrir okkur að við gætum
framleitt eigin vél. Það er hægt að
láta framleiða fyrir sig eldflaug í
verksmiðjum í Asíu, ef manni dett-
ur það í hug og kemur með teikn-
ingar og peningana,“ segir Davíð.
Niðurstaðan var sú að þessi fram-
leiðsla reyndist hagkvæm. Davíð
segir vélarnar töluvert ódýrari
sem liggi í því að í þeim sé sá bún-
aður sem kúnninn þarf, en enginn
óþarfi. „Þessi framleiðsla þýðir að
við bjóðum nú viðskiptavinum
okkar pakkalausn með vélbúnaði,
hugbúnaði og verkferlum.“
Stórir samningar í vinnslu
Lófatölvurnar eru í stöðugri
þróun og ein af nýjungum Hand-
point er þráðlaust kassakerfi fyrir
verslanir og farandsala. „Það get-
ur komið sér vel á álagstímum í
stórmörkuðum að bæta við einum
kassa án mikils tilkostnaðar,“ seg-
ir Davíð. Maður sér það fyrir sér
að slíkt nýtist sérlega vel þeim
sem selja vöru og eru á ferðinni.
Til dæmis flugfélögum. Davíð ját-
ar því og verður leyndardómsfull-
ur á svipinn. Handpoint er nefni-
lega langt komið í viðræðum við
bæði stórt flugfélag og fyrirtæki
sem sérhæfir sig í vörusölu til
flugfélaga. Vonir standa til að
hægt verði að landa þeim samn-
ingum á næstu mánuðum. Hand-
point hefur tekist hingað til að efl-
ast með því að taka skynsamlegar
ákvarðanir. „Stjórnarmenn
skamma mig stundum fyrir að ég
sé of jarðbundinn,“ segir Davíð.
Flugdrekarnir liggja nú líka marg-
ir á jörðinni með brotnar spýtur.
haflidi@frettabladid.is
5,7%* – Peningabréf Landsbankans
www.landsbanki.is
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitar-félög og aðra
fjárfesta. Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans.
* Nafnávöxtun frá 01.05.2004–31.05.2004 á ársgrundvelli.
á
su
nn
ud
eg
i
V
ið
sk
ip
ta
fr
ét
ti
r Með allt í eigin hendi
Hugbúnaðar- og tæknifyrirtæki hafa átt erfiða daga eftir mikla veislu. Fyrirtækið
Handtölvur hefur jarðbundna stefnu að leiðarljósi og gengur hægt um gleðinnar dyr.
Árangurinn er góður og mörg lönd ónumin.
EKKI LEIKTÆKI
Davíð Guðjónsson, framkvæmdastjóri Handpoint, segir lykilinn að því að fyrirtækið lifði af
niðursveiflu í fjárfestingum fyrirtækja hafa verið þann að þeir bjóði upp á lausnir sem
spari fyrirtækjum mikla fjármuni. Margt er á döfinni hjá Handpoint og erlend markaðs-
sókn gæti farið að skila sér í verulegum mæli hjá fyrirtækinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA