Fréttablaðið - 13.06.2004, Síða 18
18 13. júní 2004 SUNNUDAGUR
„Reykjavíkurlistinn leikur á reiði-
skjálfi“ stóð á forsíðu DV fyrir
nokkrum dögum. Gagnrýni á sam-
starfið hefur kannski sjaldan
verið meiri en nú um stundir, á tíu
ára afmæli listans. Stuðnings-
menn fögnuðu reyndar afmælinu
á dansleik en hátíðardagskrá varð
að fresta vegna þess að ekki náð-
ist samkomulag um tilhögun
hennar og málþing var blásið af
en staðið hafði til að Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir setti það.
Helgi Hjörvar var einn af
helstu hvatamönnum að stofnun
Reykjavíkurlistans og auk þess að
vera alþingismaður er hann fyrsti
varaborgarfulltrúi R-listans. „Það
er tóm della að allt sé í loft upp
hjá Reykjavíkurlistanum þótt það
sé lífsmark með honum,“ segir
Helgi,“ en auðvitað er það visst
hættumerki ef menn geta ekki
unnt fyrrverandi borgarstjóra í
Reykjavík þess að setja eitt mál-
þing. Ef menn hafa ekkert þarfara
að gera við tíma sinn en nöldra
yfir slíku þá vantar þá bara ein-
hver verkefni í lífið. Þetta lýsir
ótrúlegum smásálarhætti og var
ekki góð afmælisgjöf.“
Þörf á pólitískum foringja
Er ekki komin viss þreyta í
þetta samstarf?
„Auðvitað er það áhyggjuefni
að þreyta komi í samstarf sem er
á þriðja kjörtímabili. Það er eitt
stærsta verkefnið fyrir okkur
sem starfa fyrir og styðja Reykja-
víkurlistann að verða ekki vald-
þreytunni að bráð. Ég er sammála
Sverri Jakobssyni, einum helsta
hugsuði Vinstri grænna í Reykja-
vík. sem hefur áhyggjur af því að
Reykjavíkurlistinn sé að verða
lítil klíka í Ráðhúsinu og ekki í
tengslum við eitt né neitt. Að lok-
ast ekki inni í Ráðhúsinu er og
verður verkefni okkar, en það er
erfiðara en áður því stjórnmála-
flokkarnir hafa í dag miklu sterk-
ari stöðu í þessu samstarfi.
Reykjavíkurlistinn er greinilega
kosningabandalag stjórnmála-
flokka og ekki lengur sú breiða
hreyfing sem hún var.
Augljósasta vandamál Reykja-
víkurlistans er hins vegar að hann
skortir pólitíska forystu. Þarna er
mikið af hæfileikafólki að sinna
verkefnum og það er góður liðs-
andi í þeim hópi en það er enginn
afdráttarlaus forysta. Það varð
gríðarleg breyting þegar Ingi-
björg Sólrún hætti sem borgar-
stjóri því hún var sterkur pólitísk-
ur foringi, stundum svo mjög að
mönnum fannst nóg um. Eftir að
hún hrökklaðist úr borgarstjóra-
stólnum fannst mönnum kannski
gott að hafa mikla breidd og stór-
an hóp til að sjá um ákvarðanir en
til að ljúka þessu kjörtímabili og
Helgi Hjörvar var einn af helstu hvatamönnum að stofnun
Reykjavíkurlistans. Hann segir þörf á hugmyndalegri endurnýjun.
Reykjavíkurlistann
skortir pólitíska forystu
HELGI HJÖRVAR
„Reykjavíkurlistinn þarf núna pólitíska for-
ystu og pólitískan foringja til að komast í
gegnum þetta tímabil og fara fyrir þeirri
hugmyndalegu endurnýjun sem þarf að
vera til að tíu ára gamalt batterí verði ekki
úrelt.“
En í hverju atriðinu
á fætur öðru er það stjórn-
arforystan sem er orðin aft-
urhaldssamari en allur þorri
almennings. Sem er vont,
því það er jú stjórnarforyst-
an sem á að draga vagninn
og það áfram en ekki aftur
á bak. Það að stjórnarand-
staðan sé svona miklu
sterkari en jafnvel við sjálf
áttum von á gerir það auð-
vitað enn erfiðara fyrir þá
að halda út kjörtímabilið
með þennan nauma meiri-
hluta.
,,
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI