Fréttablaðið - 13.06.2004, Page 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Hvernig ertu núna? Brúnn og flottur.
Hæð: 188.
Augnlitur: Blár.
Starf: Promotor (vantar gott orð á ís-
lensku) – Mótshaldari.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Hjúskaparstaða: Giftur.
Hvaðan ertu? Felli í Biskupstungum
og Látrum fyrir vestan.
Helsta afrek: Fyrsti Íslendingurinn
til að lyfta 1.000 kg.
Helstu veikleikar: Góðmennska.
Helstu kostir: Tryggð og sanngirni.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Krafta-
sport og Sopranos.
Uppáhaldsútvarpsþáttur: Flest á út-
varpi Sögu og Ívar á Bylgjunni.
Uppáhaldsmatur: Íslenskt lambakjöt.
Uppáhaldsveitingastaður: Askur.
Uppáhaldsborg: Montreal.
Uppáhaldsíþróttafélag: Kraftlyft-
ingasambandið, þar á eftir Fylkir og
Afturelding.
Mestu vonbrigði lífsins: Að komast
ekki í uppháa háhælaskó sem eitt
sinn voru í tísku.
Hobbý: Ég er dellukarl, nú eru það
ljósmyndun og garðurinn.
Viltu vinna milljón? Nei, billjón.
Jeppi eða sportbíll: Terrano.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? Verða líka sterkur og
þungur.
Skelfilegasta lífsreynslan: Ég á hana
inni.
Hver er fyndnastur? Ég og Gaupi.
Hver er kynþokkafyllst/ur? Kazmier.
Trúir þú á drauga? Það hefur farið
lítið fyrir þeim fram að þessu.
Hvaða dýr vildirðu helst vera?
Björn.
Hvaða dýr vildirðu ekki vera?
Múrena.
Áttu gæludýr? Nei, en þrjú börn og
eitt á leiðinni.
Hvar líður þér best? Áslandi 4b,
Mosfellsbæ.
Besta kvikmynd í heimi: Í klóm
Drekans (Bruce Lee).
Besta bók í heimi: Njála.
Næst á dagskrá: Keppnin Sterkasti
maður Íslands 17. til 19. júní.
Ætlaði að verða
stór, sterkur
og þungur
PÖNTUNARSÍMINN
550-4111 ÉG ER
ÓDÝRASTUR!
BAKHLIÐIN
Á HJALTA ÚRSUSI ÁRNASYNI