Fréttablaðið - 23.06.2004, Side 12

Fréttablaðið - 23.06.2004, Side 12
12 23. júní 2004 MIÐVIKUDAGUR Ástþór Magnússon: Vonar að fólk kjósi með hjartanu FORSETAKJÖR „Ég höfða til fólks með hjarta, fólks sem getur ekki horft upp á lífið murkað úr þús- undum manns erlendis og ég trúi ekki að öll íslenska þjóðin sé með steinhjarta,“ segir Ástþór Magn- ússon forsetaframbjóðandi. Nú eru aðeins þrír dagar til kosninga og Ástþór segir mikið annríki framundan: „Barátta mín fyrir að fá að koma mínum mál- stað á framfæri í fjölmiðlum hefur óneitanlega sett strik í reikninginn í kosningabarátt- unni.“ Ástþór hefur meðal annars ekki getað heimsótt fyrirtæki ásamt eiginkonu sinni eins og hann ætlaði sér en hann mun reyna að nýta síðustu dagana fyr- ir kosningar til þess. Internetið er vettvangur fyrir kosningabaráttu Ástþórs, en hann heldur netfundi á vefsíðu sinni forsetakosning- ar.is á hverju kvöldi klukkan átta fram að kosningum og segist hafa fengið góð viðbrögð á fundunum. Ástþór treystir sér ekki til að spá hvernig kosningarnar fara á laugardag en vonar „að fólk kjósi með hjartanu og velji ekki ein- hvern steingerving“. ■ MILLILANDAFLUG „Það komu þrír háværir hvellir hver á eftir öðr- um og eldtungur stóðu úr einum hreyflinum í smástund,“ segir Vernharður Linnet dagskrár- gerðarmaður, en hann var ásamt 150 öðrum Íslendingum á leið úr sumarfríi á eynni Krít þegar miklir hvellir heyrðust í hreyfli vélar Icelandair við flugtak. Fengu allmargir farþegar nokk- uð áfall en vélin hélt þó áfram flugi sínu og lenti heilu og höld- nu á Keflavíkurflugvelli í fyrra- kvöld. Boðið var upp á áfalla- hjálp við komuna þangað. „Það sem kannski var erfið- ast var að allt rafmagn fór af um tíma eftir að þetta gerðist og ljóslaust var á meðan en ég tók þó eftir að yfir- f l u g f r e y j u n n i stóð ekki á sama. Innan skamms tilkynnti flug- stjórinn þó að allt væri með felldu og að lík- indum hefði ver- ið um yfirfyll- ingu af eldsneyti að ræða. Flug- brautin þarna er fremur stutt og þeir þurfa að gefa vel inn fyrir flugtak en ferðin gekk að óskum eftir þetta.“ Um borð í vélinni voru ásamt öðrum tveir þjóðkunnir alþingis- menn, Steingrímur J. Sigfússon og Jónína Bjartmarz. Steingrím- ur gerir lítið úr atvikinu og segir að hann gæti eins hætt í starfi sínu sem stjórnmálamaður ef hann kippti sér upp við slík óhöpp. „Eðlilega fór þó um marga sem um borð voru en viðbrögð flugmanns og áhafnar voru til fyrirmyndar. Það tóku einhverjir það nærri sér að flugstjórinn til- kynnti ekki strax hvað hefði átt sér stað eða hvort allt væri með felldu en auðvitað þurfti hann að kanna tékklista sína og mæla áður en hann gat vitað eitthvað sjálfur. Öll áhöfnin stóð sig með mestu prýði alla leiðina og á þakkir skildar en vitaskuld er auðvelt að gera sér í hugarlund að fyrir fólk sem er flughrætt að þetta hafi skotið þeim skelk í bringu. Icelandair bauð svo upp á áfallahjálp og veitingar þegar lent var og einhverjir notfærðu sér það.“ albert@frettabladid.is Grænfriðungar á Ísafirði: Mótmæla hvalveiðum HVALVEIÐAR Skip Grænfriðunga, MV Esperanza, lagði að höfn í Ísafirði í dag. Grænfriðungar eru staddir hér á landi annað árið í röð til að mótmæla hrefnu- veiðum. Þeir halda uppi slag- orðinu „Kjósið framtíðina, ekki hvalveiðar“ og ætla að ræða við heimamenn sem og hvalveiði- menn um stefnumál sín. Um borð í skipinu er fólk frá 17 löndum. Grænfriðungar leggja næst leið sína til Húsavíkur, miðstöð hvalaskoðunar á Íslandi, hvaðan þeir halda svo til Reykjavíkur. ■ ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON OG DORRIT MOUSSAIEFF Ólafur segir þjóðina hafa kynnst sér og störfum sínum síðastliðin átta ár. Ólafur Ragnar Grímsson Vill gefa mótframboð- um svigrúm FORSETAKJÖR Ólafur Ragnar mætir í hefðbundin viðtöl í sjónvarpi og útvarpi en hefur sig að öðru leyti lítið frammi í kosningabaráttunni að sögn Ólafíu Rafnsdóttur, starfsmanns framboðs Ólafs Ragnars Grímssonar. „Ólafur er sitjandi forseti og hef- ur lýst þeirri skoðun sinni að hann vilji gefa mótframbjóðendum sín- um svigrúm til að koma sjónarmið- um sínum á framfæri,“ bætti Ólafía við. Ólafur Ragnar Grímsson hefur sjálfur sagt að þjóðin hafi kynnst störfum hans og stefnu í forsetatíð sinni síðastliðin átta ár. ■ ,,Ég get eins hætt í starfi mínu sem stjórn- málamaður ef ég kippti mér upp við slík óhöpp. Ármúla 31 • S. 588 7332 • www.i-t.is Veri› velkomin í glæn‡ja verslun okkar a› Ármúla 31 Furu eldhús- og ba›innréttingar w w w .d es ig n. is @ 2 00 4 Til afgrei›slu af lager Hagstætt ver›! ,,Ég á fullt af myndum og hlutum sem ég gerði! Mér fannst mjög gaman“. Sumarnámskeið fyrir skapandi börn, eldri og yngri, keramik, teikning, málun - allt innifalið - litlir hópar. Aðeins 8500 kr. vikan! Skráning í Keramik fyrir alla, sími 552 2882, Laugavegi 48b. Sjá lýsingu: www.keramik.is Hvað segja börnin um námskeið í Keramik fyrir alla? REYKJAVÍK • AKUREYRI Sláttuorf Hörkuorf fyrir alla sláttumenn ÁSTÞÓR MAGNÚSSON OG NATALIA WIUM Segir baráttuna fyrir að koma sín- um málum á framfæri í fjölmiðlum hafa sett strik í reikninginn. Hvellur hvekkti flugfarþega Þrír miklir hvellir og eldtungur úr hreyfli þotu Icelandair við flugtak frá Krít í fyrradag vakti ótta meðal margra farþega. Ekki reyndist þó hætta á ferðum og lenti vélin í Keflavík sex tímum seinna. Icelandair bauð áfallahjálp. FLUGVÉL ICELANDAIR Farþegar fengu áfallahjálp þegar lent var á Keflavíkurflugvelli í fyrrakvöld. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R BÓKAGERÐARMENN SAMÞYKKTU Kjarasamningur Félags bóka- gerðarmanna og Samtaka at- vinnulífsins hefur verið sam- þykktur. Talning í atkvæða- greiðslu bókagerðarmanna lauk síðdegis í gær. Á kjörskrá voru alls 1.189. Samtals 294 kusu eða tæplega 25%. Já sögðu 223 eða 76%, nei sögðu 63 eða 21%. Auðir seðlar og ógildir voru 8 eða 2%. ■ KJARAMÁL

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.