Fréttablaðið - 23.06.2004, Page 16

Fréttablaðið - 23.06.2004, Page 16
Hallur í Álverið Í byrjun þessa árs auglýsti Álverið í Straumsvík (Alcan á Íslandi) eftir „áhuga- sömum og hæfum einstaklingi“ til að rita sögu félagsins. Var það gert í tilefni af því að senn eru liðin fjörutíu ár frá því að fyrirtækið hóf fyrst starfsemi hér á landi. Óvenjulegt er að fyrirtæki auglýsi eftir söguritara með jafn áberandi hætti og þarna var gert. Sagnfræðinga- félagið veitti auglýsingunni athygli og mun hafa hvatt fé- lagsmenn sína til að bera sig eftir verkefninu, enda væri um áhugavert efni að ræða og ekki spillti fyrir að jafn öflugt fyrirtæki væri ólíklegt til að skera ritlaun við nögl. Nú hafa stjórnendur Álversins gert upp hug sinn. Fyrirtækið taldi söguritunina ekki við hæfi sagnfræðings heldur fagmanns með aðra hæfileika. Réð það Hall Halls- son til verksins. Hann hefur áður skrifað fyrirtækjasögu, sögu Olís, sem út kom fyrir tveimur árum. Bensín og samkeppni Víða um bæ velta menn fyrir sér sam- keppni olíufyrirtækja á bensínmarkaði. Á landsbyggðinni er þungt í fólki hljóðið og halda því sumir fram að landsbyggðar- fólk niðurgreiði bensín borgarbúa vegna samkeppni sem þar ríkir. Hvað sem satt og rétt er í þeim efnum leynir verðmun- urinn sér ekki, en hann er sagður allt að því 20 prósent á því sem ódýrast er á höfuðborgarsvæðinu og svo aftur á fjar- lægum stöðum úti á landi. Höfuðborgar- búar geta þó líka látið bensínverðið fara í skapið á sér og fjargviðrast sumir á þeim mun á bensínverði sem er á milli Reykjavíkur og Kópavogs. Þar tala sumir um að ef fara þurfi yfir lækinn hvort eð er til að ná sér í eldsneyti, þá sé nokkuð ljóst að kaupin verði gerð hjá þeim olíu- salanum sem stuðlar að samkeppninni. Skipti þá litlu máli hvort eitthvert „gömlu“ olíufé- laganna bjóði 10 aurum betur á hvern bensínlítra sem keyptur er. Nú eru 2.512 ár liðin frá því maður að nafni Kleisthenes knúði fram breytingar á stjórn- skipun í Aþenu. Ekki er vitað hvað Kleisthenes kallaði hið nýja stjórnarform en nafnið lýðræði festist við það. Eðli þessa stjórnarforms hefur komið til tals á Íslandi síðustu vikur í tilefni af ákvörðun for- seta landsins um að almenning- ur fái að ráða því hvort tiltekin lög samin af ríkisstjórn og sam- þykkt af Alþingi öðlist gildi. Fáir af spekingum Grikkja voru hrifnir af lýðræðinu sem lifði heldur ekki mjög lengi. Lýðræði var líka almennt fyrir- litið stjórnarform í langt yfir tvö þúsund ár eða þar til nokkuð nýverið. Áratugum eftir að lýð- veldi var stofnað í Bandaríkjun- um hafði hugtakið lýðræði til að mynda neikvæða merkingu og var oftar notað af þeim sem vör- uðu við því að lýðurinn fengi að ráða en þeim sem mæltu með slíku. Margir þeirra evrópsku hugsjónamanna sem nú eru taldir á meðal feðra lýðræðisins voru líka miklir efasemdamenn um þetta stjórnarform. Þeir börðust fyrir frelsi, ekki lýð- ræði, en töldu hins vegar að frelsið yrði best tryggt með því að fulltrúar eignamanna mynd- uðu þing sem gætu sett valdhöf- um stólinn fyrir dyrnar. Þannig urðu til þing og smám saman þróaðist þingræði sem fólst í því að valdamenn urðu að hafa meirihluta þingmanna með sér. Það lýðræði sem festi rætur á Vesturlöndum var alls ekki sama fyrirbærið og lýðræðið sem Kleisthenes og eftirmenn hans komu á í Aþenu. Lýðræði Grikkja snerist um beina þátt- töku frjálsra karlmanna í stjórn ríkisins. Lýðræði á Vesturlönd- um hefur ekki snúist um stjórn fólksins heldur um að fólkið velji þingmenn sem velja síðan stjórnendur. Mér duttu þeir Kleisthenes og Ólafur Ragnar samtímis í hug um daginn þegar ég sat í leigubíl í einu af ríkjunum sem nýverið gengu í Evrópusam- bandið. Það hagar þannig til um austanverða álfuna, eins og margir íslenskir ferðamenn kannast við, að stór hluti leigu- bílstjóra leggur metnað sinn í að svindla sem mest á ferðamönn- um enda eru taxtarnir lágir og ferðamenn yfirleitt stöndugri en heimamenn. Þetta er því frekar saklaus íþrótt og yfirleitt er hægt að semja um sann- gjarna niðurstöðu leiksins. Einn af ósvífnustu bílstjórunum sem keyrðu mig í þessari ferð reyndi hins vegar að vinna fyrir sínu svikna kaupi með því að fræða mig um pólitíkina í landi sínu á meðan hann fitlaði við gjald- mælinn. „Það hefur ekkert breyst síðan kommúnisminn hrundi,“ sagði hann, „nema nú fáum við að velja valdamenn- ina“. Mér þóttu þetta nokkuð merkilegar breytingar en hann var á annarri skoðun. „Við fáum að velja“, sagði hann, „en þeir fá að ráða.“ Það er líklegt að Kleisthenes hafi verið meiri stjórnmálamað- ur en hugsuður en margir sam- tímamenn hans og eftirkomend- ur í Aþenu hefðu tekið undir með leigubílstjóranum og sagt að lýðræði snerist um stjórn fólksins en ekki val á stjórnend- um. Fáir í þeim hundrað kyn- slóðum sem síðan hafa gengið í heiminum hefðu hins vegar sýnt þessari röksemd nokkra samúð. Orðið lýðræði varð ekki vinsælt í heiminum fyrr en búið var að breyta merkingu þess. Heimspekingar Grikkja ræddu oft um lýðræði útfrá tveimur hugtökum; frelsi og jafnrétti. Útfrá nútímaskilningi á þessum hugtökum réði jafn- rétti í Aþenu, þ.e.a.s. jafnrétti á meðal frjálsra karlmanna, en frelsið var víkjandi. Allir fengu tækifæri til að stjórna öllum en frelsi hvers og eins var ekki að fullu varið. Í lýðræði samtímans hefur frelsið orðið ofaná en jafnrétti hins beina lýðræðis hefur horfið. Fyrir þessu eru auðvitað gildar sögulegar ástæður. Nú eru hins vegar breyttir tímar. Í þróaðri samfélögum ætti ótti manna við óábyrgar ákvarðanir fátækra og illa upp- lýstra manna að hafa þokað. Áhugi manna á beinu lýðræði með þjóðaratkvæðagreiðslum hefur líka víða farið vaxandi á síðustu árum enda sjá menn að hvorki frelsi einstaklinga né góðum siðum er ógnað með aukinni þátttöku almennings í stjórn samfélagsins. Það sem stendur í vegi aukins lýðræðis í þróuðu og upplýstu samfélagi eins og því íslenska er hvorki áhugaleysi né ábyrgðarleysi al- mennings heldur staðnaður hugmyndaheimur stjórnmál- anna. Lýðræði er hin háleitasta hugsjón, rétt eins og frelsi og jafnrétti. Þingbundin stjórn er hins vegar ekki hugsjón heldur tæknileg aðferð við að leysa úr þeirri spennu sem ríkir á milli frelsis, jafnréttis og lýðræðis. Upplýst og velmegandi þjóð getur stundum leyst betur úr þeirri spennu milliliðalaust. ■ E kkert mælir því í mót að Alþingi, sem kemur saman í byrjunnæsta mánaðar, ræði og eftir atvikum afgreiði önnur mál en lögum fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu. Í því sambandi hlýtur að koma sterklega til álita að sumarþingið reyni að finna leið til að eyða ósætti og tortryggni sem ríkir í þjóðfélaginu um skipan manna í emb- ætti hæstaréttardómara. Ekki þarf að rifja upp það uppnám sem varð meðal lærðra og leikra þegar síðast var skipað í dómaraembætti við réttinn. Nú hefur Pétur Kr. Hafstein tilkynnt að hann hyggist láta af embætti og við blasir að skipa þarf nýjan dómara í haust. Líklegt er að þá komi upp áþekk álitamál og síðast; hver á að meta hæfni umsækjenda og hver á mælikvarðinn að vera? Í umræðunum um skipan Ólafs Barkar Þorvaldssonar í dómaraemb- ætti vakti Björn Bjarnason dómsmálaráðherra máls á því að ef til vill væri ástæða til að breyta reglunum um það hvernig staðið er að skipun hæstaréttardómara. Í framhaldi af því hefur verið hreyft hugmyndum um að Alþingi verði að staðfesta skipun dómara í Hæstarétt og sérstakt lagaráð, frekar en rétturinn sjálfur, veiti umsögn um umsækjendur. Athygli hefur vakið að þótt Pétur Kr. Hafstein hafi enn ekki beðist formlega lausnar hefur einn kunnasti lögmaður landsins, Jón Steinar Gunnlaugsson, prófessor við Háskólann í Reykjavík, látið í ljós áhuga sinn á embættinu. Jón Steinar er þekktur fyrir skýran málflutning og tæpitungulausar skoðanir jafnt á þjóðmálum sem lögfræði. Enginn frýr honum vits og lærdóms. Fræg er gagnrýni hans á dóma – ekki síst Hæstaréttar. Og allir vita að hann er einkavinur æðstu valdamanna landsins. En enginn spilamaður veit það betur en Jón Steinar Gunnlaugsson að ásar í hendi geta bæði verið tromp og hundar. Styrkleiki hans kann jafn- framt að vera veikleiki hans. Hægt er að veita mönnum embætti í krafti valds, en sérhver maður með sjálfsvirðingu hlýtur að vilja að það sé hafið yfir efa að hann hafi verið valinn vegna hæfni sinnar frekar en tengsla. Ólíklegt verður að telja að Jón Steinar Gunnlaugsson yrði kosinn vin- sælasti maður landsins ef hæstaréttardómarar væru einu kjósendurnir. Kunnugt er að óvægin gagnrýni hans á einstaka dóma og vinnubrögð réttarins hefur fengið misjafnar undirtektir meðal dómaranna. Sú spurning vaknar hvort þeir teljist hæfir umsagnaraðilar þegar hann á í hlut. Einnig hvort líklegt sé að hann mundi njóta sannmælis. Dæmi Jóns Steinars eitt og sér vekur upp spurningar um aðferðir við skipan hæstaréttardómara. Þegar við bætast þau álitaefni sem upp komu við síðustu skipun í dóminn virðist rökrétt að endurskoða leikregl- urnar. Þetta er mál sem Alþingi á að láta til sín taka í í sumar. ■ 23. júní 2004 MIÐVIKUDAGUR SJÓNARMIÐ GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Ástæða er til að breyta reglum um skipun hæsta- réttardómara til að taka af öll tvímæli um að hæfni umsækjenda ráði úrslitum um valið. Val á dómurum í Hæstarétt Úr stöðnuðum hugmyndaheimi ORÐRÉTT Sumir láta bara ekki segjast Það er reynt að benda hesta- mönnum á réttar leiðir. Allt er reynt til að komast hjá vandræð- um. Það er mjög einfalt að vísa fólki á rétta leið. Guðrún Kristinsdóttir, yfirlandvörð- ur á Þingvöllum. DV 22. júní. Enginn ófínni en annar Sú aðgreining á milli hefðbund- innar menningar og dægurmenn- ingar, sem áður fyrr einkenndi menningarlífið, hefur smátt og smátt verið að hverfa. Þetta hefur verið að gerast með mjög skýrum hætti í myndlist, leiklist, tónlist, bókmenntum og fleiri sviðum menningar síðustu áratugi. Morgunblaðið 22. júní. Sussað á hvolpana Ég hef bara gaman af þessu og er stoltur af minni vinnu. Þetta unga fólk virðist illa fylgjast með og ekki vita hvað menn eru að gera. Þess utan starfar Sjálfstæðisflokk- urinn ekki eftir forskrift Heimdalls. Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um að vera í botn- sætinu í „frelsismælingu“ Heimdellinga. DV 22. júní. Er þetta nú til fyrirmyndar? Framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur beitt sér fyrir jafnrétti kynj- anna með því verkefni, sem gengur undir nafninu „Fyrir- myndarfélag ÍSÍ,“ sem felur það meðal annars í sér að jafn- rétti sé í heiðri haft í starfsemi viðkomandi íþróttafélags eða deildar. Ellert B. Schram, forseti Íþróttasam- bands Íslands, skrifar um íþróttir kvenna og segir skarðan hlut kvenna- fótbolta skrifast á Knattspyrnusam- band Íslands. Morgunblaðið 22. júní. FRÁ DEGI TIL DAGS Ólíklegt verður að telja að Jón Steinar Gunn- laugsson yrði kosinn vinsælasti maður landsins ef hæstaréttardómarar væru einu kjósendurnir. Kunn- ugt er að óvægin gagnrýni hans á einstaka dóma og vinnubrögð réttarins hefur fengið misjafnar undirtektir meðal dómaranna. ,, STÓRHÖFÐA 27 -SÍMI: 552 2125www.gitarinn.is SUMARTILBOÐ!!! ÞJÓÐLAGAGÍTAR MEÐ POKA KR. 14.900.- KASSAGÍTAR FRÁ KR. 9.900.- MEÐ POKA!!! RAFMAGNSSETT: KR. 25.900.- TROMMUSETT: FRÁ KR. 54.900.- (RAFMAGNSGÍTAR - MAGNARI - POKI - KENNSLUBÓK - STILLIFLAUTA - GÍTARNEGLUR OG 2 SNÚRUR!!!!) gitarinn@gitarinn.is GÍTARINN EHF. ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Gunnar Smári Egilsson FRÉTTASTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson RITSTJÓRNARFULLTRÚAR: Steinunn Stefánsdóttir og Jón Kaldal AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 515 75 06 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar, 1.100 krónur á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Í DAG LÝÐRÆÐIÐ JÓN ORMUR HALLDÓRSSON Það sem stendur í vegi aukins lýðræðis í þróuðu og upplýstu sam- félagi eins og því íslenska er hvorki áhugaleysi né ábyrgðarleysi almennings heldur staðnaður hug- myndaheimur stjórnmál- anna. Lýðræði er hin há- leitasta hugsjón, rétt eins og frelsi og jafnrétti. ,, degitildags@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.