Fréttablaðið - 23.06.2004, Síða 19

Fréttablaðið - 23.06.2004, Síða 19
3MIÐVIKUDAGUR 23. júní 2004 Útborguð upphæð láns Að kaupa fyrstu íbúðina Formsatriðin í hnotskurn Í augum margra eru íbúðarkaup stórmál. Pappírsvinnan og forms- atriðin virðast flókin í fyrstu og ekki vita allir hvert á að leita til að taka fyrstu skrefin. Mikilvægast er að gera sér grein fyrir að ferlið er auðveldara en það virðist. Í upp- hafi er skynsamlegast að renna yfir heimilisbókhaldið og kanna fjárhagsstöðuna. Áætla hversu há innkoma og útgjöld verða næsta árið og hvað er raunhæft að geta borgað mikið á mánuði til íbúðar- kaupa. Eftir slíka sjálfskoðun er maður betur í stakk búinn að vinda sér í næsta skref. Greiðslumat: Hafðu samband við þjónustu- fulltrúa í þínum viðskiptabanka og óskaðu eftir greiðslumati. Bank- inn gerir þá úttekt á hvað þú átt af fé og hvað þú ræður við mikla greiðslubyrði. Þar með er ramm- inn kominn að því hvað þú getur leyft þér að kaupa dýra íbúð. Finna íbúðina: Nú reynir á þolinmæði og skynsemi. Kynntu þér íbúðarverð og gerðu samanburð. Forgangs- raðaðu helstu óskum þínum um íbúð og skoðaðu þær sem uppfylla þau skilyrði. Ekki skoða íbúðir sem þú hefur ekki efni á að kaupa. Ósjaldan færðu nýrri eða stærri eign ef þú kaupir í út- hverfi. Að sögn Remax fasteigna- sölu er verðmunur á hverfum sí- vaxandi og miðbærinn er ekki endilega hagstæður kostur. Fjármögnun: Draumaíbúðin er fundin og verðið er viðráðanlegt miðað við þitt greiðslumat. Komið er á það stig að útbúa tilboðið. Hægt er að fá ráð hjá fasteignasölum hvort hagstæðara er að taka við þeim lánum sem fyrir hvíla á fasteign- inni eða taka upp ný lán hjá Íbúða- lánasjóði. Hvort svo sem verður útvegar fasteignasalinn nauðsyn- leg gögn og útbýr verðtilboðið sem fer næst til íbúðareiganda. Ef samkomulag næst um kaupverð fer tilboðið sem umsókn til Íbúða- lánasjóðs. Teljir þú þig auk þess þurfa viðbótarlán er sótt um sam- þykki hjá Félagsþjónustunni. Uppfylla þarf skilyrði um tekju- og eignamörk fyrir veitingu láns- ins. Þumalputtaregla um fjár- mögnun íbúða er að Íbúðalána- sjóður veitir yfirleitt lán fyrir um það bil 70% af fasteignarverði en viðbótarlánin eru um 20%. Lokafrágangur: Ef viðbótarlán og/eða lán Íbúðalánasjóðs eru samþykkt er gerður kaupsamningur. Þá fær söluaðili sína greiðslu fyrir fast- eignina og samkomulag er gert um að samningar muni standast. Samningurinn er þá þinglýstur en næsta skref er afsalið, sem er lokauppgjör og endanleg staðfest- ing á að kaupandinn hafi eignast íbúðina. Oftast líður einhver tími frá því að kaupsamningur er þing- lýstur þar til lokauppgjörið fer fram. Í millitíðinni tekur yfirleitt hinn nýi eigandi við íbúðinni og borgar fyrstu afborgun af lánum. Innflutningspartí: Nauðsynlegt er að fagna sinni fyrstu íbúð með ærlegu innflutn- ingspartíi. Ekki þarf að sækja um sérstök leyfi til þess en reikna þarf með töluverðum kostnaði. ■ Hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar bjóð- ast nú sérstök sumarhúsalán til kaupa eða endurbóta á sumarhúsi. Lánað er til allt að 15 ára og getur lánshlutfall verið allt að 60 prósent af markaðsvirði sumarhússins. Lán- ið er tryggt með veði í sumarhúsinu og er veittur 50 prósenta afsláttur af lántökugjaldi. Hægt er að velja á milli breytilegra eða fastra vaxta og fara þeir meðal annars eftir veð- setningahlutfalli. Þjónustufulltrúar Sparisjóðs Hafnarfjarðar veita allar nánari upplýsingar um lánið. ■ Sumarfríin eru skollin á af fullum þunga. Þeim fylgja ferðalög um landið og til útlanda. Þeir sem ætla að aka erlendis ættu að fá sér nýtt ökuskírteini, þau eru nauð- synleg víða. 3.500 krónur kostar að fá sér nýtt ökuskírteini. Hægt er að sækja um endur- nýjun ökuskírteinis hjá öllum lög- reglustjórum (sýslumönnum). Mæta þarf á staðinn og fylla út sérstök eyðublöð þar vegna þessa. Í ökuskírteini þarf eina nýja mynd, en ef einstaklingur á nýja mynd í ökuskírteinakerfinu er hægt að nota hana. Allir 65 ára og eldri þurfa að skila læknisvottorði með umsókn um endurnýjun. Þeir sem eru að endurnýja öku- skírteini í fyrsta skipti þurfa ein- nig að reiða fram 3.500 krónur. Hafa ber þó í huga að einungis er hægt að gera það ef viðkomandi er punktalaus. Annars þarf að fara í ökutíma og svo er hægt að fá nýtt ökuskírteini, þó aðeins til tveggja ára. Það kostar 2.000 krónur. ■ Sparisjóður Hafnarfjarðar: Sumarhúsalán í boði Sumarhúsalán eru nú í boði hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar. Hvað kostar... Endurnýjun ökuskírteinis?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.