Fréttablaðið - 23.06.2004, Qupperneq 26
Brúðkaupspartí í forsetasvítunni
Adolf Hitler brá sér í skoðunarferð
um Parísarborg þennan dag árið
1940, enda höfðu Þjóðverjar þá her-
tekið borgina. Þangað hafði Hitler
aldrei komið fyrr, og hann kom
þangað aldrei aftur.
„Þetta var stærsta og besta
stund lífs míns,“ sagði hann þegar
hann fór þaðan.
Samt gat hann ekki látið hjá líða
að skipa fyrir um að tvö minnis-
merki yrðu eyðilögð, því þau
minntu á ófarir Þjóðverja í fyrri
heimsstyrjöldinni.
Gröf Napóleons Bonaparte var
meðal þeirra staða sem nasistafor-
ingjanum þótti ómissandi að skoða,
enda margir séð ýmis líkindi með
þeim Hitler og Napóleon.
Báðir voru þeir útlendingar í
landi því sem þeir réðu lögum og
lofum í, Hitler frá Austurríki en
Napóleon frá Korsíku. Báðir
reyndu þeir að ráðast inn í Rúss-
land og vildu ráðast inn í England.
Mánuðum saman eftir þetta
ferðalag talaði Hitler af hrifningu
um fegurð Parísar, en bað samt
arkitekt sinn, Albert Speer, um að
dusta rykið af áformum sínum um
risabyggingar í Berlín og sjá
þannig til þess að þýska höfuðborg-
in yrði ennþá fegurri en sú franska.
Þannig gæti hann gert út af við
París, ekki með vopnum heldur með
aðstoð byggingarlistarinnar.
„Þegar við verðum búnir í
Berlín verður París ekki nema
skugginn einn.“ ■
■ ÞETTA GERÐIST
1868 Uppfinningamaðurinn Christoph-
er Latham Sholes fær einkaleyfi
á ritvélinni.
1894 Játvarður áttundi, konungur Bret-
lands, sem sagði síðan af sér
krúnunni árið 1936, fæðist
þennan dag.
1956 Gamal Abdel Nasser er kosinn
forseti Egyptalands.
1967 Lyndon B. Johnson Bandaríkja-
forseti og Alexei Kosygin, leiðtogi
Sovétríkjanna, hittast til þess að
reyna að bæta andrúmsloftið.
1992 Mafíuforinginn John Gotti er
dæmdur í ævilangt fangelsi í
New York fyrir fjármálamisferli.
1993 Lorena Bobbitt sker typpið af
eiginmanni sínum, John Wayne
Bobbitt, með eldhúshníf þar
sem hann lá sofandi eftir að
hafa nauðgað henni.
VIÐ EIFFEL-TURNINN
Eins og túrista sæmir lét þessi holdgervingur
illskunnar taka mynd af sér við Eiffel-turninn.
Austurríkismaður í París
„Miðnæturhlaupið verður haldið í
kvöld í tólfta skipti,“ segir Hjör-
dís Guðmundsdóttir hjá Frjáls-
íþróttaráði Reykjavíkur. Að sögn
Hjördísar eru allir boðnir vel-
komnir og hvetur hún fjölskyldu-
fólk sérstaklega til að mæta. „Við
færðum tímasetningu hlaupsins
og verður farið af stað klukkan 21
í kvöld en ekki á miðnætti og von-
umst við til að breytingin gefi
fleirum kost á að taka þátt.“ Hjör-
dís segir hlaupið vinsælt og fólk
mæti ár eftir ár. „Það hefur mynd-
ast skemmtileg stemning í kring-
um hlaupið og nú er bara að vona
að veðrið verði gott.“ Það eru ekki
aðeins Íslendingar sem leggja leið
sína í Laugardalinn í þeim tilgangi
að hlaupa heldur eru ferðamenn
duglegir að skrá sig til leiks. „Út-
lendingunum finnst einstakt að
hlaupa á sumarkvöldi og sérstak-
lega þegar veðrið er þannig að sól-
gleraugu eru nauðsynleg. Þetta er
alveg einstakt,“ segir Hjördís.
Hlaupið fer fram í Laugardaln-
um og verða þrjár vegalengdir í
boði. Það verður farið af stað
klukkan 21 og munu hlaupararnir
enda í sundi þar sem verðlauna-
peningur dugar sem aðgangseyr-
ir. „Það fá allir verðlaunapening
og stuttermabol sem mæta.“
Hjördís segir mikla grósku
vera í skokkinu þessa dagana og
eru stórir hlaupahópar farnir að
æfa sig fyrir maraþonið í ágúst.
„Við höfum sett á fót skokkhópa
sem eru opnir öllum og ég vil
endilega hvetja alla til að slást í
hópinn, hvort sem þeir eru byrj-
endur eða þaulreyndir hlauparar.“
Allar upplýsingar um Miðnætur-
hlaupið og skokkhópana má finna
á marathon.is. ■
Miðnæturhlaup fyrir fjölskylduna
HJÖRDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR
Hún segir miðnæturhlaupið vera einstakt.
Hún hvetur fólk til að nýta tækifærið og
skella sér í hlaupagallann í kvöld.
18 23. júní 2004 MIÐVIKUDAGUR
■ AFMÆLI
FRANCES MCDORMAND
Þessi eðalleikkona, sem hefur meðal ann-
ars farið á kostum í Coen-myndunum
Blood Simple og Fargo, er 47 ára í dag.
23. JÚNÍ
Eysteinn Þorvaldsson prófessor er 72
ára.
■ JARÐARFARIR
13.30 Guðlaug Jónsdóttir Persechino,
Skúlagötu 66, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju.
„Við fáum alltaf sameiginlegar
afmælisgjafir, sem er ekki
nógu skemmtilegt,“ segir Silja
Úlfarsdóttir hlaupadrottning
en hún og maðurinn hennar
Vignir Grétar Stefánsson eiga
bæði afmæli í dag.
Silja segir fáa vita af sam-
eiginlegum afmælisdegi þeirra
og jafnvel enn færri vita að þau
eru gift. „Við giftum okkur um
jólin árið 2001 áður en við flutt-
um til Bandaríkjanna,“ segir
Silja og bætir því við að hún
hafi næstum því mætt of seint í
eigið brúðkaup þar sem hún
þurfti að sitja blaðamannafund
sama dag. „Ég var á fundinum
þar til tuttugu mínútum áður en
ég átti að mæta í kirkjuna og
hefði mætt of seint hefði Vignir
ekki klætt mig í kjólinn á með-
an ég málaði mig.“
Vignir segir brúðkaupið
hafa verið lítið og vel heppnað
en upplýsir þó að ætlunin sé að
gifta sig aftur að námi loknu og
bjóða þá öllum vinunum. „Við
fengum reyndar svítu yfir
brúðkaupsnóttina frá vinum
Vignis í brúðargjöf en hún var
tvíbókuð. Í staðinn fengum við
forsetasvítuna og ákváðum því
að hringja í alla vini okkar og
héldum partí fram á morgun,“
segir Silja.
Silja og Vignir stunda nám í
Clemson-háskólanum í Suður-
Karólínu í Bandaríkjunum og
segir Vignir bæinn vera mjög
öruggan og verndaðan. „Það er
mikið af ungu fólki á svæðinu
enda er þetta algjör háskóla-
bær og alltaf eitthvað
skemmtilegt að gerast. Félags-
lífið er mjög mikið og við erum
umkringd skemmtilegu fólki“
segir Vignir. Aðspurð um
framhaldið segist Silja ekki
vilja heim. „Við erum ekki búin
að ákveða neitt, það er bara að
klára skólann og sjá svo til,“
segir Vignir en hann útskrifað-
ist úr viðskipta- og stjórnunar-
fræði nú í maí en Silja á þrjár
annir eftir af náminu.
Aðspurð um eftirminnilegan
afmælisdag segja þau afmæl-
isdaginn árið 2000 hafa valdið
þeim vonbrigðum og orðið
eftirminnilegan fyrir vikið. „A.
Hansen auglýsti að ef maður
ætti afmæli þá fengi maður
frítt að borða ef maður kæmi
með einhvern annan með sér.
Við mættum og héldum auðvit-
að að okkur væri báðum boðið
að borða þar sem við áttum
bæði afmæli. Þeir höfðu hins
vegar ekki hugsað út í þennan
möguleika og neituðu að bjóða
upp á afmæliskvöldverð,“
segir Silja og bætir Vignir því
við að líklegast muni þau þrátt
fyrir þessar hrakfarir fara út
að borða í kvöld í tilefni dags-
ins. ■
AFMÆLI
SILJA ÚLFARSDÓTTIR
■ er 23 ára í dag en Vignir Grétar Stefáns-
son eiginmaður hennar á líka afmæli og er
28 ára. Þau eru búsett í Bandaríkjunum en
eru á landinu þessar vikurnar við vinnu.
MIÐNÆTURHLAUP
HLAUPIÐ VERÐUR
■ í Laugardalnum í kvöld og er fjöl-
skyldufólk sérstaklega hvatt til að mæta.
23. JÚNÍ 1940
HITLER SKOÐAR PARÍS
■ Adolf Hitler var ofboðslega hrifinn af
París eftir skoðunarferð sína.
SILJA OG VIGNIR
Þau eiga bæði afmæli í dag og segja helsta ókost þess vera að hlutir í búið séu vinsælustu afmælisgjafirnar.
■ ANDLÁT
Jóhanna Guðrún Kjartansdóttir, Slétta-
hrauni 15, Hafnarfirði, lést laugardaginn
19. júní.
Guðmunda Kjartansdóttir, Blönduhlíð
2, lést laugardaginn 12. júní. Útförin fór
fram í kyrrþey.
Þorleifur Jón Thorlacíus, Suðurbraut
26, Hafnarfirði, lést sunnudaginn 20.
júní.
Björgvin Snævar Edwardson, Skúms-
stöðum 2, Eyrarbakka, lést fimmtudag-
inn 17. júní.
Margrét Valgerður Guðmundsdóttir
lést föstudaginn 18. júní.
Sveinn Jónasson, frá Bandagerði, Akur-
eyri, áður á Seilugranda 2, lést laugar-
daginn 19. júní.
Margrét Pétursdóttir Jónsson, Kapla-
skjólsvegi 65, Reykjavík, lést fimmtudag-
inn 17. júní.
Elísabet Árnadóttir Finsen, áður til
heimilis að Þinghólsbraut 35, lést laug-
ardaginn 19. júní.
BRYAN BROWN
Ástralski töffarinn og leikarinn úr F/X Murder
by Illusion og Cocktail er 57 ára í dag.
Sigríður A.
Snævarr
sendiherra
er 52 ára.
Gísli B.
Björnsson
teiknari er
66 ára.