Fréttablaðið - 23.06.2004, Qupperneq 27
19MIÐVIKUDAGUR 23. júní 2004
„Hrífandi og litríkar myndir
af fólki sem heyr lífsbaráttuna
við grimmilegustu aðstæður.“
Daily Mail
„Bóksalinn í Kabúl er ein
áhrifamesta bókin í ár.“
Dag og Tid
„Áleitin mynd af Afgönum,
gjörólík nokkurri annarri bók
um landið. Hún er heillandi
lesning.“
- Sunday Times
„Bókin er fantavel skrifuð, einlæg og grípandi,
vekur spurningar, svarar
spurningum og ber höfuð og herðar
yfir aðrar bækur af þessum meiði
sem ég hef lesið. ... bók sem
allir hefðu gott af að lesa.“
- Friðrika Benónýs, MBL
„Gríðarlega áhrifamikil
bók. Það er brýn þörf á að
svipta hulunni af þessum
óhugnanlegu glæpum.“
- Steinunn Jóhannesdóttir
höfundur Reisubókar Guðríðar
amazon.fr
Áhrifamiklar sögur
Saga þeirra
Guðríðar
Ingólfsdóttur
og Hebu
Shahin er allt í senn, átakanleg, áleitin og æsipennandi.
„Þetta er átakanleg og jafnframt þrælspennandi bók.“
- Guðríður Haraldsdóttir, Vikunni
„Maður svitnar alveg þegar maður les frásögnina
af flóttanum, svo spennandi er hún.“
- Sirrý, Fólk á SkjáEinum
„Amy TAN eins og hún
gerist best“
- San Francisco Chronicle
„Dóttir beinagræðarans
er dýrðleg saga og
gefur fyrri bókum Amy
Tan síður en svo eftir.“
- Súsanna Svavarsdóttir
„Samband móður og dóttur er Amy Tan hjartfólgið og
hér er því lýst af samúð, glettni og djúpum skilningi ...
frábær skáldsaga.“
- The Independent
edda.is
Komnar í kilju
„Þetta er höfðingleg gjöf. Við
erum mjög ánægð með að fá
þessa mynd,“ segir Lárus Vil-
hjálmsson, framkvæmdastjóri
Nýlistasafnsins, um verk sem
bandaríski myndlistarmaðurinn
Matthew Barney gaf safninu nú
um helgina.
Myndin er ein af ljósmyndum
Barneys úr Cremaster 3 sýning-
unni, en hún verður fyrst um sinn
höfð til sýnis í húsakynnum Orku-
veitu Reykjavíkur á Höfða.
„Hún verður sýnd þar þangað
til við erum búin að koma okkur
fyrir í nýju húsnæði okkar, sem
verður á Laugavegi 26. Við erum
einmitt að gera átak í safneignar-
málum hjá okkur, og þessi gjöf er
ágætis byrjun á því.“
Barney gaf Nýlistasafninu verk
sitt við formlega athöfn á laugar-
daginn í húsnæði Orkuveitunnar.
Þar var enn fremur forsýnd heim-
ildarmynd sem kvikmyndafélagið
Lortur gerði um uppsetningu sýn-
ingar hans hér í fyrra.
Mikil umskipti verða í sögu
Nýlistasafnsins þegar það flytur
af Vatnsstígnum í nýja húsnæðið,
sem er á annarri hæð hússins á
Laugaveginum, fyrir ofan verslun
Skífunnar.
„Þetta er fimm hundruð fer-
metra húsnæði og mjög gott til
sýningarhalds. Við hlökkum mikið
til að flytja þangað.“
Safneign Nýlistasafnsins er
mikil að vöxtum og spannar
samtímalistasöguna síðastliðin
25 ár.
„Við eigum eitthvað af verk-
um gömlu SÚMaranna, og síðan
eigum við verk alveg frá fyrstu
árum safnsins og fram á þennan
dag. Við vorum í vandræðum
með geymslu á þessu, en fengum
styrk úr safnaráði í ár og erum
að gera skurk í að skrá safnið
upp á nýtt. Við erum að taka
myndir af öllum verkunum og
draumurinn er að geta gefið það
út á skrá.“ ■
Fagna höfðinglegri gjöf
MATTHEW BARNEY OG LÁRUS VILHJÁLMSSON
Lárus þakkar Barney fyrir gjöf til Nýlistasafnsins.
NÝLISTASAFNIÐ
MATTHEW BARNEY
■ gaf Nýlistasafninu ljósmynd úr
Cremaster 3 sýningunni.
Hver?
Maður með ýmis áhugamál sem hefur
gaman af því að vera til og hefur góða
fjölskyldu.
Hvar?
Ég er staddur á skrifstofu SMÁÍS að
Laugavegi 182. Það er þetta glæsilega
húsnæði þar sem við höfum Kauphöll-
ina sem nágranna á næstu hæð fyrir
ofan. Það er verst að þrátt fyrir það fæ
ég engar innherjaupplýsingar.
Hvaðan?
Ég er borinn og barnfæddur Reykvíkingur.
Það er varla að ég hafi migið í saltan sjó.
Hvað?
Ég fer ofsalega mikið á fjöll. Ég geng
mikið upp á hálendi, klifra og jeppast.
Þessa dagana geri ég ívið meira af því
að ganga, þar sem engin jeppi er á
heimilinu. Ég er einnig í stjórn Flugbjörg-
unarsveitarinnar í Reykjavík.
Hvernig?
Ég stunda áhugamálið mikið í gegnum
starf flugbjörgunarsveitarinnar og nýti
tækifærið með því að fara með henni upp
á fjöll. Ég fer líka mikið upp á mitt ein-
dæmi. Einnig er ég leiðsögumaður í göng-
um fyrir Útivist og áður en ég tók við sem
framkvæmdastjóri SMÁÍS var ég fram-
kvæmdastjóri Útivistar. Núna um helgina
verð ég til dæmis leiðsögumaður á Jóns-
messugöngu yfir Fimmvörðuháls. Sem
leiðsögumaður Útivistar mun ég svo fara í
fleiri göngur í sumar, þar á meðal
Sveinstind-Skælingar sem er að verða ein
vinsælasta gönguleiðin á Íslandi, meðfram
Skaftánni að Lambaskarðshólum og
Strútsstíg sem er framhald af hinni leið-
inni, frá Lambaskarðshólum til Hvanngils.
Hvers vegna?
Þetta hefur verið áhugamál frá því ég var
mjög ungur og byrjaði allt saman í skátun-
um þegar ég var bara patti. Ég hef meira
og minna verið uppi á fjöllum frá því ég
var 13 ára. Þó ég hafi áhuga á mörgum
öðrum íþróttum, eins og fótbolta, er þetta
sú eina íþrótt sem ég get stundað alla ævi
og get tekið alla fjölskylduna með.
Hvenær?
Það verða nokkrar ferðir í sumar. Næstu
tvær helgar mun ég ganga yfir Fimm-
vörðuháls. Hinar ferðirnar verða farnar í
júlí og byrjun ágúst. Ég get ekki sagt að
neinn einn tími sé bestur fyrir svona
göngur. Það er þó oft gott að ganga yfir
hásumarið. Annars finnst mér septem-
ber vera vanmetinn mánuður. Þá losnar
maður við mesta túrismann og veðrið er
oft ansi gott.
PERSÓNAN
HALLGRÍMUR KRISTINSSON
Er MBA og framkvæmdastjóri SMÁÍS sem
kærði vefsíðuna dvdmyndir.com fyrir að
selja sjóræningjaútgáfur af DVD-myndum.
Vefsvæðinu hefur verið lokað.