Fréttablaðið - 23.06.2004, Page 29
21MIÐVIKUDAGUR 23. júní 2004
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
20 2122 23 24 25 26
Miðvikudagur
JÚNÍ
Er vinningur
í lokinu? Utanlandsferðir • siglingar • sjónvörp reiðhjól • myndavélar • gasgrill
kælibox í bíla • línuskautar
hlaupahjól og margt, margt fleira!
Glæsilegir vinningar
C-RIÐILL
Ítalía – Búlgaría 2–1
0–1 M. Petrov, víti (45.), 1–1 Perrotta
(48.), 2–1 Cassano (90.)
Svíþjóð – Danmörk 2–2
0–1 Tomasson (28.), 1–1 Larsson, víti
(47.), 1–2 Tomasson (66.), 2–2 Jonsson
(89.).
STAÐAN Í RIÐLINUM
Svíþjóð 3 1 2 0 8–3 5
Danmörk 3 1 2 0 4–2 5
Ítalía 3 1 2 0 3–2 5
Búlgaría 3 0 0 3 1–9 0
ÁTTA LIÐA ÚRSLIT
Svíþjóð– (1. sæti í D.) lau. 26. jún 18.45
Tékkland – Danmörk sun. 27. jún 18.45
■ STAÐA MÁLA
■ ■ LEIKIR
19.15 KA og Fylkir mætast á
Akureyrarvelli í Landsbankadeild
karla í fótbolta.
19.15 Keflavík og ÍA mætast á
Keflavíkurvelli í Landsbankadeild
karla í fótbolta.
19.15 FH og Grindavík mætast í
Kaplakrika í Landsbankadeild
karla í fótbolta.
19.15 Víkingur og ÍBV mætast á
Víkingsvelli í Landsbankadeild
karla í fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
12.30 EM í fótbolta á RÚV.
Útsending frá leik Svía og Dana í
C-riðli EM í fótbolta sem fram fór
í gær.
14.30 EM í fótbolta á RÚV.
Útsending frá leik Ítala og
Búlgara í C-riðli EM í fótbolta
sem fram fór í gær.
16.30 Spurt að leikslokum á RÚV.
16:45 Olíssport á Sýn.
18.00 EM í fótbolta á Sýn. Bein út-
sending frá leik Hollendinga og
Letta í D-riðli EM í fótbolta.
18.30 EM í fótbolta á RÚV. Bein
útsending frá leik Þjóðverja og
Tékka í D-riðli EM í fótbolta.
21.00 US PGA Tour 2004 á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
22.40 Spurt að leikslokum á RÚV.
23.15 EM í fótbolta á Sýn. Útsend-
ing frá leik Hollendinga og Letta
í D-riðli EM í fótbolta.
23.15 Fótboltakvöld á RÚV.
23.35 EM í fótbolta á RÚV. Út-
sending frá leik Hollendinga og
Letta í D-riðli EM í fótbolta.
■ FÓTBOLTI
SAEZ ÁFRAM Inaki Saez,
þjálfari spænska landsliðsins
ætlar ekki að hætta, þrátt fyrir
mikla pressu frá spænsku
þjóðinni. Enn einu sinni beið
Spánn afhroð á stórmóti og
voru margir sem kröfðust
afsagnar Saez, sem skrifaði
undir nýjan tveggja ára samn-
ing við Spán rétt fyrir EM. „Ég
ætla að halda áfram og næsta
áskorun er að komast beint á
HM 2006.“
BARCELONA VILL LARSSON Tals-
maður frá Barcelona staðfesti
loksins í gær að liðið hefði áhuga
á því að fá Svíann Henrik
Larsson til félagsins. „Þegar
hann lýkur keppni á EM munum
við bjóða honum tveggja ára
samning,“ staðfesti talsmaðurinn.
EM Í PORTÚGAL Ítalir gerðu allt
sem í valdi þeirra stóð til að
komast áfram í 8-liða úrslit Evr-
ópukeppninnar og sigruðu
Búlgara 2-1. Þeim til mikillar
gremju fór leikur Dana og Svía á
þann eina veg sem þýddi að Ítal-
ir kæmust ekki áfram, eða 2-2
jafntefli. Þrátt fyrir sín fimm
stig og að hafa ekki tapað leik í
keppninni sitja Ítalir eftir með
sárt ennið. Áfallið er mikið fyrir
ítölsku þjóðina sem og ítalska
knattspyrnu og kom það ekki á
óvart þegar tár sáust falla á
meðal ítölsku leikmannanna að
leik loknum.
„Við berum höfuðið hátt þótt
við séum á leið heim því við átt-
um sigurinn skilið í leiknum
gegn Svíum,“ sagði Giovanni
Trapattoni, þjálfari Ítala, eftir
leikinn, en búast má við því að
hann verði harðlega gagnrýndur
á næstu dögum fyrir slaka
frammistöðu Ítala í keppninni.
Sigurinn hjá Ítölum var ekki
auðfenginn, því þótt Búlgarar
hafi fyrirfram ekki átt neina
möguleika á að komast áfram
var eingöngu spilað upp á heið-
urinn og börðust þeir grimmi-
lega gegn nokkuð breyttu liði
Ítala. Mjög óvænt náðu þeir
forystu með marki Martin Petr-
ov úr vítaspyrnu á síðustu mín-
útu fyrri hálfleiks, en það voru
ekki nema þrjár mínútur liðnar
af seinni hálfleik þegar Simone
Perrotta jafnaði leikinn eftir
þunga sókn. Síðan var blásið til
stórsóknar af hálfu Ítala, enda
kom ekkert nema sigur til greina
hjá þeim ef þeir ætluðu sér
áfram. Eftir því sem á leið jókst
sóknarþunginn en lítið gekk. Þar
að auki var dómarinn ekki hlið-
hollur Ítölum og var augljósri
vítaspyrnu sleppt þegar skammt
var eftir. Það var síðan ekki fyrr
en eftir hefðbundinn leiktíma
sem Antonio Cassano tryggði
Ítölum sigurinn, Ítalir réðu sér
vart af kæti og allt vitlaust á
vellinum. Í miðjum fagnaðar-
látunum fengu þeir síðan fregn-
ir af því að Svíar hefðu jafnað
gegn Dönum og var þá gleðin
ekki lengi að breytast í martröð.
Ítalir áttu engan möguleika á að
komast áfram þar sem innbyrðis
markatala Svía og Dana yrði
ávallt betri en þeirra. ■
Mikil dramatík í lokaleikjum C-riðils á EM:
Ítalir sátu eftir með sárt ennið
Samsæri?
Bæði Danir og Svíar komust áfram eftir að
hafa gert 2-2 jafntefli í gærkvöld. Ítalir eru æfir
og saka liðin um samsæri.
EM Í PORTÚGAL Mattias Jonson reynd-
ist hetja Svía þegar hann skoraði
annað mark liðsins á síðustu mín-
útu leiksins gegn Dönum í gær-
kvöld og jafnaði leikinní 2-2. Þýddu
þau úrslit að báðir frændur okkar
Íslendinga af Norðurlöndunum
komast áfram, hvernig sem leikur
Ítala og Búlgara færi. Ítalir urðu
æfir, sökuðu þjóðirnar um samsæri
og að úrslitin hefðu verið ákveðin
fyrirfram
„Það liggur enginn vafi á því að
bæði lið stefndu á jafntefli í leikn-
um. Það sést einfaldlega á því
hvernig leikurinn þróaðist. En
óhagganleg sönnunargögn fyrir því
er erfitt að finna,“ sagði Franco
Carraro, forseti ítalska knatt-
spyrnusambandsins, í leikslok.
Carraro var fokreiður og sakaði ná-
grannaþjóðirnar um samsæri.
Morten Olsen, þjálfari Dana, vísaði
ásökunum Carraro algjörlega á
bug. „Það er jafn fáránlegt og það
er barnalegt að halda það,“ sagði
Olsen. „Allir sem sáu þennan leik
vita að bæði lið léku til sigurs.“
Eins og áður segir bauð gær-
kvöldið upp á dramatík eins og hún
gerist best, því hefði Jonson ekki
náð að jafna metin hefðu Svíar
setið eftir á kostnað Ítala, sem
tryggðu sér sigur gegn Búlgörum -
einnig með marki á síðustu mínút-
unni. Það voru því bæði liðin á vell-
inum sem fögnuðu í leikslok enda
búin að tryggja sér sæti í 8-liða
úrslitum EM. Úrslitin þýða jafn-
framt að Svíar hafna í efsta sæti
riðilsins og mæta annaðhvort
Þýskalandi eða Hollandi í 8-liða úr-
slitum, en hvor það verður kemur í
ljós í kvöld. Dönum bíður hinsvegar
gríðarlega erfiður leikur gegn
Tékkum í 8-liða úrslitunum, en þeir
hafa þegar tryggt sér efsta sætið í
D-riðlinum.
Viðureignin í gær var nokkuð
fjörug á köflum og voru það Danir
sem byrjuðu mun betur. Jon Dahl
Tomasson náði verðskuldað foryst-
unni með glæsilegu marki um miðj-
an fyrri hálfleik, en Henrik Larsson
jafnaði úr vítaspyrnu í upphafi þess
síðari. Gegn gangi leiksins bætti
Tomasson við sínu öðru marki á 66.
mínútu en eftir þunga pressu náði
áðurnefndur Jonson loks að jafna
metin á elleftu stundu.
Henrik Larsson var hamingjan
uppmáluð í leikslok. „Yndislegt,
yndislegt, yndislegt. Það að vera
kominn áfram fylgir tilfinning sem
ekki er hægt að lýsa. Við erum
mjög glaðir,“ sagði Larson. Þjálfari
Dana var heldur rólegri, sagði
ánægjulegt að vera kominn áfram
en að sínir menn hefðu oft leikið
betur. „Við þurfum að taka okkur á
fyrir leikinn gegn Tékkum í 8-liða
úrslitunum. Nokkrir leikmenn virt-
ust þreyttir og voru ekki upp á sitt
besta. Það þarf að laga,“ sagði
Morten Olsen. ■
GRÍÐARLEG VONBRIGÐI
Antonio Cassano grét í leikslok, enda allt
erfiðið til einskis. Gianluca Zambrotta sést
hér reyna að hughreysta hann.
HETJUNNI FAGNAÐ
Svíarnir vissu varla hvert þeir ætluðu þegar Mattias Jonson náði að jafna metin í blálokin
og tryggja þeim þar með sæti í undanúrslitum.