Fréttablaðið - 23.06.2004, Blaðsíða 33
Þrátt fyrir að laxveiðiárnar margar
hverjar séu hálf ræfilslegar þessa
dagana lætur laxinn það ekki aftra
sér frá því að mæta í þær. Góður
gangur hefur verið víða, þar sem
hefur verið opnað fyrir veiðimenn.
Í gær byrjaði veiðin í Grímsá í
Borgarfirði, þar sem Hreggnasi
skrifaði undir samning við bændur
til næstu þriggja ára fyrir sköm-
mu. Þeir byrja með veiðina næsta
sumar en samningurinn hljóðar
upp á um 120 milljónir til þriggja
ára.
„Við fengum 5 laxa, grálúsuga,
á fyrsta deginum og það var mikið
af fiski neðarlega í ánni. Ég hef
sjaldan séð svona mikið líf svona
snemma í Korpu,“ sagði Jón Þ. Júl-
íusson, en Korpa var opnuð með
miklum látum.
„Það veiddist 21 lax í fyrsta
hollinu og veiðimenn sem ég hitti í
næsta holli á eftir voru komnir
með 8 laxa,“ sagði Ingvar Ingvars-
son á Múlastöðum er við spurðum
um byrjunina í Flókadalsánni en
veiðin byrjaði glæsilega í ánni.
„Ég og konan mín Guðrún Sig-
urðardóttir veiddum 8 laxa og hún
veiddi 13 punda fisk í Húnafossin-
um á maðkinn. Þetta var hörkubar-
átta í laxinum og konunni tókst að
landa honum eftir mikla baráttu.
Það eru komnir laxar víða um
ána,“ sagði Ingvar að lokum.
Byrjunin hefur verið mjög góð í
Kjarará en það veiddust 20 laxar í
fyrsta hollinu og það var Bubbi
Morthens sem veiddi stærsta fisk-
inn en sleppti honum aftur, 20
punda fiski.
Góð silungsveiði hefur verið
víða um land, en veiðin byrjaði
fyrir fáum dögum á Arnarvatns-
heiði og þar fóru margir til veiða á
fyrstu dögum tímabilsins.
„Við vorum að koma úr Hlíðar-
vatni í Kolbeinsstaðahreppi og við
fengum 17 urriða, þeir stærstu voru
kringum 3 pundin,“ sagði Kristján
Finnur Sæmundsson, en hann var
einn af þeim mörgu sem renndu
fyrir silung um síðustu helgi.
Veiðimenn sem voru við veiðar
í Oddastaðavatni fyrir skömmu
veiddu vel af fiski og nokkrir voru
vel vænir. ■
25MIÐVIKUDAGUR 23. júní 2004
VEIÐIHORNIÐ
GUNNAR BENDER
■ skrifar um veiði.
■ TÓNLIST
■ KVIKMYNDIR
■ TÓNLIST
■ TÓNLIST
Sharon Osbourne, umboðsmaður og
eiginkona rokkarans Ozzy Osbour-
ne, var á dögunum valin „mikilvæg-
asta persóna rokksins“ af lesendum
tónlistarblaðsins Kerrang!, sem er
vinsælasta rokkrit Breta.
Hún er heilinn á bak við raun-
veruleikaþáttinn The Osbournes
sem halaði inn 85 milljónir punda
fyrir fjölskylduna, samkvæmt The
Daily Mirror.
Kölski var í öðru sæti, strax á
eftir Sharon, og var sú ástæða gefin
að „Satan semur snjöllustu slagar-
ana“. ■
Leikstjórinn Quentin Tarantino
ætlar sér að gera þriðju myndina
í Kill Bill bálknum. Fyrstu tvær
myndirnar hafa notið mikilla vin-
sælda en ekki var talið að þriðja
myndin yrði nokkurn tímann
gerð.
„Ég hef í hyggju, ekki strax
heldur eftir svona 15 ár, að gera
þriðju myndina í bálknum,“ sagði
Tarantino í viðtali vegna frumsýn-
ingar Kill Bill Vol. 2 á Spáni í
næsta mánuði. Hann sagði að
þriðja myndin muni fjalla um
stúlkuna Nicky, dóttur leigumorð-
ingja sem persóna Umu Thurman
myrti í hefndarför sinni.
Tarantino segist hafa sett
markið hátt þegar hann tók upp
fyrstu tvær myndirnar. „„Gott“
hefði ekki verið nógu gott fyrir
mig og vel gert hefði verið móðg-
un. Ég gerði myndirnar til að geta
búið til einhver mestu hasaratriði
sem nokkurn tímann hafa verið
gerð,“ sagði hann. Tarantino við-
urkennir einnig að ofbeldi geti dá-
leitt aðdáendur. „Það er ein
ástæða þess að það kemur svo vel
út á stóru tjaldi. Ég hef alltaf sagt
að Thomas Edison hafi fundið upp
kvikmyndavélina til að sýna fólk
drepa og kyssa.“ ■
Stúlknahljómsveitin Destiny’s
Child kemur aftur saman næsta
haust eftir tveggja ára hlé. Þær
stöllur Beyoncé Knowles, Kelly
Rowland og Michelle Williams eru
um þessar mundir að vinna að
nýrri plötu sem á að koma út í
nóvember.
Að sögn Matthew Knowles,
föður Beyoncé og umboðsmanns
sveitarinnar, hefur hún aldrei
hljómað betur. „Ég hlustaði á
fyrstu upptökurnar og þær voru
frábærar,“ sagði hann. „Það er
gaman að þær séu að byrja aftur á
svona jákvæðum nótum. Við gerð-
um sex til sjö ára áætlun og að
fara hver í sína átt var hluti af
henni. Það er ekki hægt að gefa út
plötu með Destiny´s Child á
hverju ári.“
Eftir að síðasta plata sveitar-
innar, Survivor, kom út árið 2001
hafa allar stúlkurnar gefið út sóló-
plötur, en með mismunandi ár-
angri. Beyoncé hefur átt bestu
gengi að fagna og hefur plata
hennar, Crazy in Love, selst í
milljónum eintaka. ■
SHARON OSBOURNE
Mikilvægasta persóna rokksins
samkvæmt rokktímaritinu Kerrang!
Sharon mikilvægust
í rokkinu
MÁLIN RÆDD
Við Andakílsá í Borgarfirði á silungasvæðinu fyrir fáum dögum en veiðimenn hafa verið
að tína þar upp ágæta silunga síðustu daga.
Veiðin byrjaði feiknavel
í Korpu og Flókadalsá
Mynd um
Presley
Ný heimildarmynd um rokkkóng-
inn sjálfan, Elvis Presley, verður
gefin út árið 2007 í
tilefni þess að þrjá-
tíu ár verða þá lið-
in frá dauða hans.
Í myndinni, sem
verður í anda The
Beatles Anthology
sem kom út fyrir
nokkrum árum,
verða sýndar
myndir sem aldrei
áður hafa komið fyrir augu al-
mennings. Presley var 42 ára þeg-
ar hann lést á heimili sínu þann 17.
ágúst 1977. ■
KILL BILL
Uma Thurman í hlutverki Brúðarinnar í Kill Bill. Quentin Tarantino ætlar að gera þriðju myndina í seríunni.
Tarantino vill gera Kill Bill 3
Destiny´s Child saman á ný
BEYONCÉ KNOWLES
Beyoncé gaf út sólóplötuna Crazy in Love
sem hefur notið mikilla vinsælda.
Starfsfólk kvikmyndahúsa í
Bandaríkjunum fær allt að 36 þús-
und krónum í verðlaun fyrir að
hafa hendur í hári áhorfenda sem
laumast til að taka upp myndirnar
á stafrænar vélar.
Verðlaunin eru liður í herferð
kvikmyndaframleiðenda til að
stöðva sjóræningjaútgáfur á
myndum sem kosta kvikmynda-
iðnaðinn hundruð milljóna króna
á hverju ári. Flestar myndirnar
fara beint á Netið þar sem hver
sem er getur hlaðið þær inn í tölv-
una sína og afritað á DVD-disk,
oft áður en myndin fer í bíó í
heimalandinu. Til að mynda lögðu
Kvikmyndasamtök Bandaríkj-
anna hald á 52 milljónir DVD-
mynda og aðrar ólöglegar afritan-
ir á síðasta ári.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
reynt er að grípa bíóþjófa glóð-
volga því sumt starfsfólk hefur
notað nætursjónauka til að koma
auga á þá. Einnig hefur verið leit-
að í töskum áhorfenda fyrir for-
sýningar auk þess sem málmleit-
artæki hafa verið notuð til að
koma auga á myndavélarnar. ■
HARRY POTTER
Margir áhorfendur hafa eflaust verið gripn-
ir glóðvolgir við að taka upp nýjustu
myndina um galdrastrákinn Harry Potter.
Verðlaun fyrir að ná bíóþjófum
■ KVIKMYNDIR