Fréttablaðið - 23.06.2004, Page 35
Breska gamanmyndin The Lady-
killers frá árinu 1955 er fyrir
löngu orðin klassík en þar fóru
Alec Guinness, Peter Sellers, Her-
bert Lom, Cecil Parker og fleiri á
kostum í hlutverkum glæpa-
manna sem leigja hjá eldri konu.
Skúrkarnir þykjast vera tónlistar-
menn og gera heimili konunnar að
miðstöð stórkostlegs ráns sem
þeir eru með í bígerð.
Þegar sú gamla kemst að því
hvað vakir fyrir Guinness og
félögum sjá þeir sér þann kost
vænstan að kála kerlu en komast
að því að kerlingin er ekkert lamb
að leika sér við.
Þeir eru því síður en svo að
ráðast á garðinn þar sem hann er
lægstur, Coen-bræðurnir, en þeir
eru vitaskuld alltaf bestir þegar
þeir vinna með frumsamið efni,
auk þess sem það er álíka mikill
óþarfi að endurgera Ladykillers
og Psycho. Bræðurnir halda sig
við meginþráð gömlu myndarinn-
ar en skella á skeið í persónusköp-
un og samtölum.
The Ladykillers heldur þó ekki
dampi og mun seint flokkast með
betri verkum þessara snjöllu
bræðra. Hún hefði sjálfsagt sigið
vel niður fyrir meðallag í höndun-
um á minni spámönnum en þeim
bræðrum, sem eru meira að segja
góðir á slæmum degi.
Helstu höfundareinkenni
þeirra, kostuleg samtöl og fríkað-
ar persónur, bjarga sögunni fyrir
horn og snilldartaktar nokkurra
aðalleikaranna bjarga rest. Hin
hvimleiði og ofmetni Tom Hanks
er í toppformi, nýtur sín í botn í
rullu Guinness, Marlon Wayans
ofleikur með látum en tekst að
vera fyndinn en senuþjófurinn er
J.K. Simmons, sem er hreint út
sagt dásamlegur í hlutverki eins
hinna misheppnuðu krimma.
Þessi fjölhæfi leikari sem dúkkar
stundum upp í hlutverki geðlækn-
is í Law&Order: Criminal Intent á
síðan eftir að mæta til leiks í enn
betra formi, sem ritstjórinn J.
Jonah Jameson, í Spider-Man 2
seinna í sumar.
Þórarinn Þórarinsson
27MIÐVIKUDAGUR 23. júní 2004
SÍMI: 551 9000 www.regnboginn.is
SÝND kl. 6, 8 og 10.10
KILL BILL kl. 5.30, 8 og 10.50 B.I.16 Síð. sýn. JERSEY GIRL kl. 5.50, 8 og 10.10 - Síð. sýn. BUTTERFLY EFFECT kl. 10LAWS OF ATTRACTION kl. 6, 8 og 10TROY kl. 7 og 10 B.I. 14 HARRY POTTER kl. 6 M/ENSKU TALI
SÝND kl. 5.40, 8 og 10.20 SÝND kl. 5.50, 8.30 og 11 SÝND kl. 6 og 8 SÝND kl. 5.30, 8 og 10.30
HHH
Ó.H.T. Rás 2
HHH
S.V. Mbl.
FORSÝNING KL. 10.15 B.I. 12
Frábær grínmynd
frá leikstjóra
Legally Blonde.
HHHH
"stílhreint
snilldarverk"
HP Kvikmyndir.com
HHH
H.L. MBL
HHH
Skonrokk
...hreinn gullmoli
...Brilljant mynd. Þ.Þ. FBL
HHH1/2
kvikmyndir.is
Þær eru illgjarnar.
Hún er ný.
Og fljótlega
fær hún alveg
nóg af þeim.
Frá framleiðanda
Spider-Man
'*( %
!"# $% &'(
!" !
)' !"# $% &'(
#$
%
&''
!"
G
O
T
T
F
Ó
L
K
M
c
C
A
N
N
·
2
6
4
8
3
Mig vantar eitthvað
gott við ofnæmi.
Notkunarsvið: Lóritín inniheldur virka efnið lóratadin sem hefur kröftuga og langvarandi verkun við algengustu tegundum
ofnæmis. Lyfið er ætlað við frjókorna- og dýraofnæmi, sem og ofnæmi af völdum rykmaura. Varúðarreglur: Gæta þarf sérstakrar
varúðar hjá börnum með alvarlega nýrna- og lifrarsjúkdóma. Sjúklingar með skerta lifrarstarfsemi þurfa minni skammta.
Aukaverkanir: Lóritín þolist yfirleitt vel en algengustu aukaverkanirnar eru munnþurrkur og höfuðverkur. Svimi getur einnig
komið fyrir. Skömmtun: Ein tafla af lóritíni er tekin daglega. Börnum 2-14 ára sem eru undir 30 kg að þyngd nægir hálf tafla
á dag. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2ja ára. Lesið vandlega leiðbeiningarnar sem fylgja lyfinu. Dags. 16.05.00.
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
ti
l 1
.7
. 2
00
4
20%
afsláttur
Tom Hanks
í stuði
[ KVIKMYNDIR ]
UMFJÖLLUN
THE LADYKILLERS
Leikstjórar: Ethan Coen, Joel Coen
Aðalhlutverk: Tom Hanks, Irma P. Hall,
Marlon Wayans, J.K. Simmons
■ HLJÓMLEIKAR
Komnir til að klára dæmið
Hin goðsagnakennda rokkhljóm-
sveit Deep Purple kom til landsins í
gær og þeir Ian Gillan, Roger
Glover, Ian Paice, Don Airey og
Steve Morse hittu fréttamenn að
máli í gær og voru í góðu stuði.
Sveitin hélt síðast tónleika á Íslandi
18. júní 1971 og félagarnir sögðust
vera komnir til að klára tónleikana
sem enduðu í rafmagnsleysi fyrir
33 árum. Þá létu þeir það fylgja sög-
unni að þeir biðu spenntir eftir að fá
að spila fyrir Íslendinga á ný.
Það var uppselt á tónleikana
1971 og allt stefnir í að sagan endur-
taki sig nú en sveitin heldur tvenna
tónleika að þessu sinni í kvöld og
annað kvöld. Það er „gjörsamlega
uppselt á seinni tónleikana,“ segir
Einar Bárðarson tónleikahaldari.
„En enn eru örfáir miðar eftir á tón-
leikana í kvöld og þeir eru sem fyrr
seldir á Hard Rock Cafe.“
Deep Purple er komin á spjöld ís-
lenskrar rokksögu fyrir það að hafa
selt flesta aðgöngumiða á rokktón-
leika á Íslandi með samanlagðri
miðasölu áranna 1971 og 2004.
Þeir Gillan, Glover og Paice hafa
verið í hljómsveitinni frá upphafi
en Airey og Morse slógust í hópinn
fyrir nokkrum árum. Steve Morse
hefur meðal annars verið valinn gít-
arleikari ársins fimm sinnum af
tímaritinu Guitar Player. Þessi liðs-
skipan hefur verið á fleygiferð um
heiminn síðastliðin tvö ár og hefur
leikið við góðar undirtektir.
Sveitin mun leika nýtt og gamalt
efni í bland í Laugardalshöllinni en
kapparnir segja að það munu þó
bera meira á gamla, sterka efninu
sem sveitin er þekktust fyrir. ■
DEEP PURPLE
Eru mættir hressir til landsins eftir áratuga fjarveru og spila í Höllinni í kvöld og annað kvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N