Fréttablaðið - 23.06.2004, Síða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 50 00, fax: 550 50 16 Ritstjórn: 550 50 05, fax: 550 50 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 50 10 - fax 550 57 27, auglysingar@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
Börnin sem
duttu af
himnum
Við og við berast okkur furðu-fréttir héðan úr okkar eigin
samfélagi. Fréttir af atburðum og
uppákomum sem hljóða eiginlega
eins og aprílgabb. Þannig finnst
mér til dæmis vera fréttin af
blessuðum börnunum sem voru að
klára 10. bekk í vor og ekki er rúm
fyrir í framhaldsskólum landsins. Í
fyrsta lagi eru ekki fyrir hendi fjár-
veitingar til að kenna þeim og jafn-
vel þótt svo væri er ekki nægilegt
rými í framhaldsskólahúsum lands-
ins til að hýsa nám þeirra.
HVERNIG geta mörg hundruð ung-
lingar komið í bakið á yfirvöldum
menntamála, spyr sá sem ekki veit?
Það er ekki eins og þessi börn hafi
skyndilega dottið ofan af himnum.
Þvert á móti hafa þau verið tíu ár í
grunnskóla og þar áður nokkur ár í
leikskóla. Á hverju ári hafa þessar
sálir verið taldar samviskusamlega,
hver einasti haus, aftur og aftur, ár
eftir ár. Út hafa verið gefnar skýrsl-
ur um fjölda þeirra og dreifingu og
þar fram eftir götunum.
ÞETTA dugir þó augljóslega ekki
til því nú er allt í hnút og þeir sext-
án ára unglingar sem hafa fengið
bréf um að því miður hafi þeir ekki
fengið skólavist í þeim skóla sem
þeir sóttu um skipta ekki tugum
heldur hundruðum. Og ekki nóg
með að þeir hafi ekki fengið inni
þar sem þeir helst vildu heldur lít-
ur, eins og staðan er, ekki út fyrir
að neinir aðrir skólar geti tekið við
þeim. Satt að segja hljómar þetta
eins og frétt af skólamálum í van-
þróuðu ríki, í landi sem ekki stend-
ur undir sér.
ÞAÐ ER ómögulegt annað en að
ráðin verði bót á þessu, peningarnir
fundnir, húsnæði í nágrenni skól-
anna sem fyrir eru lagað til að ís-
lenskum hætti og gert kennsluhæft
fyrir haustið. Engu að síður er þetta
kjánaleg staða sem hægt hefði verið
að sjá fyrir og leysa með varanlegri
og yfirvegaðri hætti. Það er nefni-
lega ekki nóg að telja. Það verður
líka að nota tölurnar og draga af
þeim ályktanir. Til þess hélt ég eig-
inlega að leikurinn væri gerður. En
það var kannski bara misskilningur.
BAKÞANKAR
STEINUNNAR
STEFÁNSDÓTTUR
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
49
37
0
6/
20
04
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
49
37
0
6/
20
04
Námslán í Einkabankanum
Allir Námufélagar
geta fengið framfærslulán gegn
framvísun lánsáætlunar frá LÍN
fá mun hagstæðari kjör en gilda um
almenn yfirdráttarlán
geta fengið sinn eigin þjónustu-
fulltrúa sem sér um að hækka lánið
eftir því sem líður á önnina
greiða einungis vexti af skuldastöðu
hvers dags en hámarksupphæð miðast
við 100% af lánsáætlun LÍN
Þú sparar þér mikla fyrirhöfn með því að sækja um námslán
hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna í Einkabankanum.
Einfalt og öruggt, engir snúningar og ekkert vesen.
Umsóknarfrestur er til 30. september vegna haustannar
2004 og 31. janúar vegna vorannar 2005.
560 6000 | landsbanki.is
Banki allra landsmanna
Náman - námsmannaþjónusta Landsbankans
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000