Fréttablaðið - 06.08.2004, Blaðsíða 14
14 6. ágúst 2004 FÖSTUDAGUR
VART SVIPUR HJÁ SJÓN
Trevi-gosbrunnurinn í Róm er talsvert frá-
brugðinn því sem ferðamenn og heima-
menn eiga að venjast. Unnið er að hreins-
un gosbrunnsins fræga og því til lítils að
leita sér svölunar í honum eins og leikkon-
an Anita Ekberg gerði í mynd Federico
Fellini La Dolce Vita.
Ísraelsmenn vilja tengja landnemabyggðir við Jerúsalem:
Brýtur í bága við friðaráætlanir
VESTURBAKKINN, AP Ísraelsmenn
áætla að byggja þúsundir húsa í
landnemabyggðinni Maaleh
Adumim á Vesturbakkanum.
Áfram var unnið að gerð vegar
sem tengja á fyrirhugaða byggð
Jerúsalem í gær.
Framkvæmdir Ísraelsmanna á
svæðinu brjóta í bága við friðará-
ætlanir þar sem þess er krafist að
Ísraelsmenn láti af landtöku á
Vesturbakkanum. Bygging hús-
anna hefur enn ekki verið sam-
þykkt en hún þarf að fara um fjöl-
da ráðuneyta áður en hægt er að
hefja framkvæmdir.
Bandaríkjamenn fordæmdu
fyrri áætlanir Ísraelsmanna um
stækkun Maaleh Adumim fyrr í
þessari viku. Nýjar hugmyndir
um landtöku eru mun umfangs-
meiri en hinar fyrri. Ísraelsmenn
hafa lýst því yfir að samráð verði
haft við Bandaríkin og leitað verði
eftir samþykki fyrir þessu verk-
efni og öðrum af sama toga.
Ísraelar hafa sætt vaxandi gag-
nrýni á alþjóða vettvangi. Þeir
hafa enn sem komið er ekki látið
það hafa áhrif á sig. ■
MAALEH ADUMIM
Ísraelsmenn héldu áfram að byggja veg
sem tengja á landnemabyggðina við Jer-
úsalem. Auk þess á að reisa þúsundir húsa
á svæðinu.
AP
M
YN
D
■ EVRÓPA
SPRENGT Í AÞENU Heimatilbúin
sprengja sprakk nærri rafmagns-
stöð í útjaðri Aþenu í gær. Nokkr-
ar skemmdir urðu á stöðinni en
enginn slasaðist. Ekki er vitað
hvort tengja beri sprenginguna
við Ólympíuleikana sem haldnir
verða í borginni síðar í mánuðin-
um. Mikill öryggisviðbúnaður er
í Grikklandi vegna leikanna og
hleypur kostnaður á tugum mill-
jarða króna.
■ ÍRAK
BARIST Á NÝ Í NAJAF Tveir létust
í átökum í írösku borginni Najaf í
gær. Átökin blossuðu upp milli
vígamanna hliðhollum róttæka
sjíaklerkinum Muqtada al-Sadr
og bandarískra hermanna í kjöl-
far árásar vígamannanna á lög-
reglustöð í bænum.
SPRENGDU RÚTU VIÐ LÖGREGLU-
STÖÐ Þrír vígamenn sprengdu í
loft upp litla rútu við lögreglu-
stöð í þorpi skammt sunnan
Bagdad í gær. Fimm týndu lífi og
27 særðust í árásinni sem hófst
með því að tveir mannanna skutu
að öryggisvörðum meðan sá
þriðji keyrði rútuna upp að lög-
reglustöðinni.
VILJA VIÐRÆÐUR UM MÚSLIMA-
HER Stjórnvöld í Malasíu telja að
stofna eigi til formlegra við-
ræðna um möguleika þess að
senda her skipaðan múslimum til
Íraks. Hugmyndin hefur verið
rædd við fjölda múslimaríkja án
niðurstöðu en hún kom upphaf-
lega frá Sádi-Aröbum.
LEIKARNIR UNDIRBÚNIR
Sjúkraliðar og ökumenn sjúkraliða eru
hættir við að fara í verkfall meðan á
ólympíuleikunum stendur.
Ólympíuleikarnir:
Hættu við
verkfall
AÞENA, AP Sjúkraliðar og ökumenn
sjúkrabíla afboðuðu verkfall eftir
að stjórnvöld sögðu að þeir fengju
greitt fyrir þá yfirvinnu sem þeir
vinna meðan á ólympíuleikunum
stendur.
Verkalýðsfélög sjúkraliða og
ökumanna sjúkrabíla boðuðu
verkfall eftir að stjórnvöld neit-
uðu þeim um jafn mikla kaupauka
og lögreglumenn og öryggisverð-
ir fengu. Þeim var lofað allt að
200.000 króna kaupauka. Sjúkra-
liðum og ökumönnum sjúkrabíla
bauðst einungis 3.000 króna
launahækkun á mánuði og það
gátu þeir ekki sætt sig við.
Málið leystist eftir að stjórn-
völd lofuðu að greiða yfirvinnu-
kaup fyrir alla aukavinnu meðan á
ólympíuleikunum stendur. ■
ÁLVERIÐ Í STRAUMSVÍK
Sjöunda stærsta álverið innan Alcan.
Alcan:
Tapi snúið
í hagnað
KANADA, AP Alcan Incorporated,
móðurfélag Alcan á Íslandi, hagn-
aðist um nær 24 þúsund milljarða
króna á öðrum ársfjórðungi. Þetta
er mikil breyting frá sama tíma í
fyrra þegar fyrirtækið tapaði hálf-
um sjöunda milljarði króna.
Helstu ástæðurnar fyrir bættri
afkomu eru kaupin á franska ál-
framleiðandanum Pechiney SA og
hærra álverð. Við kaupin á Pechin-
ey varð Alcan næststærsti álfram-
leiðandi heims. Fyrirtækið er með
starfsemi í 62 löndum auk Íslands
og veitir 88.000 manns atvinnu. ■