Fréttablaðið - 06.08.2004, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 06.08.2004, Blaðsíða 15
15FÖSTUDAGUR 6. ágúst 2004 Reiðskóli í Frakklandi: Sjö táningar létu lífið CHAMBERY, AP Sjö táningar létu lífið eftir eldsvoða í reiðskóla norðan borgarinnar Chambery í austur- hluta Frakklands í fyrrinótt. Eldur- inn kom upp í hesthúsi þaðan sem hann breiddist út til vistarvera nemenda. Fórnarlömb slyssins voru á aldrinum þrettán til fimmtán ára. Þá er tveggja kennara saknað en sá þriðji var fluttur alvarlega slasað- ur á sjúkrahús eftir eldsvoðann. Tala látinna er því enn ekki kunn. ■ BREYTINGUNUM MÓTMÆLT Aldraðir Rússar mótmæla fyrir framan þinghúsið þegar frumvarp um að afnema fríðindi þeirra var samþykkt. Aldraðir og öryrkjar: Fríðindin afnumin RÚSSLAND, AP Margvísleg fríðindi, sem Rússar hafa átt rétt á frá því á tímum Sovétríkjanna, heyra vænt- anlega sögunni til innan skamms eftir að neðri deild þingsins sam- þykkti lagafrumvarp sem afnemur þau. Aldraðir og öryrkjar hafa átt rétt á ókeypis almenningssam- göngum, lyfjum og læknishjálp. Nú hyggjast stjórnvöld einfalda bóta- kerfið og hafa ákveðið að aldraðir og öryrkjar fái peningagreiðslur í stað annarra fríðinda. Andstæðing- ar breytinganna hafa hins vegar gagnrýnt að þær greiðslur dugi engan veginn til að standa straum af kostnaði sem fellur hér eftir á aldraða og öryrkja. ■ Her Jemens: Beint gegn uppreisn JEMEN, AP Her Jemens hefur hleypt af stokkunum meiriháttar aðgerðum sem beint er gegn upp- reisnarmönnum í fjalllendi í norð- urhluta landsins. Um það bil fimmtíu hermenn og uppreisnar- menn hafa látið lífið síðustu daga í átökunum. Herinn hefur fengið liðsstyrk um tvö þúsund hermanna auk vopnaðra meðlima ættbálka af svæðinu. Hernum er beint gegn áhangendum leiðtogans Hussein Badr Eddin al-Houti sem lengi hefur eldað grátt silfur við stjórn- völd í landinu. ■ SKÓLAMÁL Fjöldatakmarkanir í Há- skóla Íslands og Háskólann á Ak- ureyri munu reynast íslensku þjóðinni dýrkeyptar þar sem hundruð einstaklinga er gert ókleift að stunda æðri menntun, að því er þingflokkur Samfylking- arinnar heldur fram. Þingflokkurinn skorar á stjórn- völd að tryggja skólunum það fjármagn sem nægir til að allir fái þar tækifæri án takmarkana. Segir í tilkynningu frá Sam- fylkingunni að stjórnvöld hafi svelt opinbera háskóla og þess vegna standi þeir frammi fyrir af- arkostum sem séu annaðhvort að fá heimild til innheimtu skóla- gjalda eða að taka upp fjöldatak- markanir. Fjöldi nemenda með stúdents- próf af verknámsbrautum eða með sambærilega menntun og reynslu fái sem dæmi ekki inni í Háskóla Íslands í ár og sé það grundvallarbreyting frá því sem tíðkast hefur. Skaði þjóðfélagsins af slíku sé mikill og vinni beint gegn markmiðum um hærra menntunarstig þjóðarinnar. ■ Þingflokkur Samfylkingar mótmælir fjöldatakmörkunum við háskóla: Dýrkeypt fyrir þjóðina HÁSKÓLI ÍSLANDS Engar undanþágur fyrir aðra en þá sem hafa stúdentspróf af bóknámsbrautum. Grænlandsmið: Leggja til veiðibann SJÁVARÚTVEGUR Fiskifræðingar á Grænlandi telja ástand stofna við vesturhluta landsins svo slæmt að lagt er til að veiðar á nokkrum mikil- vægum tegundum verði hætt. Í frétt- um Ríkisútvarpsins í gær kom fram að fiskifræðingar leggi til að ekkert verði veitt af þorski, steinbíti, karfa og skötu á næsta ári. Að sögn Sveins Sveinbjörnssonar hjá Hafrannsóknastofnuninni er eng- in ástæða til að óttast það að grípa þurfi til slíkra aðgerða á Íslandsmið- um. „Menn geta alveg verið vissir um að miðað við núverandi vitneskju þá er ekkert sem kallar á slík viðbrögð á Íslandsmiðum,“ segir hann. ■ Hjúkrunarfræðingur: Myrti tíu sjúklinga BERLÍN, AP Þýskur hjúkrunarfræð- ingur hefur viðurkennt að hafa myrt tíu aldraða sjúklinga á þýsku sjúkrahúsi með því að gefa þeim of stóra lyfjaskammta. Lát sjötíu sjúklinga til viðbótar eru einnig til rannsóknar. Maðurinn, sem er 25 ára, sagði lögreglumönnum í síðustu viku að hann hefði gefið sjúklingunum tíu of stóra skammta vegna þess að hann hefði ekki getað horft upp á að þeim hrakaði dag frá degi. Ákveðið hefur verið að grafa upp lík þriggja einstaklinga svo hægt sé að kryfja þau. ■ H im in n o g h af - 9 04 04 84 – fyrir allt sem þú ert Námskort SPRON er nýtt, gegnsætt debetkort sérstaklega ætlað námsmönnum sextán ára og eldri. Með kortinu átt þú möguleika á: • Hærri vöxtum á inneign • Lægri vöxtum við lántökur* • Námsstyrk • Bókastyrk • Bílprófsstyrk (fyrir þá sem verða 17 ára á árinu) • Tölvukaupaláni* • Námslokaláni* • Sértilboðum hjá verslunum og þjónustufyrirtækjum • Minniskubb með usb-tengi fyrir tölvur að gjöf Kynntu þér málið á www.spron.is eða sláðu á þráðinn. Síminn er 550 1200. – með nýju Námskorti SPRON *Samkvæmt útlánareglum SPRON Út í lífi› Léttu þér námið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.