Fréttablaðið - 06.08.2004, Blaðsíða 40
32 6. ágúst 2004 FÖSTUDAGUR
■ MYNDLISTARSÝNING
■ ■ SAMKOMUR
13.00 Handverkshátíðin Handverk
2004 að Hrafnagili í Eyjafjarðar-
sveit.
■ ■ LISTAOPNANIR
Ásta Björk Friðbertsdóttir sýnir í
Listmunahorninu í Árbæjarsafni.
Sýningin stendur til 13. ágúst.
■ ■ TÓNLEIKAR
20.30 Hljómsveitin Icelandic
Sound Company (ISC) heldur
tónleika á Hjalteyri.
21.00 Andrés Þór djassgítarleikari
og Simon Jermyn spila á kaffi
Nauthól.
21.30 Svare/Thoroddsen tríó leik-
ur á Django Jazz Festival í Ketil-
húsinu á Akureyri.
22.00 Gummi Jóns leikur og syng-
ur á Hópinu, Tálknafirði.
23.00 Hölt hóra og Jan Mayen á
Grand Rokk.
■ ■ SKEMMTANIR
21.00 Rímnastríð 2004 verður
haldið á Gauknum í kvöld.
23.00 Hljómsveitin Furstarnir leik-
ur fyrir dansi á Kringlukránni.
Dúettinn Halli og Kalli skemmtir á
Ara í Ögri.
Atli skemmtanalögga á Hressó.
Brimkló spilar á Players í Kópavogi.
DJ Ísi verður í búrinu á Nasa við
Austurvöll.
DJ Andri á Hverfisbarnum.
Palli í Maus á Laugavegi 22.
Doktorinn á Felix.
Spilafíklarnir skemmta á Dubliner.
Strákarnir í Kung Fú lofa banastuði á
Lundanum í Eyjum
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
Leiðist
barninu
í bílnum?
Splunkunýjar
hljóðbækur á CD
Lína langsokkur
Hrói höttur
Grimms-ævintýri
Skemmtilegu
smábarnabækurnar
Verð frá kr. 1.790
Fást í bókabúðum og hjá Olís.
Hægt að panta í síma 820-0782
eða á hljodbok.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
3 4 5 6 7 8 9
Föstudagur
ÁGÚST
Myndlistartvíæringurinn Trommu-
sóló B1 verður haldinn í húsakynn-
um KlinK og BanK í dag og á morg-
un. Að tvíæringnum stendur mynd-
listardeild Lorts, en fyrir tveimur
árum var myndlistarsýning Lorts
haldin að Ránargötu 3a, og hét þá
Trommusóló R3a.
„Það var í heimahúsi þá og tölu-
vert minna í sniðum,“ segir Ragnar
Bragason, talsmaður Lorts.
Á myndlistarsýningunni verða
„myndlistarverk af öllum stærðum
og gerðum, bæði málverk, innsetn-
ingar, vídeólist, ljósmyndir, allt
sem flóran tekur.“
Meðal sýnenda má nefna Davíð
Örn Halldórsson Hamar, Bjarna
Massa, Kristján Loðmfjörð, Val-
garð Bragason, Huldu Vilhjálms-
dóttur, Ólaf Egil Egilsson, Claus
Nielsen og Stephan Felguth. Og er
þá fátt eitt talið.
„Þetta eru listamenn frá tveim-
ur heimsálfum, flestir í yngri kant-
inum,“ segir Ragnar.
Í tengslum við myndlistarsýn-
inguna verða haldin tónlistarkvöld,
bæði í kvöld og annað kvöld, þar
sem koma fram sjö hljómsveitir. Í
kvöld spila Forhúð forsetans, Út-
burðir, TZMP og Helmes og Dalle.
Annað kvöld koma síðan fram Am-
ina, Skakkamanage og Kimono.
„Þarna spila bæði strengjakvar-
tett og rappdúett, einhvers konar
rokkhljómsveit og pönkhljómsveit
líka. Alls konar tónlist.“
Á laugardag verða auk þess
framdir þrír gjörningar. Gjörning-
ana fremja þeir Davíð Þór Jónsson,
sem er betur þekktur sem píanó-
leikari, Gunnlaugur Egilsson, sem
er dansari, og svo Baldur Björns-
son, sem er eini myndlistarmaður-
inn í þeim hópi.
„Við verðum að hafa þetta með
til þess að leyfa fólki að tjá sig,“
segir Ragnar, en tekur fram að
sjálfum leiðist sér gjörningar. „Það
liggur í eðli gjörningsins að vera
fáviti og fara yfir strikið.“
Félagarnir í Lorti hafa verið að
velta því fyrir sér hvers vegna þeir
létu þessa hátíð sína heita Trommu-
sóló, og komast helst að þeirri nið-
urstöðu að þarna verði taumlaust
sóló á öllum vígstöðvum.
„Öllum finnst gaman að taka
sóló. Þarna verður líka opið
trommusett á milli tónlistaratriða
þar sem fólk getur tekið sóló á eig-
in ábyrgð.“ ■
AÐSTANDENDUR
TVÍÆRINGSINS
Mikill fjöldi listamanna
stendur að myndlistartvíær-
ingnum Trommusóló B1,
sem haldinn verður í húsa-
kynnum KlinK og BanK.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Taumlaus sóló
í KlinK og BanK