Fréttablaðið - 06.08.2004, Qupperneq 34
FÓTBOLTI Keflvíkingar tryggðu sér
sæti í undanúrslitum VISA-bikars
karla í fótbolta í gærkvöld þegar
þeir lögðu Fylkismenn að velli í
Árbænum, 1-0. Það var Þórarinn
Kristjánsson, hinn alræmdi bjarg-
vættur Keflvíkinga, sem tryggði
þeim sigurinn á 68. mínútu eftir
glæsilegan undirbúning vara-
mannsins Scotts Ramsey og
Jónasar Guðna Sævarssonar.
Fyrri hálfleikur var ansi dauf-
ur og lítið um skemmtileg tilþrif.
Fylkismenn voru meira með bolt-
ann en þeim tókst aldrei að ógna
marki Keflvíkinga að neinu ráði.
Þeir áttu nokkur langskot en það
sem vakti kannski mesta athygli
var hversu litla áhættu liðin tóku.
Bæði lið sóttu yfirleitt ekki á fleiri
mönnum en tveimur með litlum
sem engum árangri. Það verður þó
að segjast báðum liðum til hróss
að varnarleikur beggja var þéttur
og sterkur.
Í síðari hálfleik hresstist aðeins
yfir leiknum og Sævar Þór Gísla-
son, framherji Fylkismanna, var
klaufi að koma þeim ekki yfir þeg-
ar hann komst einn í gegnum vörn
Keflvíkinga en skaut framhjá á 52.
mínútu. Sjö mínútum síðar kom
síðan vendipunkturinn í leiknum.
Þá fékk Fylkismaðurinn Björgólf-
ur Takefusa að líta rauða spjaldið
fyrir munnbrúk og í framhaldinu
tóku Kelfvíkingar öll völd á vellin-
um. Þeir uppskáru mark níu mín-
útum síðar eins og áður hefur ver-
ið lýst og voru í raun nær því að
bæta við öðru marki en Fylkis-
menn að jafna. Fylkismenn lögðu
eiginlega upp laupana eftir mark-
ið og virtust ekki hafa nokkra trú
á því að þeir gætu jafnað leikinn.
Þeir þurfa heldur betur að hysja
upp sig brækurnar og Valur Fann-
ar Gíslason, fyrirliði Fylkis, sagði
að það væri engin uppgjöf í Fylk-
ismönnum. „Það verður bara að
segjast eins og er að hlutirnir eru
ekki að falla fyrir okkur núna. Það
var erfitt að vera einum færri en
þeir skoruðu gott mark og það
verður að hrósa þeim fyrir það.
Við erum ekki hættir, það er nóg
eftir af deildinni og einhvern tíma
hlýtur þetta að falla okkar megin,“
sagði Valur Fannar.
Keflvíkingurinn Guðjón Árni
Antoníusson var hins vegar sáttari
í leikslok.
„Þetta var afskaplega sætur
sigur og kærkominn eftir heldur
brösugt gengi í deildinni að undan-
förnu. Mér fannst við eiga sigur-
inn skilið því þeir sköpuðu sér
engin færi að ráði,“ sagði Guðjón.
■
6. ágúst 2004 FÖSTUDAGUR
0–1 Þórarinn Kristjánsson 68.
DÓMARINN
Egill Már Markússon slakur
BESTUR Á VELLINUM
Ingvi Rafn Guðmundsson Keflavík
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 19–9 (4–4)
Horn 6–1
Aukaspyrnur fengnar 20–17
Rangstöður 1–3
MJÖG GÓÐIR
Ingvi Rafn Guðmundsson Keflavík
GÓÐIR
Valur Fannar Gíslason Fylki
Gunnar Þór Pétursson Fylki
Magnús Þormar Keflavík
Guðjón Árni Antoníusson Keflavík
Haraldur Guðmundsson Keflavík
Jónas Guðni Sævarsson Keflavík
Scott Ramsey Keflavík
0-1
FYLKIR KEFLAVÍK
VISA-BIKAR KARLA
VÍTAKEPPNIN (3–0 FYRIR KA)
Atli Sveinn Þórarinsson 1–0
Gunnar Heiðar Þorvaldssson varið
Örlygur Þór Helgason 2–0
Matt Garner varið
Jóhann Helgason 3–0
Ian Jeffs varið
DÓMARINN
Magnús Þórisson Góður
BESTUR Á VELLINUM
Sandor Matus KA
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 12–7 (5–3)
Horn 11–2
Aukaspyrnur fengnar 17–14
Rangstöður 1–2
FRÁBÆRIR
Sandor Matus KA
MJÖG GÓÐIR
Birkir Kristinsson ÍBV
GÓÐIR
Atli Sveinn Þórarinsson KA
Ronni Hartvig KA
Hreinn Hringsson KA
Örlygur Þór Helgason KA
Tryggvi Bjarnason ÍBV
Bjarnólfur Lártusson ÍBV
Páll Hjarðar ÍBV
Gunnar Heiðar Þorvaldsson ÍBV
KA ÍBV
Átta liða úrslit VISA-bikars karla í knattspyrnu:
KA-menn í undan-
úrslit fjórða árið í röð
FÓTBOLTI Það má með sanni segja
að ungverski markvörðurinn
Sandor Matus hafi verið þyngdar
sinnar virði í gúllasi fyrir KA-
menn í gærkvöld en hann tryggði
þeim sæti í undanúrslitum VISA-
bikarsins nánast upp á eigin spýt-
ur eftir viðureign við Eyjamenn á
Akureyrarvelli í gær. Staðan var
markalaus eftir venjulegan leik-
tíma og framlengingu og því
þurfti að grípa til vítaspyrnu-
keppni. Þá tók Matus til
sinna ráða og varði allar
þrjár vítaspyrnur Eyja-
manna í vítakeppn-
inni. Á sama tíma
tíma skoruðu KA-
menn úr öllum
þremur spyrnum
sínum og tryggðu
sér þar með sæti í
u n d a n ú r s l i t u m
bikarsins fjórða árið í röð.
KA-menn voru mun sterkari
aðilinn í leiknum allt þar til á
75. mínútu þegar Dean Martin
fékk rauða spjaldið fyrir brot á
Bjarnólfi Lárussyni. Allt annað
var að sjá til liðsins heldur en í
síðustu leikjum en leikurinn jafn-
aðist nokkuð eftir að Martin var
farinn af velli. Gunnar Heiðar
Þorvaldsson og KA-maðurinn Jó-
hann Þórhallsson fengu báðir
tækifæri til að skora fyrir sín lið
en bestu menn liðanna, markverð-
irnir Sandor Matus og Birkir
Kristinsson, sáu við þeim eins og
öðrum leikmönnum liðanna í gær-
kvöld.
„Vítaspyrnukeppnir
eru alltaf erfiðar.
Þegar út í þær er
komið þá er jafnt á
komið með sóknar-
mönnum og mark-
mönnum. Í dag
hafði ég betur.
Liðið er búið
að spila illa í
deildinni en
vel í bikarn-
um og von-
andi hjálpar
þessi leikur
okkur gegn
S k a g a -
mönnum í
deildinni á
sunnudag-
inn,“ sagði
S a n d o r
Matus, hin
ungverska hetja
KA-manna, eftir
leikinn
SIGURMARKINU FAGNAÐ Keflvíkingar sjást hér fagna sigurmarki Þórarins Kristjánssonar í leiknum gegn Fylki í gær, marki sem tryggði
þeim sæti í undanúrslitum VISA-bikarsins.
HETJA KA Ungverjinn
Sandor Matus.
Fallvölt Fylkisgæfa
Misstu Björgólf Takefusa af velli með rautt spjald og töpuðu í framhald-
inu fyrir Keflvíkingum í átta liða úrslitum VISA-bikarsins.
LEIKIR GÆRDAGSINS
VISA-BIKAR KARLA
0-0