Fréttablaðið - 06.08.2004, Side 35

Fréttablaðið - 06.08.2004, Side 35
KÖRFUBOLTI Íslenska landsliðið í körfuknattleik leikur þrjá leiki gegn því pólska um helgina og fer fyrsti leikurinn fram í DHL-höll- inni í Vesturbænum í kvöld kl. 20. Pólska liðið er gífurlega sterkt, er í A-deildinni í undankeppni Evr- ópumótsins og því er við ramman reip að draga hjá íslenska liðinu. Sigurður Ingimundarson, þjálfari íslenska landsliðsins, hef- ur látið landsliðshóp sinn æfa stíft í sumar fyrir leiki Íslands í undan- keppni Evrópumótsins en ís- lenska liðið mætir Dönum, Rúm- enum og Aserum í september. Sigurður sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að hann fagn- aði leikjum gegn jafnsterkum andstæðingum og Pólverjum því leikir gegn slíkum þjóðum væru prófsteinn á stöðu liðsins meðal þeirra bestu. „Við viljum komast upp í A-deildina og með leikjum gegn liðum eins og Pólverjum þá fáum við að vita hversu langt við eigum í land. Það er rúmur mán- uður í leikina í Evrópumótinu og við höfum nægan tíma til að laga það sem aflaga fer í leikjunum gegn Pólverjum,“ sagði Sigurður. Hann sagði aðspurður að hann væri mjög ánægður með lands- liðshópinn sem hefur æft á fullu í allt sumar. „Strákarnir hafa lagt virkilega hart að sér og þeir hafa sannfært mig um að við getum farið enn hærra og orðið enn betri. Það kostar reyndar mikla vinnu en ég held að það sé ekki spurning að við getum náð mun lengra en á þann stað sem við erum á í dag.“ Þær gleðifregnir bárust í gær að Jón Arnór Stefánsson, leikmað- ur Dallas Mavreicks í NBA- deildinni, yrði með íslenska landsliðinu í leikjunum í Evrópumótinu eftir að VÍS lagðist á sveif með Körfuknatt le ikssam- bandinu við að greiða himinhátt tryggingargjald sem NBA-deildin fer fram á fyrir leikmenn sína í lands- leikjum. Ólafur Rafnsson, formaður Körfuknattleiks- sambands Íslands, sagði að- spurður að ekki væri hægt að gefa upp að svo stöddu hversu há sú fjarhæð væri en hún væri umtalsverð. Sigurður lands- liðsþjálfari sagðist að sjálf- sögðu fagna því að Jón Arnór yrði með enda væri ekki nokkur spurning að lið- ið væri betra með hann inn- anborðs. Leikstjórn- andinn efni- legi Pavel Ermolinskí, sem er aðeins 17 ára gamall, var tekinn inn í landsliðshópinn fyrir skömmu og Sigurður staðfesti að Ermolinskí myndi spila í ein- hverjum af leikjunum gegn Pól- verjum. „Hann er óvenjulegur leikmaður með mikla hæfileika, tveggja metra hár leikstjórnandi, og það verður gaman að sjá hann spila.“ FÖSTUDAGUR 6. ágúst 2004 27 Prófsteinn á stöðu okk- ar meðal þeirra bestu Sigurður Ingimundarson, landsliðsþjálfari í körfuknattleik, fagnar lands- leikjunum gegn sterku liði Pólverja og vonast eftir að fá skýra mynd af styrkleika íslenska liðsins eftir leikina þrjá sem fara fram um helgina. 800 7000 - siminn.is með Símanum í sumar Ótrúlega gaman * Gildir eingöngu fyrir GSM kort frá Símanum. ** 500 kr. á mánuði í 6 mánuði innan kerfis Símans, inneign flyst ekki á milli mánaða. N O N N I O G M A N N I I Y D D A / s ia .is / N M 12 68 3 Með GSM símum* í sumar fylgir: 3.000 kr. SMS inneign** 3.000 kr. inneign í Retro Léttkaups- útborgun og 1.500 kr. á mánuði í 12 mánuði Verð aðeins 18.980 kr. Eingöngu fyrir kort frá Símanum. Sony Ericsson T610 980500 kr. SMS inneign ef þú fyllir rafrænt á Frelsið Fylltu rafrænt á Frelsið fyrir 2.000 kr. eða meira og þú færð 500 kr. SMS inneign innan kerfis Símans. Tilboðið gildir til 31. ágúst. SIGURÐUR INGIMUND- ARSON Segist hafa trú á því að íslenska lands- liðið í körfu- knattleik geti náð mun lengra.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.