Fréttablaðið - 15.05.2004, Qupperneq 2
2 15. maí 2004 LAUGARDAGUR
“Nei, ég þarf að drusla mér í ýmis
verk sem bíða mín næstu daga og
það verður ekkert legið á melt-
unni.“
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna,
fór mikinn á Alþingi í gær og kallaði forsætisráð-
herra gungu og druslu þar sem ráðherra sýndi
engan áhuga á að hlusta á rök minnihlutans gegn
fjölmiðlafrumvarpinu.
SPURNING DAGSINS
Steingrímur, á svo bara að druslast
heima um helgina?
Algjörlega vanhæfur
Davíð Oddsson forsætisráðherra segir forseta Íslands vanhæfan til að
fjalla um fjölmiðlafrumvarpið vegna tengsla sinna við forstjóra Norður-
ljósa og þar sem dóttir hans starfi fyrir Baug.
STJÓRNMÁL „Það er augljóst að
Ólafur Ragnar Grímsson er for-
seti allrar þjóðarinnar og getur
ekki gengið er-
inda eins auð-
hrings,“ sagði
Davíð Oddsson
f o r s æ t i s r á ð -
herra í viðtali
við Jóhönnu
Vigdísi Hjalta-
dóttur, frétta-
mann Sjón-
varpsins, í gær-
kvöld en áður
hafði hann neit-
að öðrum fjöl-
miðlum um við-
tal.
Aðspurður hvort hann teldi
ólíklegt að Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands,
staðfesti lög þau
um eignarhald
á fjölmiðlum
sem liggur
fyrir Alþingi
sagðist hann
enga hug-
mynd um það
hafa.
„En í mínum huga er það klárt
að það getur hann ekki af tveim-
ur ástæðum. Vegna þess að lög-
menn deila um það hvort synjun
sé á valdi forsetans eða ráðherra.
Ef hin túlkunin er rétt þá er þetta
í eina skiptið miðað við stjórnar-
skrána sem þetta er persónulegt
vald forsetans að geta synjað og
þá vakna allar vanhæfisreglur
sem við búum við í þessu landi
og ef einhver er vanhæfur til að
taka á þessu máli þá er það Ólaf-
ur Ragnar Grímsson.“
Forsætisráðherra færði þau
rök fyrir máli sínu að forstjóri
Norðurljósa væri jafnframt for-
maður stuðningsmannafélags
Ólafs Ragnars og að forsetinn
hafi ítrekað boðið til veislu í
hvert sinn sem Stöð 2 hafi fengið
lán hjá erlendum lánastofnunum
og þar fyrir utan ynni dótt-
ir forsetans hjá Baugi.
„Ef einhver er algjör-
lega vanhæfur til að
synja þessum lögum þá
er það forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Gríms-
son. Þannig að hvoru
megin sem lögfræðitúlk-
unin liggur þá er algjör-
lega ljóst að hann getur ekki
synjað þessum lögum.“
Forsætisráðherra gagnrýndi
ennfremur skyndilega heimkomu
forsetans og sagði óskiljanlegt
hvaða erindi Ólafur ætti hér á
landi sem væru merkilegri en
brúðkaup danska prinsins. „Það
verða engin mál afgreidd hér í
þessari eða næstu viku en brúð-
kaupið stendur ekki lengi og þar
hafði hann lofað komu sinni. Við
þurfum að útskýra fyrir dönsku
ríkisstjórninni og konungsfjöl-
skyldunni hvað hafi bjátað á og
það botnar enginn neitt í þessu.“
Davíð vildi þó ekki meina að
um einhverja togstreitu væri að
ræða milli forsetaembættisins
og Alþingis. „Það er engin tog-
streita í gangi og hefur aldrei
verið í 60 ár.“
Ekki náðist í Halldór Ás-
grímsson utanríkis-
ráðherra né heldur
Davíð Oddsson
f o r s æ t i s r á ð -
herra. Hjá skrif-
stofu forseta Ís-
lands fengust
þær upplýsingar
að forsetinn vildi
ekki tjá sig um
ummæli forsætis-
ráðherra.
albert@frettabladid.is
ÍRAK, AP Harðir bardagar geysuðu
í írösku borginni Najaf þegar
Bandaríkjaher réðist gegn vígjum
andspyrnumanna í borginni. Bar-
dagarnir stóðu yfir klukkustund-
um saman og bárust víða um
borgina.
Stór hluti átakanna átti sér stað
í grafreit borgarinnar sem er tal-
inn vera sá stærsti í heimi. Þar úir
og grúir af legsteinum og graf-
hýsum sem veita hermönnum og
andspyrnumönnum gott skjól.
Bandaríkjaher sendi skriðdreka
sína inn í grafreitinn til að berjast
við andspyrnumenn en reykjar-
mökkur lagðist yfir grafreitinn.
Að sögn lækna á sjúkrahúsi
borgarinnar féllu fjórir Írakar í
bardögunum í gær og 26 særðust,
flestir þeirra óbreyttir borgarar.
Musteri Imam Ali, einn
helgasti staður sjíamúslima, varð
fyrir skemmdum í bardögunum.
Bæði Bandaríkjamenn og and-
spyrnumenn sem fylgja klerknum
Muqtada al-Sadr kenndu hvor öðr-
um um. ■
Eldur að Stóruvöllum:
Annar brun-
inn á árinu
BRUNI Í annað skiptið á tæpum
fjórum mánuðum kom upp eldur í
kerta- og tólgaverksmiðjunni við
bæinn Stóruvelli í Bárðadal í gær.
Engan sakaði.
Að sögn lögreglu brunnu tveir
gámar sem innréttaðir höfðu ver-
ið og notaðir til bráðabirgða undir
kerta- og tólgaframleiðsluna síð-
an útihúsin við bæinn brunnu í lok
janúar. Tilkynnt var um eldinn um
klukkan átta í gærmorgun og fór
slökkviliðið í Þingeyjarsveit og
slökkvilið Húsavíkur strax á stað-
inn. Slökkvistarfið gekk vel en lík-
legt er talið að upptök eldsins
megi rekja til rafmagnshellu sem
búið var að kveikja á.
Þegar eldur kom upp í útihús-
unum 25. janúar varð mikið
eignatjón á framleiðslutækjum
og húsunum sjálfum. Þá urðu
smávægilegar reykskemmdir á
íbúðarhúsnæði við útihúsin og
bílum sem stóðu við þau. Tjónið
nú er metið á milljónir króna en
allur nýi vélbúnaðurinn og tæki
sem keypt voru eftir fyrri brun-
ann eru ónýt. ■
Steingrímur J. Sigfússon:
Þetta gengur
ekki
STJÓRNMÁL „Þetta voru gríðarlega
föst skot,“ segir Steingrímur J.
Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, um orð forsætisráðherra
um forseta Íslands.
„Þegar á orrahríð forsætisráð-
herra og forsetans stóð fyrr í vet-
ur taldi ég mig tala fyrir munn
stórs hluta þjóðarinnar þegar bað
mennina um að vinsamlegast
hætta þessu. Þeir ættu að gjöra
svo vel að koma samskiptum sín-
um í eðlilegt horf. Það sama gildir
áfram. Ég segi bara ósköp einfald-
lega – þetta gengur ekki.“ ■
FJÖLMIÐLAFRUMVARPIÐ R-listinn er á
móti fjölmiðlafrumvarpi ríkis-
stjórnarinnar í núverandi mynd
og hyggst leggja fram tillögu að
bókun á borgarráðsfundi á þriðju-
daginn þar sem þess verður kraf-
ist að ríkisstjórnin stofni ekki
rekstri fjölmiðlafyrirtækja og at-
vinnuöryggi starfsfólks þeirra í
hættu.
„Vegna umræðu um starfsum-
hverfi fjölmiðla vill borgarráð
vekja athygli þingmanna á nauð-
syn þess að fjölmiðlar búi við
stöðugleika og öruggt lagaum-
hverfi ekki síður en önnur at-
vinnustarfsemi í Reykjavík,“ seg-
ir meðal annars í tillögu R-listans.
„Fjölmiðlarekstur og útgáfa er
mikilvæg atvinnugrein í Reykja-
vík. Nægir að nefna að milli tvö til
þrjú þúsund einstaklingar starfa
við fjölmiðla og þar með eiga jafn-
margar fjölskyldur lífsafkomu
sína að hluta eða heild undir blóm-
legum rekstri fjölmiðla. Gera
verður þá kröfu að aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar stofni ekki rekstri
fjölmiðlafyrirtækja og atvinnuör-
yggi starfsfólks í hættu nema
brýna nauðsyn beri til og ljóst sé
að mildari úrræði nái ekki sömu
markmiðum. Borgarráð hvetur
því til vandaðrar og ítarlegrar
umræðu um málið og að málið
verði ekki afgreitt með hraði.“
Alfreð Þorsteinsson segir að á
sama tíma og borgaryfirvöld séu
að reyna að efla atvinnulífið með
virkjunarframkvæmdum og
öðru slíku ætli ríkisstjórnin með
einni lagasetningu að skapa at-
vinnuleysi hjá jafnvel enn meiri
fjölda en borgin sé að reyna að
skapa atvinnu fyrir. Það gangi
ekki. ■
„Þannig að
hvoru megin
sem lögfræði-
túlkunin ligg-
ur þá er al-
gjörlega ljóst
að hann get-
ur ekki synjað
þessum lög-
um.
ALFREÐ
ÞORSTEINS-
SON
Formaður
borgarráðs
segir að það
gangi ekki að
ríkisstjórnin
sé að setja
lög sem valdi
fjöldi fólks í
borginni eigi
á hættu að
missa atvinn-
una.
R-listinn er á móti fjölmiðlafrumvarpinu í núverandi mynd:
Atvinnuöryggi starfsfólks
verði ekki stofnað í hættu
Harðir bardagar í Írak:
Barist innan um
legsteina Najaf
REYKUR YFIR GRAFREITNUM
Bandarískir skriðdrekar héldu inn í grafreit-
inn þar sem fylgismenn Muqtada al-Sadr
höfðust við.
Össur Skarphéðinsson:
Biðjist af-
sökunar
STJÓRNMÁL „Forsætisráðherra ætti
tafarlaust á morgun að biðja for-
seta lýðveldisins og þjóðina alla
afsökunar á því orðbragði sem
hann notaði gagnvart forseta lýð-
veldisins,“ segir Össur Skarphéð-
insson, formaður Samfylkingar-
innar, um þau ummæli sem for-
sætisráðherra lét falla um forseta
Íslands í Sjónvarpinu í gær.
„Ég minnist þess ekki að hafa
nokkru sinni heyrt af þvílíkri
framkomu gagnvart þjóðhöfð-
ingjanum. Nú er það svo að við
sem stöndum í eldlínu stjórnmál-
anna lendum oft í orrahríð en
menn verða að geta hafið sig upp
úr persónulegu skaki og það er
grundvallarkrafa að börn okkar
séu friðhelg. Mér brá þegar ég
heyrði forsætisráðherra ráðast
með þessum hætti á persónu og
fjölskyldu forsetans. Það er
ósæmilegt og með tillti til þess að
forsætisráðherra er alþingismað-
ur þá er það mín skoðun að hann
hafi orðið Alþingi til skammar.
Það var líka einstaklega fróð-
legt að heyra forsætisráðherrann
tala um vanhæfi forsetans, því
það eru ekki giska margir dagar
frá því að sá góði maður skrifaði
sjálfur undir staðfestingu á því að
frændi hans væri skipaður í emb-
ætti hæstaréttardómara. Maður,
líttu þér nær. ■
Hjálmar Árnason:
Er hugsi
STJÓRNMÁL „Ég er hugsi yfir
þessu,“ sagði Hjálmar Árnason,
formaður þingflokks Framsókn-
arflokks, um orð forsætisráð-
herra um forseta Íslands.
„Það stóð til að þingflokkur-
inn kæmi saman í dag, ekki af
þessu tilefni. En mér finnst ekki
óeðlilegt að við ræðum þetta.“ ■
Magnús Þór Hafsteinsson:
Ómakleg
ummæli
STJÓRNMÁL „Ummæli forsætisráð-
herra eru ómakleg í meira lagi
og ég styð forseta vor fullkom-
lega vegna ákvörðunar hans að
vera hér heima á Íslandi meðan
þetta gengur yfir,“ segir Magnús
Þór Hafsteinsson, þingflokksfor-
maður Frjálslynda flokksins.
„Þetta er hans fyrsta og fremsta
embættisskylda gagnvart þegn-
um sínum hér heima og allt ann-
að verður að koma seinna. Hans
skyldur eru ekki gagnvart
dönskum aðli við konungleg
brúðkaup heldur við íslenskan
almenning og tal um allt annað
er út í hött.“ ■
FORSETI OG FORSÆTISRÁÐHERRA
Davíð Oddsson gagnrýndi Ólaf Ragnar
Grímsson harðlega í viðtali við ríkissjón-
varpið í gærkvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
AM
SE
TT
M
YN
D
02-03 14.5.2004 22:38 Page 2