Fréttablaðið - 15.05.2004, Síða 6
6 15. maí 2004 LAUGARDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 74.2 -0.13%
Sterlingspund 130.9 -0.56%
Dönsk króna 11.78 -0.50%
Evra 87.83 -0.33%
Gengisvístala krónu 123,65 -0,33%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 378
Velta 10.557 milljónir
ICEX-15 2.689 0,46%
Mestu viðskiptin
Íslandsbanki hf. 337.685
Síldarvinnslan hf. 229.885
Marel hf. 167.825
Mesta hækkun
Marel hf. 2,58%
Burðarás hf. 2,00%
Straumur Fjárfestingarbanki hf 1,57%
Mesta lækkun
Össur hf. -1,74%
Flugleiðir hf. -1,33%
Landsbanki Íslands hf. -0,62%
Erlendar vísitölur
DJ * 10.000,6 -0,4%
Nasdaq * 1.921,6 -0,2%
FTSE 4.453,8 0,9%
DAX 3.824,9 1,3%
NK50 1.356,6 -0,1%
S&P * 1.092,4 -0,5%
* Bandarískar vísitölur kl. 17.
VEISTU SVARIÐ?
1Hvað heitir hin nýja eiginkonaFriðriks krónprins?
2Hver ber ábyrgð á aftöku NicolasBerg í Írak samkvæmt bandarísku
leyniþjónustunni?
3Hvar úti á landi er Íslenska óperanað setja upp óperuna Carmen?
Svörin eru á bls. 58
Steingrímur J. sagði forsætisráðherra ekki þora:
Kallaði Davíð
gungu og druslu
STJÓRNMÁL Í umræðum um fjöl-
miðlafrumvarpið á Alþingi í gær
óskaði Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri grænna, eftir því
að forsætisráðherra kæmi í þing-
sal. Hann þyrfti að spyrja forsæt-
isráðherra út í frumvarpið. Davíð
lét sig ekki sjá sig í salnum og
brást Steingrímur J. við með því
að senda honum tóninn.
„Bráðfrískur maðurinn var á
vappi hérna í kringum salinn
áðan,“ sagði Steingrímur J. í ræðu-
stól Alþingis. „Hann getur ekki
haft nein lögmæt forföll. Ég hlýt
að líta svo á að hann þori ekki –
hann þori ekki að koma hér og eiga
orðastað við mig. Ég hlýt að líta
svo á. Það skal þá standa að Davíð
Oddsson sé slík gunga og drusla að
hann þori ekki að koma hér og eiga
orðastað við mig.“
Við orðaleit í þingræðum á vef
Alþingis fannst að árið 1992 kallaði
Steingrímur ríkisstjórnina tvisvar
gungu. Þá kallaði hann þingmenn
stjórnarflokkanna á landsbyggð-
inni gungur. Orðið drusla hefur
heyrst oftar í umræðum á Alþingi
en er þá oftast átt við bíldruslur
fremur en duglausa menn. Halldór
Ásgrímsson, árið 1995, kallað fjár-
málaráðuneytið druslu vegna þess
hversu seint skattalækkanir voru
settar fram. Ári síðar sagði Össur
Skarphéðinsson Framsóknarflokk-
inn liggja eins og druslu undir
Sjálfstæðisflokknum þegar rætt
var um ráðstafanir í ríkisfjármál-
um. ■
Hefur skipt sér
af þingstörfum
Þingmenn innan Sjálfstæðisflokks segja forseta nú þegar farinn að skipta sér af störfum Alþingis.
Meðal þingmanna er óánægja með að forseti Íslands skuli ekki hafa verið við brúðkaup
Danakrónprins. Forsætisráðherra segist skulda dönsku þjóðinni skýringu.
STJÓRNMÁL Innan Alþingis er
margskonar skilningur lagður í þá
ákvörðun forseta Íslands, Ólafs
Ragnars Grímssonar, að vera ekki
við brúðkaup Danaprins vegna
ástands mála á Alþingi. Þeir
stjórnarsinnar sem rætt var við
eru undrandi á forsetanum og
telja að hann hefði átt að vera í
Kaupmannahöfn í gær. Það hafi
verið hans helsta skylduverk.
Mjög óvíst er um framgang
mála á þingi eða hvenær tekst að
ljúka störfum. „Það eru að
minnsta kosti tvær til þrjár vikur
eftir af þingstörfum að óbreyttu,“
sagði Halldór Blöndal, forseti
þingsins, þegar hann var spurður
hvenær hann telji að þingstörfum
ljúki.
Bæði Davíð Oddsson og Hall-
dór Ásgrímsson höfðu, eftir því
sem best er vitað, orð á að vegna
ákvörðunar forseta, um að vera
heima en ekki við brúðkaupið,
verði að reyna að skýra þessa
stöðu fyrir dönskum yfirvöldum.
„Ég hef ekki tíma til að ræða
þetta,“ sagði Davíð Oddsson for-
sætisráðherra þegar hann var
spurður hvort heimaseta forseta
hafi eftirmála milli okkar og
Dana.
Þingmenn innan Sjálfstæðis-
flokksins, sem Fréttablaðið ræddi
við, sögðust ekki telja forseta
hafa heimild til þess samkvæmt
stjórnarskránni að synja lögunum
staðfestingar. Nú þegar væri for-
setinn orðinn fyrsti í sögunni til
þess að skipta sér af störfum Al-
þingis. Það hafi hann gert með því
að segjast ekki ætla að yfirgefa
landið vegna óvissu um hvenær
Alþingi lyki afgreiðslu mikil-
vægra mála.
Þingmenn stjórnarandstöðunn-
ar töldu ómögulegt annað en að
forseti láti til sín taka í afgreiðslu
fjölmiðlafrumvarpsins eftir það
sem á undan er gengið. Hann hafi
leikið leik í stöðunni og ómögulegt
sé að hann hætti án þess að hafa
einhver afskipti af málinu.
Fleiri mál bíða afgreiðslu
Alþingis. Þeirra á meðal er frum-
varp um réttindi og skyldur opin-
berra starfsmanna. Ögmundur
Jónasson alþingismaður, sem
jafnframt er formaður BSRB,
segir að margt sé órætt í því
máli.
sda@frettabladid.is
STEINGRÍMUR J. LAGÐI ÁHERSLU Á ORÐ SÍN
Steingrímur J. gaf forsætisráðherra tóninn og sagðist þurfa að líta svo á að Davíð þorði
ekki að eiga við hann orðastað.
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON
Sjálfstæðismenn segja hann þegar hafa haft afskipti af störfum Alþingis.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
06-07 14.5.2004 22:14 Page 2