Fréttablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 15. maí 2004 21
www.toyota.is
Corolla Verso. Hversu Verso viltu vera?
Sjaldan hefur einn bíll boðið upp á jafn marga möguleika með jafn einföldum hætti.
Með einu handtaki breytirðu Corolla Verso úr 2 manna flutningavagni í 7 manna
fjölskyldubíl. Hvert sæti er sjálfstæð eining sem leggst alveg niður svo gólfflöturinn
verður rennisléttur og jafn. Þetta þýðir að þú getur á einu augnabliki lagað innra rými
bílsins algjörlega eftir þörfum hverju sinni. Aksturinn er léttur og lipur, hönnunin
glæsilega rennileg og bíllinn hlaðinn öllum þeim hágæða- og öryggisþáttum sem
kröfuharðir ökumenn ganga að sem vísum.
Corolla Verso er byltingarkenndur 7 manna fjölskyldubíll. Í honum má finna Toyota-Full Flat 7 kerfið þar sem með einu handtaki má breyta Corolla Verso úr 2ja manna flutningavagni í 7 manna fjölskyldubíl. Corolla Verso er búinn 1,8 lítra VVT-i
vél sem skilar 129 hestöflum við 6.000 snúninga. Hann er búinn VSC stöðugleikakerfi, 9 loftpúðum sem hlífa öllum farþegum bílsins, ABS hemlakerfi með BA. Corolla Verso er fáanlegur með hefðbundinni beinskiptingu eða rafstýrðri beinskiptingu
og kostar frá kr. 2.229.000.
Sportbíll að utan -
7 manna ættarmót að innan.
Easy Flat-7®
Helga Möller viðurkennir aðvæntingarnar fyrir júró-
visjónkeppnina árið 1986 hafi verið
miklar og kannski einum of. „Mér
til mikillar ánægju, þó það sé
kannski ljótt að segja það, þá
fengum við oftar 16. sætið en bara
þegar ég fór. Þannig að það voru
smá sárabætur miðað við vænting-
arnar sem voru,“ segir Helga. „En
það hefur nú breyst. Fólk er ekkert
að gera neitt voðalega miklar
væntingar og umfjöllunin núna er
ekki mikil.“
Óútreiknanleg keppni
Helga vill ekki meina að miklar
breytingar hafi orðið á keppninni
síðan hún tók þátt með Pálma
Gunnarssyni og Eiríki Haukssyni.
„Maður tekur eftir því að ár frá
ári er eitthvað visst í tísku og þá
er það mjög áberandi. Annars er
ekki hægt að reikna með ein-
hverju sem verður í tísku.
Kannski allt í einu er valið lag
sem er með einum kassagítar.
Þetta er mjög óútreiknanlegt,“
segir Helga. „Ég man að þegar ég
fór vann Sandra Kim sem var 13
ára belgísk stúlka. Þá var verið að
tala um að þetta væri trix og
hvort að við ættum ekki senda
bara eina ófríska; hún myndi
örugglega vekja mikla athygli.“
Heimsfrægur í heila viku
Aðspurð játar Helga að andrúm-
sloftið þegar hún tók þátt fyrir 18
árum hafi verið sérstakt. „Það
mætti segja að maður hafi verið
heimsfrægur í heila viku. Bæði
framkoman við mann og öll
umgjörðin. Allt í kringum þetta var
eins og þarna væru heimsfrægar
stjörnur á ferð, merktir bún-
ingsklefar og blaðamenn á ferð.
Þetta var mjög skemmtilegt. Þetta
er þessi vika sem aldrei gleymist.
Það er hápunktur míns ferils að
hafa tekið þátt í Júróvisjón.“
Hrædd við tónhæðina
Helga verður í Ameríku á úrslita-
kvöldinu og getur því ekki fylgst með
Jónsa stíga á svið í Istanbúl. „Mér líst
rosalega vel á flytjandann. Ég hef nú
ekki heyrt lagið en fyrsta hlustun
greip mig ekkert svakalega,“ segir
Helga um Heaven, framlag Íslands.
„En það er mjög vel flutt og hann er
verðugur fulltrúi okkar. Ég er alveg
viss um að hann mun standa sig vel
en ég er hrædd um þessa tónhæð
sem hann valdi sér. Að vera svona
einn á sviðinu með lítinn stuðning,
það hlýtur að reyna á taugarnar,“
segir hún.
Undir svakalegu álagi
Helga segir erfiðara að stan-
da á sviði fyrir framan þennan
gífurlega mannfjölda sem
horfir á Júróvisjón en fólk
gerir sér grein fyrir og veit
eins og er að Jónsa bíður
erfitt verkefni. „Það er talað
um tvenns konar stre-
itueinkenni. Annað hvort
verðurðu „hyper“ eða mjög
þreyttur og mikið geispandi.
Þannig var ég til dæmis; ég geis-
paði og geispaði og skildi ekkert í
þessu. Adrenalínið fer líka alveg á
fullt. Þú hefur náttúrlega bara
þessar þrjár mínútur og svo er
þetta bara búið og það veistu. Þú
ert undir svakalegu álagi á meðan
á þessu stendur og þá þarf allt að
ganga upp,“ bætir hún við. „Þú
þarft að vera vel úthvíldur og ekki
með nein einkenni kvefs eða háls-
bólgu. Það er eitt sem allir geta
gert, það er að lækka tóntegundi-
na ef út það í fer. En þetta kemur
allt í ljós og hann [Jónsi] veit sín
takmörk að öllum líkindum,“ segir
Helga að lokum.
freyr@frettabladid.is
Helga Möller var í Icy-sönghópnum fræga sem steig á svið í Dublin í Júróvisjón-
keppninni 1986. Gleðibankinn var fyrsta framlag Íslands til keppninnar og
spenningurinn var að vonum mikil.
Júróvisjón var hápunkturinn
ICY
Icy-hópurinn, með þau
Helgu Möller, Pálma
Gunnarsson og Eirík
Hauksson innanborðs,
lenti í 16. sæti með
Gleðibankann eftir
Magnús Kjartansson.
Eftirvæntingarnar voru
einum of miklar fyrir
keppnina að mati Helgu.
HELGA MÖLLER
Segir það hápunktinn á
ferlinum að hafa tekið
þátt í Júróvisjón. Mikið
stress fylgir keppnininni
að hennar sögn, en hún
hefur mikið álit á Jónsa.
Það mætti segja
að maður hafi verið
heimsfrægur í heila viku.
,,
20-21 júróeitthvað 14.5.2004 15:15 Page 3