Fréttablaðið - 15.05.2004, Side 43
LAUGARDAGUR 15. maí 2004
■ NÆSTA STOPP
31
HELLUR STEYPA RÖR MÚRVÖRUR EININGAR
Hjá Steypustöðinni færðu faglega ráðgjöf hjá landslagsarkitekt-
unum Birni Jóhannssyni, Einari Birgissyni eða Stanislas Bohic um
allt sem lýtur að því að skipuleggja nýjan garð eða betrumbæta
þann gamla.
Pantaðu tíma í síma 540 6800 og
fáðu faglega ráðgjöf um skipulag
garðsins.
Hellur
steinar
Ráðgjöf landslagsarkitekta
Nú er rétti árstíminn til að
huga að lóðarframkvæmdum
og garðvinnu sem fram-
undan eru.
Fáðu sendan nýjan bækling
okkar um hellur og steina
eða kynntu þér úrvalið á
steypustodin.is
Söludeildin er opin
alla virka daga
frá kl. 8-18
l r
steinar
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
N
M
1
1
9
3
7
/
si
a.
is
Reykjavík: Malarhöf›a 10 - S. 540 6800 • Hafnarfir›i: Hringhellu 2 - S. 540 6855 • Selfossi: Hrísm‡ri 8 - S. 540 6881
www.steypustodin.is
Hellur og steinar fást einnig í verslunum BYKO
Mig hefur alltafdreymt um að koma
aftur með stelpurnar
mínar og Árnýju til
Cartagena í Kolumbíu,“
segir Össur Skarp-
héðinsson, formaður
Samfylkingarinnar um
draumaáfangastaðinn.
„Við fórum þangað árið
1998 þegar við fórum að
sækja Ingveldi
Esperönsu og Birta var
með í för. Inga, sem í dag
er dæmigert hraustlegt
íslenskt barn, var þá örsmá og
með slæmsku í lungum og læk-
narnir í Bogota, sem stendur hátt
uppi í mengunarþokuðum fjöllum
Kólumbíu, ráðlögðu okkur að fara
niður til strandarinnar. Það reynd-
ist alger draumaferð.
Cartagena stendur
á strönd
Karíbahafsins, byggð
á spænska nýlendutí-
manum áður en Símon
Bólívar frelsaði Suður-
Ameríku undan oki
Spánverja, og
Spánverjar skildu
eftir klassískar
spænskar byg-
gingar og vel
s k i p u l a g ð a
miðborg sem
er fallegasta borg
sem ég hef komið
til. Það voru
engir ferða-
menn á þes-
sum árstíma,
og við höfðum
ströndina og
s t r æ t i s -
v a g n a n a
alveg fyrir
okkur, og á
g a m l a
H ó t e l
Caribe, sem Gabriel Garcia
Marques hefur skrifað um ljóðræ-
nar lýsingar, vorum við eins og
blóm í eggi, með letidýrin hangan-
di úr tágum á svölunum, risastóra
skrautlega páfagauka vappandi á
flötinni innan um örsmáa kólibrí-
fugla, og Birta gleymir aldrei
dverghindunum sem hlupu um
runnana eða mannætuöpunum
sem görguðu á okkur úr búrunum.
Hvarvetna var kurteist og
elskulegt mannfólk sem vildi allt
fyrir fölhvítan Íslending gera.“ ■
UMDEILD MYND
Rush og Theron í hlutverkum sínum sem
Sellers og Ekland.
Úlfúð í Hollywood:
Mynd um
Sellers veld-
ur deilum
Kvikmynd um Peter Sellershefur fengið harða gagnrýni
frá fjölskyldu Sellers, fyrrver-
andi eiginkonu og þekktum
Hollywood-leikstjóra, sem hafa
þó ekki enn séð hana. Þeim mis-
líkar hlutverkaskipan og það að
ekkert samráð var haft við þau
við gerð myndarinnar.
Leikarinn Geoffrey Rush fer
með hlutverk Sellers og leikstjóri
er Steven Hopkins sem leikstýrt
hefur spennuþáttunum 24. Það
vakti mikla athygli þegar Hopkins
sagði fyrir ári að Sellers hefði
verið „klikkaður“ og Rush væri
snillingur í að leika klikkaða
menn. Óskarsverðlaunaleikkonan
Charlize Theron leikur Britt
Ekland, eina af fyrrverandi
eiginkonum Sellers. Ekland hefur
hótað lögsókn líki henni ekki
túlkunin á sjálfri sér í myndinni
en hún telur meðal annars að
Theron sé of gömul og of hávaxin
fyrir hlutverkið. John Lithgow fer
með hlutverk leikstjórans Blake
Edwards sem leikstýrði mynd-
unum um Bleika pardusinn sem
færðu Sellers heimsfrægð.
Edwards er óánægður með að
Lithgow hafði ekkert samband við
hann meðan tökur á myndinni
stóðu yfir. Hann hefur einnig
áhyggjur af því að Sellers fái í
myndinni allan heiður af sköpun
lögreglufulltrúans Clouseau.
Myndin verður frumsýnd á
kvikmyndahátíðinni í Cannes sem
nú stendur yfir. ■
Morðmál:
Sagt fyrir um
morð í SMS
Bretinn Howard Woodin varnýlega dæmdur í lífstíðar-
fangelsi fyrir morð á fyrrverandi
eiginkonu sinni, Julie, en hún
hafði sagt fyrir um morðið í SMS-
skilaboðum.
Dag einn hringdi Howard í
lögfræðing sinn og dóttur og sagði
að Julie hefði ráðist á sig með hníf
en síðan stungið sjálfa sig í
átökum milli þeirra og beðið bana.
Hann hringdi síðan í neyðar-
línuna. Þegar lögreglan rann-
sakaði farsíma Julie fundust þar
SMS-skilaboð sem hún hafði skrif-
að nokkrum klukkustundum fyrir
lát sitt. Þar sagði hún að Howard
hefði tvisvar um daginn hótað að
stinga hana til bana og bera við
sjálfsvörn. Rannsókn á líki Julie
leiddi í ljós að hún hafði verið
stungin 26 sinnum. Howard var
dæmdur í lífstíðarfangelsi. ■
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Cartagena í Kólumbíu er
draumaáfangastaðurinn en
þangað fór hann árið 1998.
Yfirnáttúruleg draumaborg
CARTAGENA
Þessi rómaða borg stendur á strönd Karíbahafsins.
30/43 (30-31) LHÍ 14.5.2004 15:27 Page 3