Fréttablaðið - 15.05.2004, Síða 45

Fréttablaðið - 15.05.2004, Síða 45
LAUGARDAGUR 15. maí 2004 33 Gunnlaugur Jónsson, fyrirliðiÍA, hefur staðið í eldlínunni mörg undanfarin ár og á nokkuð á annað hundrað meistara- flokksleiki að baki. Hann er vitaskuld spenntur fyrir Ís- landsmótinu. „Jújú, hjá mér ríkir mikil eftirvænting, langt og strangt undirbúningstímabil er að baki og við hlökkum allir til.“ Gunnlaugur segir þennan árstíma alltaf skemmtilegan. „Ég held að þetta verði bara skemmtilegra eftir því sem árin líða. Við höfum æft vel og liðið lítur vel út þannig að við erum vel stemmdir.“ Skagamönnum er spáð góðu gengi í sumar, flestir spámiðlar búast við að þeir verði í topp- baráttunni. „Ég býst við að sum- arið verði gott hjá okkur. Hópur- inn er breiðari en oft áður og býr að töluverðri reynslu. Helsti mínusinn er að okkur vantar fleiri unga leikmenn til að banka á dyrnar en engu að síður hef ég fína tilfinningu fyrir sumrinu og vonandi verður gengið ágætt.“ Gunnlaugur segir aðspurður að sigurtilfinningin sé það besta við fótboltann. „Ég hef fengið hana nokkrum sinnum á ferlin- um. Hún er ólýsanleg og það er ekkert sem kemst nálægt henni. Ég er í þessu til að vinna.“ En hvað er þá verst? „Það er þegar maður leggur heilmikið á sig allan veturinn og uppsker ekki eins og maður sáir. Það er ansi sárt.“ Hið ljúfa líf verður að víkja hjá knattspyrnumönnum ætli þeir sér að ná árangri. Þeir verða að gæta vel að mataræði og hollustuháttum almennt og varast ýmsar freistingar. Gunn- laugur telur þetta þess virði. „Tvímælalaust. Vissulega þurf- um við að fórna miklu og menn sem eru í knattspyrnu á Íslandi fá ekki sumarfrí nema þeir meiðist. En auðvitað er þetta þess virði. Ef maður hefði ekki gaman af þessu þá væri maður ekkert að standa í þessu. Þá væri maður frekar á Spáni.“ ■ Dómarinn Leikmaðurinn Dregið hefur úr kjaftbrúki Kristinn Jakobsson dómarihefur marga fjöruna sopið og á ófáa leikina að baki. Hann er klár fyrir sumarið. „Hjá mér rík- ir mjög mikil eftirvænting og stemningin er frábær.“ Hann hef- ur búið sig af kappi undir átökin, bæði líkamlega og andlega. „Ég hef verið að dæma marga af þessum vorleikjum í höllunum og svo hef ég dæmt nokkra grasleiki til að komast í snertingu við það. Ég hef svo hvílt mig vel allra síð- ustu daga til að gera mig hungraðan fyrir fyrsta leik.“ Kristinn er þeirrar skoðunar að íslenskir dómarar séu almennt góðir. „Ég tel að við séum klárir í slaginn og að við höfum sjaldan verið betri. Við erum komnir til að standa okkur og sýna að við séum tilbúnir rétt eins og liðin.“ Dómarar eru oftar en ekki óvinsælustu menn vallarins og fá gjarnan að heyra það frá leik- mönnum og áhorfendum. Hvað fær Kristin til að standa í dómgæslu? „Ætli það sé ekki bara einskær gleði og mikill áhugi á fótbolta. Svo hefur maður metnað til að standa sig vel og fá í staðinn verkefni á erlendri grundu.“ Eins og gengur hefur hann fengið að heyra ýmislegt á vellin- um. „Æi, maður vill helst ekki leggja þetta á minnið,“ svarar hann spurður hvað sé það versta sem hann hafi heyrt. „En ég man þó að einu sinni veittist forráða- maður eins félagsins að mér eftir leik í efstu deild og kallaði mig öllum illum nöfnum. Ég gerði um það skýrslu og sendi KSÍ og þar á bæ var séð um restina.“ Kristinn er sjálfur fyrrum leikmaður og hefur því ríkan skilning á hátt- erni manna. „Það gerist margt í hita leiksins en maður skynjar oft hvað maður á skilið og hvað ekki. Auðvitað koma upp atvik í leikj- um þar sem menn æsa sig og stundum er það bara skiljanlegt. Það er þá bara í nösunum á mönn- um.“ Hann er annars þeirrar skoðunar að dregið hafi úr kjaft- brúki með árunum. „Þetta hefur batnað til muna. Menn sýna al- mennt kurteisi og skynjun manna á mikilvægi háttvísinnar verður alltaf meiri. Allir eru að leggja sig fram við að gera þessa skemmtilegu íþrótt enn skemmti- legri og þar hjálpast að leikmenn, forráðamenn, dómarar og áhorf- endur. Kristinn viðurkennir að finna fyrir stressi fyrir leiki og segir mikilvægt að finna fiðring í mag- anum. „Ég er alltaf stressaður. Ef ég væri ekki stressaður þá gæti ég alveg eins sleppt þessu,“ segir hann. Fyrsta verkefni hans á leik- tíðinni nú er norður á Akureyri á morgun þar sem hann dæmir viðureign KA og Keflavíkur. ■ KRISTINN JAKOBSSON DÓMARI „Ég er alltaf stressaður. Ef ég væri ekki stress- aður þá gæti ég alveg eins sleppt þessu.“ FYRIRLIÐINN OG FORSÆTISRÁÐHERRANN Gunnlaugur Jónsson tekur á móti bikarnum úr hendi Davíðs Oddssonar á Laugardalsvelli í fyrra. Sigurtilfinning er ólýsanleg HART BARIST Úr leik KR og KA í Landsbankadeildinni í fyrra. KR-ingar fóru með sigur af hólmi. einnig grátt silfur í bikarkeppni. Leikurinn hefst klukkan 17 í dag og verður vonandi í senn drengi- legur og spennandi. Sama ósk á auðvitað við um leiki morgun- dagsins er klukkan 14 hefjast þrír leikir. Grindavík fær ÍBV í heim- sókn, Keflavík sækir KA heim og ÍA og Fylkir eigast við á Skagan- um. Annað kvöld, klukkan korter yfir sjö mætast svo hinir fornu fjendur Fram og Víkingur á Laugardalsvellinum. bjorn@frettabladid.is 44-45 (32-33) fótbolti 14.5.2004 15:40 Page 3

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.