Fréttablaðið - 15.05.2004, Page 55
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
9
4
2
7
1 meðalstórt lambalæri
4 hvítlauksgeirar, skornir í þrennt
2 msk. dijon-sinnep
4 timjangreinar
salt og pipar
pítubrauð
Skerið raufar hér og þar í lærið og stingið
hvítlauksbitum og timjangreinum í raufarnar. Smyrjið
dijon-sinnepi vel á lærið og kryddið með salti og
pipar. Setjið lambið í 200°C heitan ofn og bakið
í 45–50 mín. (miðað við u.þ.b. 1,5 kg)
Jógúrt-sósa
1 dós hrein jógúrt
rifinn börkur af ½ sítrónu
1 msk. sítrónusafi
1 tsk. kummin
(ath. ekki kúmen)
1 tsk. hunang
Meðlæti
Iceberg eða
lambhagasalat
rauðlaukur
tómatar
steinlausar ólífur
chiliolía, t.d. sambal oelek
hummus
Ristið pítubrauðin í brauðrist eða ofni. Stillið lærinu upp á fat eins
og sýnt er á myndinni og skerið þunnar sneiðar utan af jafnóðum
og fólk fær sér pítu. Raðið skálum með meðlæti í kring og hver og
einn útbýr síðan sína pítu eftir húmor og smekk.
Prófaðu þessa uppskrift að
lambalæri næst þegar þú átt von
á gestum. Nýjung sem kemur
skemmtilega á óvart.
Uppáhald íslensku þjóðarinnar
Fjöldi uppskrifta á www.lambakjot.is
Eurovision
lambalæri›:
12 stig!
NÝ
R BÆKLINGUR
Í
N
Æ
ST U V E R S L U
N
UPPSKRIFTIR
LAUGARDAGUR 15. maí 2004
■ SAGT OG SKRIFAÐ
José María Aznar, fyrrum for-sætisráðherra Spánar, hefur
gefið út endurminningar sínar, ör-
fáum vikum eftir að hafa látið af
embætti. Ævisaga eiginkonu hans
kom út fyrir nokkrum vikum og er
í fyrsta sæti metsölulista á Spáni.
Ekki er talið víst að bók eigin-
mannsins muni seljast jafn vel.
Annar stjórnmálamaður, Bill Clint-
on, fyrrum Bandaríkjaforseti, er
nú að leggja lokahönd á endur-
minningar sínar. Síðustu fréttir
herma að ritstjóri bókarinnar, Ro-
bert Gottlieb, hafi flutt inn til
Clintons til að aðstoða hann og sofi
þar um nætur. Útgefandinn er
sagður örvænta um að það takist að
ljúka bókinni fyrir tilskilinn tíma.
Þeir sem lesið hafa handritið segja
að Clinton víki sér í bókinni undan
ábyrgð á ýmsum málum eins og
þjóðarmorðunum í Rúanda. Hann
er einnig sagður ráðast á fjölmiðla
fyrir það sem hann kallar rangtúlk-
un þeirra. Clinton mun vera tregur
til að fjalla um Lewinsky-málið,
sem komst nálægt því að kosta
hann forsetastólinn. Það kann því
vel að vera að bók Clintons muni
ekki sæta tíðindum, nema þá fyrir
skort á heiðarleika. Ævisögur
stjórnmálamanna þurfa þó ekki að
vera fullar af tíðindum til að selj-
ast. Æviminningar Helmut Kohl
hafa til dæmis selst vel í Þýska-
landi þótt þar þyki ekki koma
margt nýtt fram. ■
Yfirleitt er ég að lesa nokkrarbækur í einu, sem er auðvitað
voðalegur siður,“ segir Bragi
Ólafsson rithöfundur. „En á und-
anförnum vikum hafa komið út
nokkrar fínar bækur frá bókafor-
laginu Bjarti, og þar eð höfundar
skrifa einungis það sem útgefend-
ur þeirra vilja – rétt eins og blaða-
mönnum er stýrt af eigendum
blaðanna – þá finnst mér öruggara
að nefna fáeinar bækur frá útgef-
anda mínum, Bjarti. Opnun
kryppunnar eftir Oddnýju Eir og
39 þrep á leið til glötunar eftir Ei-
rík Guðmundsson eru bráð-
skemmtilegar bækur sem ég gæti
vel trúað að opnuðu fyrir eitthvað
nýtt í íslenskum bókmenntum.
Svo var ég að lesa mjög
skemmtilega litla skáldsögu eftir
Frakkann Eric-Emmanuel
Schmitt, Hr. Ibrahim og blóm
Kóransins, fyrstu bókina í þríleik
sem höfundur vill meina að fjalli
um hlutverk trúarbragðanna. Þær
þrjár bækur munu koma út í Neon
bókaflokknum í sumar. Í augna-
blikinu er ég líka að lesa formála
Havelock Ellis að skáldsögunni A
rebours (Against the grain) eftir
J.K. Huysmans, en það er texti
sem ég les alltaf öðru hverju.
Vandamálið með þennan formála
er hins vegar það að hann er svo
endurnærandi og hvetjandi að
þegar kemur að því að lesa sjálfa
sögu Huysmans um dekadentinn
des Esseintes hætti ég alltaf við af
ótta við að bíða þess ekki bætur,
að ég muni missa allt sjálfstæði
sem höfundur.
En sú bók sem ég hef líklega
haft mest gagn og gaman af upp á
síðkastið er Natasha’s Dance: A
Cultural History of Russia, eftir
enskan sagnfræðing, Orlando
Figes. Bókin rekur menningar-
sögu Rússa allt frá því að Pétur
mikli skar út tvo móstrimla með
byssustingnum sínum, lagði þá í
kross á blauta jörðina þar sem nú
stendur Pétursborg og sagði svo:
„Hér skal rísa bær.“ Þegar ég
klára þessa bók ætla ég að ná mér
í nýju bókina eftir Árna Berg-
mann – þó að hún sé ekki gefin út
af forlaginu mínu.“ ■
Jay Leno
á metsölulista
Þáttastjórnandinn vinsæliJay Leno er með bók í efsta
sæti barnabókalista New York
Times. Bókin heitir If Roast
Beef Could Fly. Leno byggir
bókina á eigin minningum og
segir frá fyndum fjölskyldu-
atburðum sem áttu sér stað
þegar hann var níu ára. Í
þriðja sæti listans er bók eftir
leikarann þekkta Billy Crystal.
Hún heitir I Already Know I
Love You og fjallar um sam-
skipti barna við afa og ömmu.
Báðar bækurnar eru ætlaðar
yngri aldurshópum og eru
ríkulega myndskreyttar - þó
ekki af höfundunum. ■
Væntanlegar
metsölubækur
Þó nokkrar þeirra erlendubóka sem seljast best í
kiljuformi þessa dagana eru
annað hvort komnar út í ís-
lenskri þýðingu eða væntan-
legar. Spennusagan Da Vinci
Code er á toppi metsölulistans
yfir mest seldu erlendu kilj-
urnar, en hún kom út fyrir jól-
in hjá Bjarti og íslenska þýð-
ingin er reyndar í efsta sæti
metsölulistans þessa vikuna. Í
öðru sæti er No. 1 Ladies Det-
ective Agency eftir Alexander
McCallsmith, glæpasaga sem
væntanleg er á íslensku og í
þriðja sæti er verðlaunabókin
The Curious Incident of the
Dog in the Night Time eftir
Mark Haddon en hún kemur út
í íslenskri þýðingu fyrir næstu
jól hjá Máli og menningu. Í
sjötta sæti er svo The Life of
Pie eftir Yann Martell sem
Bjartur gaf út síðastliðið
haust. ■
BRAGI ÓLAFSSON
„Opnun kryppunnar eftir Oddnýju Eir og 39 þrep á leið til glötunar eftir Eirík Guðmunds-
son eru bráðskemmtilegar bækur sem ég gæti vel trúað að opnuðu fyrir eitthvað nýtt í ís-
lenskum bókmenntum.“
Les nokkrar bækur í einu
En sú bók sem ég
hef líklega haft mest
gagn og gaman af upp á
síðkastið er Natasha’s
Dance: A Cultural History of
Russia, eftir enskan sagn-
fræðing, Orlando Figes.
,,
JOSÉ MARÍA AZNAR
Gefur út endurminningar sínar á sama
tíma og æviminningar eiginkonu hans eru
á metsölulista.
Stjórnmálamenn skrá sögu sína:
Aznar og Clinton
gefa út ævisögur
JAY LENO
Er með bók í efsta sæti barnabókalista New York Times.
54-55 (42-43) bækur 14.5.2004 19:38 Page 3