Fréttablaðið - 15.05.2004, Qupperneq 58
46 15. maí LAUGARDAGUR
GREG NORMAN
Hvíti hákarlinn frá Ástralíu er ekki dauður
úr öllum æðum og sést hér slá í annarri
umferð á opna Asíska BMW-mótinu sem
fram fer þessa dagana í Shanghai, Kína.
GOLF
Aston Villa yngir upp:
Ronny og Dublin á haugana
FÓTBOLTI Aston Villa
hefur tilkynnt þeim
Ronny Johnsen og Dion
Dublin að samningar
þeirra verði ekki
endurnýjaðir í sumar.
Dion Dublin er orðinn 35
ára og hefur verið í her-
búðum Villa í fimm ár en
hinn 34 ára Norðmaður,
Ronny Johnsen, hefur
verið þar í tvö ár. David
O’Leary, framkvæmda-
stjóri Aston Villa,
staðfesti þetta og bætti
við. „Þeir eru stórkostlegir leik-
menn en eru báðir við það að
komast á aldur. Ég hef alltaf borið
mikla virðingu fyrir þessum
tveimur leikmönnum og
það gerir þessa ákvörðun
virkilega erfiða. Dublin
var alveg frábær á því
tímabili þegar okkur
vantaði sem mest stóran og
sterkan framherja sem léti
finna vel fyrir sér. Hann
hefur reynst okkur frábær
á þessu tímabili og með
gríðarlega miklum
baráttuanda lagði hann
mikið af mörkum í
umsnúningi liðsins. Bæði
hans og Ronny mun verða
sárt saknað á Villa Park en þeir
munu án efa finna nýtt félag og
standa sig áfram vel,“ sagði nánast
grátklökkur David O’Leary. ■
Ole Gunnar Solskjær ætlar að berjast fyrir sæti sínu:
Fer ekki til Celtic
FÓTBOLTI „Ole Gunnar Solskjær
fer hvergi,“ segir umboðsmaður
hans, Jim Solbakken, en undan-
farið hefur verið á kreiki sterk-
ur orðrómur þess efnis að Ole
Gunnar, hinn frábæri framherji
Manchester United, væri á leið-
inni til skosku meistaranna
Glasgow Celtic fyrir þrjár millj-
ónir punda. Solbakken bætti
þessu við. „Þessar sögusagnir
eru bara bull og vitleysa og
þetta er ekki í fyrsta skipti sem
hann er orðaður við Celtic. Við
neituðum því þá og neitum því
nú. Við höfum ekkert frá Celtic
heyrt og ég nenni ekki að eyða
fleiri orðum í þessa vitleysu.“
Tímabilinu sem nú er að ljúka er
búið að vera Solskjær erfitt,
eins og Manchester United
reyndar líka. Hann fór í hnéupp-
skurð í september og hefur að-
eins spilað 17 leiki með liðinu á
yfirstandandi tímabili og verið
töluvert langt frá sínu besta
formi. Á meðan Solskjær var
meiddur var Louis Saha keyptur
til félagsins og sögur herma að
Alan Smith sé einnig á leiðinni á
Old Trafford. Staða Solskjærs
virðist því ekki ýkja vænleg en
hann vill greinilega hvergi ann-
ars staðar vera og mun án efa
berjast hatrammlega fyrir stöðu
sinni á næsta tímabili. ■
Intersportdeildin í körfubolta:
Stóru mennirnir
áfram í Njarðvík
KÖRFUBOLTI Intersportlið Njarðvík-
inga hefur samið við stóru menn-
ina sína um að þeir spili áfram
með liðinu næsta vetur en Njarð-
vík varð Hópbílabikarmeistari,
komst í bikarúrslitaleikinn og
undanúrslit Íslandsmótsins á síð-
asta tímabili. Á heimasíðu félags-
ins kemur fram að Friðrik
Stefánsson muni áfram vera í her-
búðum Njarðvíkur en á heima-
síðunni stendur. „Miklar vanga-
veltur voru um hvort Friðrik færi
í annað lið enda voru nokkur lið að
bera víurnar í hann meðal annars
litli bróðir hinumegin í bæjar-
félaginu.“ Njarðvíkingar halda
einnig Páli Kristinssyni og
Halldóri Rúnari Karlssyni en
þessir þrír eiga mikinn þátt í
styrk Njarðvíkurliðsins inn í teig.
Friðrik skoraði 15,4 stig og tók 9,7
fráköst að meðaltali í deildinni í
fyrra, Páll bætti við 16,9 stigum
og 8,5 fráköstum og Halldór kom
sterkur af bekknum með 5,7 stig
og 2,9 fráköst að meðaltali í leik.
Einar Árni Jóhannsson mun þjálfa
liðið næsta vetur og Brenton
Birmingham verður spilandi
aðstoðarþjálfari. ■
Hringdu í fljónustudeild DHL í síma 535-1122.
Öl til
Egilssta›a.
DHL sendir ekki bara hra›sendingar og frakt milli landa. Me› jafn glö›u
ge›i fljótum vi› me› sendinguna flína flvert yfir landi› e›a til næsta bæjar.
fiú n‡tur flví árei›anlegrar fljónustu lei›andi alfljó›legs flutningsfyrirtækis og
flæginda innanlandsflutninga. www.dhl.is
Meiri flutningsmöguleikar innanlands.
Allt frá léttskjölum til bílfarma.
Leeds byrjað að selja
leikmenn:
Paul Robin-
son til
Tottenham
FÓTBOLTI Markvörðurinn, Paul
Robinson, hefur skrifað undir fjög-
urra ára samning við enska úrvals-
deildarfélagið Tottenham Hotspur.
Kappinn hefur undanfarin tíu ár
dvalið í herbúðum Leedsara sem,
eins og flestum knattspyrnuáhuga-
mönnum ætti að vera kunnugt um,
féllu úr ensku úrvalsdeildinni á dög-
unum. Robinson sagði við þetta
tækifæri að þessi ákvörðun hefði
langt í frá verið auðveld en hún
hefði hins vegar verið óumflýjan-
leg. „Nú tekur við verkefni á nýjum
stað og ég hlakka til að takast á við
það. Þetta var eitthvað sem menn
gátu búist við því stjórn Leeds var
búin að tilkynna að liðið þyrfti að
selja marga leikmenn.“ ■
DAVID O’LEARY
Endyrnýjar ekki
samninga við Ronny
Johnsen og Dion
Dublin.
FRIÐRIK OG PÁLL ÁFRAM GRÆNIR
Friðrik Stefánsson og Páll Kristinsson verða
áfram í herbúðum Njarðvíkinga á næsta
tímabili.
58-59 (46-47) Sport 14.5.2004 20:48 Page 2