Fréttablaðið - 15.05.2004, Qupperneq 62
50 15. maí 2004 LAUGARDAGUR
■ LISTSÝNING
Miðasala sími: 662-5000 • www.100hitt.com
A›eins 1
s‡ning
eftir í
Rvk.
Í tónlistarhúsinu †mi, Skógarhlí› 20
me› Helgu Brögu
Næstu s‡ningar:
BANNAÐINNAN
16
Sýningin hefst kl. 20:00
fös. 21. maí. Rvk. Ýmir
SÍÐASTA SÝNING
Landsbyggðin Reykjavík
mið. 19. maí. Selfoss
lau. 29. maí. Blönduós
lau. 12. jún. Flúðir
SÍÐASTA SÝNING Örfá sæti eftir 21.maí
(Engar aukas‡ningar)
STUNDIN ER RUNNIN UPP
Sýning á Kenjunum, frægri koparstunguröð eftir Francisco de Goya, verður opnuð í Lista-
safninu á Akureyri í dag.
Maður getur séð það svolítið áviðbrögðum fólks við þess-
um verkum Goya hvar það er
statt í lífinu,“ segir Javier Blas,
sem er yfirmaður svartlista-
safnsins Calcografia Nacional í
Madríd. Hann er hingað kominn
til að fylgja eftir sýningu á Kenj-
unum, eða Los Caprichos, eftir
spænska listamanninn Francisco
de Goya. Þær verða til sýnis í
Listasafninu á Akureyri fram í
júlímánuð.
„Sumum finnst þessi verk
greinilega óþægileg enn þann
dag í dag, og það sýnir betur en
nokkuð annað að þetta er list
sem á erindi á öllum tímum. Þau
vekja enn hörð viðbrögð.“
Myndröðin Kenjarnar, sem
samanstendur af áttatíu kopar-
stungum frá árinu 1799, er eitt
frægasta listaverk Goya.
Hann gerði þessar myndir í
einangrun á efri árum, bitur út í
samfélagið og hafði algerlega
misst trú sína á mannkynið.
Verkin endurspegla þessa sýn
hans á umheiminn með afar
áhrifaríkum hætti.
Aðeins örfá frumþrykk eru til í
heiminum af þessari þekktu
myndröð. Þau eru vandlega
geymd og sárasjaldan lánuð út,
þótt eftirgerðir þeirra séu víða til.
„Við ákváðum að koma með
frumþrykkin hingað til lands
vegna þess að þetta er í fyrsta
sinn sem við komum hingað og
þegar maður heimsækir ein-
hvern í fyrsta sinn langar mann
til að sýna það besta sem maður
á.“
Auk frumþrykkjanna verða
til sýnis flennistórar andlits-
myndir úr Kenjunum, sem
stækkaðar hafa verið stafrænt
upp í næstum fjóra fermetra og
þrykkt á eðalpappír.
„Þetta eru litlar andlitsmynd-
ir, sem sumar eru ekki stærri en
mannsnögl í verkum Goyas.
Þessar stækkuðu myndir hafa
verið sýndar víða en við höfum
aldrei sýnt þær með frum-
þrykkjunum fyrr en núna. Sjálf-
ur er ég mjög spenntur að sjá
þetta tvennt saman.“
Sýningin verður opnuð í
Listasafninu á Akureyri í dag. Á
sýningunni mun spænski flam-
encodansarinn Minerva Iglesias
stíga á stokk, en klukkan 13
heldur Guðbergur Bergsson
fyrirlestur um Kenjarnar í
Deiglunni. ■
Goya vekur enn
hörð viðbrögð
62-63 (50-51) Slanga 14.5.2004 19:39 Page 2