Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.05.2004, Qupperneq 64

Fréttablaðið - 15.05.2004, Qupperneq 64
F í t o n / S Í A F I 0 0 9 1 3 8 52 15. maí 2004 LAUGARDAGUR Rýmingarsala á Laugaveginum 15.-19. maí 30-50% afsláttur af öllum vörum Bjóðum viðskiptavini velkomna í Drangey - Smáralind Drangey flytur alfarið í Smáralind Opið virka daga 11-19 laugardaga 11-18 og sunnudaga 13-18 Líttu á www.drangey.is NÝTAST VETRARFÖTIN BETUR Í AFGANISTAN? Sjálfboðaliðar Rauða krossins taka við fatnaði á Lækjartorgi í dag milli kl. 10 og 16. Einnig er tekið við fatnaði í fataflokkunarstöð Rauða krossins að Gjótuhrauni 7, Hafnarfirði í dag og á morgun milli 10 og 16. Okkur vantar: • á fullorðna: hlýjar yfirhafnir og flíspeysur. • á börn: hlýjar yfirhafnir, peysur, galla, húfur og vettlinga. Rauði krossinn safnar hlýjum fatnaði um helgina. M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN 0 5 /0 4 Engjateigi 5, sími 581 2141 Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00. Í SUMARFRÍIÐ STUTTBUXUR, KVARTBUXUR, BOLIR OG TOPPAR Listahátíð í dag - litríkur laugardagur ■ LISTAHÁTÍÐ ■ TÓNLIST Á hádegi í dag hefst miðasala átónleika Metallica sem verða haldnir í Egilshöll 4. júlí næst- komandi. Strax í gærmorgun voru komin nokkur tjöld fyrir utan verslun OgVodafone í Síðu- múla og röð farin að myndast. Aðspurður sagði starfsmaður verslunarinnar að rosaleg eftir- spurn væri eftir miðunum og reiknaði hann með að röðin myndi stækka talsvert þegar liði á daginn. 15.000 miðar eru í boði og hefur Egilshöll verið skipt í tvö svæði. Annars vegar svæði A, sem er beint fyrir framan sviðið og tekur 5000 manns, og hins vegar svæði B, sem byrjar u.þ.b. 15–20 metrum frá sviðinu. Þess skal geta að tónleikarnir í Egilshöll verða þeir síðustu hjá Metallica á St Anger tónleika- ferð þeirra. Sögusagnir herma að Metallica ætli að taka sér langt sumarfrí og að meðlimir hljómsveitarinnar ætli að verja hluta af því fríi hér á Íslandi. ■ Harðkjarnarokksenan er bráð-merkilegt fyrirbæri. Þar virðist fólk varla skilja hugtakið „samkeppni“ og þeir sem tileinka sér þennan lífsstíl eru reiðubúnir til þess að rétta öðrum á sömu bylgjulengd hjálparhönd skilyrð- islaust. Sama þó það þýði að bjóða fjórum rokkurum frá öðru landi að gista á stofugólfinu heima hjá sér. Vegna þessa hefur myndast net um allan heim sem gefur harðkjarnasveitum færi á að ferðast á milli landa og spila út um allt, án þess að háar peninga- upphæðir spilli neinu. „Við erum ekki með mann í því að bóka tónleika fyrir okkur, við gerum allt sjálfir,“ segir Paul, trommuleikari Tragedy frá Oregon í Bandaríkjunum, sem spilar ásamt dönsku sveitinni Gorilla Angreb, Hryðjuverk og Forgarði Helvítis á Grand Rokk í kvöld. „Það er í gegnum svona persónuleg samskipti sem við náum að halda tónleika í öllum þessum löndum.“ Tradegy hefur starfað í fjögur ár, gefið út tvær breiðskífur sem selst í tugþúsundum eintaka um allan heim. Svo hefur sveitin ferðast um allan heim á eigin spýtur og skapað sér þannig nafn í neðanjarðarrokksenum nokk- urra landa, þar á meðal í Japan, Bretlandi, Þýskalandi, Austuríki, Póllandi og hér á Íslandi. „Stundum þurfum við bara að setja flugmiðana á kreditkort og fara út í þeirri von um að við náum inn nægum peningum til þess að komast heim aftur. Núna erum við aðeins byrjaðir að þéna á þeim höfundarlaunum sem við fáum fyrir plöturnar. Sveitin sér um sjálfa sig á meðan við erum á tónleikaferðalögum en heima fyrir erum við allir í öðrum. Þetta er gert fyrir lífsstílinn og svona fáum við að kynnast fullt af fólki, kynnast nýjum menn- ingarheimum og ferðast frítt um heiminn. Ég hef örugglega heim- sótt um 30 lönd með hljómsveit- inni sem ég hefði annars aldrei farið til,“ segir Paul að lokum. Hér á landi hafa nokkrar sveitir tengt sig við þetta net. Þar má nefna I Adapt, Forgarðs Helvítis, Andlát og Changer sem fá plötum sínum dreift í fáum eintökum um allan heim. Tragedy leikur í kvöld á Grand Rokk, tónleikarnir hefj- ast klukkan 22. Aldurstakmark er 20 ár og aðgangseyrir 1000 krónur. ■ 11.00 Aðrar víddir, Laugavegsganga arkitekta, grunn- og listaskóla- nema hefst á Stjörnubíósreitnum. 13.00 Fágæti, stuttir tónleikar á 20 mín. fresti í Hljómskálanum. 14.00 Lifandi líkneski, 200 nemendur úr grunnskólum Reykjavíkur bera risavaxið naut í Hljómskála- garðinn. 14.00 Útskriftarsýning nema úr Lista- háskóla Íslands opnar í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. 14.30 Loftfimleikaflokkur Vesturports og Artbox í Austurstræti. 15.00 Gabríela Friðriksdóttir opnar einkasýningu sína, Kaþaris í Galleríi i8. 15.00 Kenjarnar eftir Francisco de Goya opnuð í Listasafninu á Akureyri. 16.00 Trúnaður innsetning og uppá- koma Ragnars Kjartanssonar og Magnúsar Sigurðarsonar í Lista- safni ASÍ. 16.00 Einleikstónleikar með Marc- André Hamelin, píanóleikara frá Kanada, í Háskólabíói. Fyrri tónleikar. 17.00 Karlakór St Basil dómkirkjunnar í Moskvu í Hallgrímskirkju. Fyrri tónleikar. 20.00 Þrettándakvöld Rustaveli-leik- hússins í Þjóðleikhúsinu. Seinni sýning. 23.00 Karlakór St Basil dómkirkjunnar. Ókeypis Harmleik- ur um allan heim Biðröð eftir mið- um á Metallica BIÐRÖÐ Strax í gærmorgun var farin að myndast biðröð vegna miðasölunnar, sem hefst í dag. TRAGEDY Ferðast frítt um heiminn og boða pönkfagnaðarerindið sem víðast. ■ TÓNLIST 64-65 (52-53) Fólk 14.5.2004 19:41 Page 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.