Fréttablaðið - 15.05.2004, Síða 70
58 15. maí 2004 LAUGARDAGUR
■ FÓLK Í FRÉTTUM
Árni Johnsen er á hvínandi siglinguþessa dagana og lyftir grettis-
tökum, í bókstaflegum skilningi á
listasviðinu en í óeiginlegri merkingu
í ferðamálum. Hann hefur nú lokið
vinnu sinni við uppbyggingu ferða-
þjónustu og atvinnumála fyrir Vest-
urbyggð en hefur þegar verið ráðinn
til að endurtaka leikinn í Tálknafirði.
Þá hafa grjótlistaverk Árna vakið
mikla athygli en 384 þúsund manns
sáu sýningu hans í Smáralind. Sýn-
ingunni er nú lokið en hún stóð í sjö
vikur og á þeim tíma var 20% meira
rennsli af fólki í gegnum Smáralind-
ina en á sama tíma í fyrra þannig að
það er ekki nema von að menn spyrji
sig hvort Árni og verk hans hafi
trekkt svona hressilega að og versl-
unarmenn vildu að sjálfsögðu hafa
sýninguna lengur.
Árni hefur þó ekki ráðrúm til að
helga sig listinni eingöngu þar sem
hann ætlar að halda áfram að virkja
krafta sína fyrir ferðaþjónustu úti á
landsbyggðinni.
„Það er gaman að því hversu fólk
hefur haft gaman að sýningunni,“
segir Árni, sem hefur nú flutt verk
sín á Stokkseyri þar sem þau verða
sett upp í tengslum við Lista- og
menningarhátíð í bænum. Aðalhluti
sýningarinnar verður á Bryggjunni
en það er hið margrómaða Hrútavina-
félag, menningarfélagið á Stokkseyri,
sem stendur fyrir sýningunni.
Listaverkin verða sett upp í dag og
sýningin opnar strax í kjölfarið.
Við þetta má bæta að Árni
hefur verið kosinn í stjórn RARIK
á ný þannig að það eru mörg járn
í eldinum hjá þingmanninum
fyrrverandi. ■
Árni í jötunmóð
FRAMKVÆMDAGLEÐI
ÁRNI JOHNSEN
■ hefur lokið starfi sínu við ferða-
þjónustu í Vesturbyggð en hefur nú
þegar verið ráðinn til að endurtaka
leikinn á Tálknafirði.
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Mary Donaldson.
Abu Musab al-Zarqawi.
Á Eskifirði.
1
6 7
8 9
14
16 17
15
18
2 3 4
1311
10
1210
5
Lárétt: 1 forn, 6 beljaka, 7 tveir eins, 8
keyrði, 9 bíltegund, 10 land, 12 málmur,
14 kraftur, 15 komast, 16 tímamælir, 17
skítur, 18 siðar.
Lóðrétt: 1 ruddaleg, 2 umfram, 3 tveir
eins, 4 veginn, 5 biblíunafn, 9 glöð, 11
veiðiaðferð, 13 gefa upp sakir, 14 ávíta, 17
félag, sk.st.
Lausn:
Lárétt: 1gamall, 6rum, 7ee, 8ók, 9kia,
10láð, 12tin, 14þor, 15ná, 16úr, 17tað,
18agar.
Lóðrétt: 1gróf, 2auk, 3mm, 4leiðina, 5
lea, 9kát, 11dorg, 13náða, 14þúa, 17tr.
ÁRNI JOHNSEN
Hefur flutt risavaxin listaverk sín úr Smáralind á Stokkseyri þar sem þau verða höfð
til sýnis á Bryggjunni.
Tónlistarmanninum Rúnari ÞórPéturssyni brá heldur betur í
brún þegar hann sá sjálfan sig tala
um vin sinn og náfrænda Sverri
Stormsker í meintri
heimildarmynd um
þann síðarnefnda í
Sjónvarpinu á sunnu-
daginn. Rúnar hafði
fyrir það fyrsta
gleymt öllu um þátt-
töku sína í myndinni
sem var gerð fyrir
sjö árum síðan og er óhress með að
hvorki kvikmyndargerðarmaðurinn
né RÚV hafi haft samband við sig og
leyft sér að sjá afraksturinn áður en
myndin fór í loftið. Rúnari svíður þó
mest undan því að öll ummæli hans
voru klippt úr samhengi og þannig
lítur út fyrir að hann hafi eitthvað á
móti Sverri frænda sínum. Rúnar
segir að þannig hafi móður Sverris
krossbrugðið við ósköpin og ekkert
skilið í hvað væri hlaupið í Rúnar að
tala svona um góðfrænda sinn. Það
leiðréttist því hér með að Rúnar Þór
og Sverrir eru hinir mestu mátar og
frændur góðir en Rúnar telur ljóst
að tilgangur Jónasar hafi verið í
meira lagi annarlegur þar sem hann
svaraði loðnum spurningum hans af
fullum heiðarleika en var síðan
klipptur úr samhengi.
Steingrímur J. Sigfússon, formaðurVinstri grænna, fór mikinn í
ræðustóli á Alþingi í gær og kallaði
Davíð Oddsson, forsætisráðherra,
„gungu og druslu“ fyrir að spígspora
um ganga þinghússins í stað þess að
sitja í sal og eiga við
sig orðastað um
fjölmiðlafrumvarpið
umdeilda. Þeir sem
hafa fylgst lengi
með pólitíkinni eru á
einu máli um að
annarri eins
sprengju hafi ekki verið varpað úr
ræðupúlti Alþingis síðan Ólafur
Ragnar Grímsson, þá þingmaður,
sagði „skítlegt eðli“ einkenna
Sósuð dýna
Undanfarnar vikur hef ég verið áferðalagi með landsliði Íslands í
eðlisfræði. Ég er ekki mikill eðlis-
fræðingur sjálfur en ég aðstoða þá
við þvott og gef þeim ráðleggingar
varðandi hreinlæti. Ég þarf ekki að
taka fram að þeim gekk hræðilega á
öllum mótum sem þeir tóku þátt í, ég
held að þeir hafi einfaldlega mis-
reiknað sig frá byrjun og þá er erfitt
að halda áfram baráttunni. Þetta
skilaði sér í gríðarlegu þunglyndi.
Ég var því bæði þreyttur og
úttaugaður þegar ég kom heim til
Íslands. Það eina sem ég þráði var
að leggjast upp í sófa, borða popp og
horfa á íslenska bíómynd í sjón-
varpinu eða hlusta á Múm í steríó-
græjunum og gráta úr mér þreytu-
na. En það átti ekki fyrir mér að
liggja.
Ég skildi við konuna mína fyrir
um sjö mánuðum og ég hef ekki
fengið að hitta börnin vegna
æðiskasts sem ég tók óvart fyrir
framan tengdaforeldra mína, ég
viðurkenni þau mistök (er ég ekki
meiri maður fyrir vikið). Mér var
vísað út af heimilinu og hef búið í
lítilli íbúð á Miklubraut síðan.
En þegar ég sneri heim greip ég
í tómt. Á meðan ég var á keppnis-
ferðalagi með eðlisfræðilandsliðinu
hafði vegamálastjóri eða einhver
snillingurinn hjá gatnamálastjóra
rifið húsið með íbúðinni minni,
jafnað það algjörlega við jörðu
þannig að það er ekkert eftir nema
nokkrir myglaðir steypuklumpar og
sósuð dýna. Þetta er dýnan mín. Ég
tók dýnuna mína og nú sef ég undir
stóru veröndinni á Kjarvalsstöðum.
Ég óttast það mest að nú fái ég ekki
einu sinni að starfa fyrir landsliðið í
eðlisfræði lengur. Þeir fyrirlíta þá
sem sofa úti eins og ég.
Greining: myndlíkingar í þessari
grein, líkt í og öðrum greinum eftir
sama höfund, eru á reiki. Þó má
telja víst að eðlisfræðilandsliðið
standi fyrir góða skynsemi,
Miklabraut 16 standi fyrir tón-
listarsmekk þjóðarinnar og dýnan
standi fyrir höfundinn sjálfan. ■
ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON
■ pælir í lífinu og tilverunni.
persónu Davíðs. Frjóir kenninga-
smiðir telja að í fríunarorðum
Steingríms hafi ekki síður falist
skilaboð til Ólafs en Davíðs þar sem
þarna toppaði Skalla-Grímur forse-
tann í kjafthætti og nú sé boltinn hjá
Ólafi sem hafi gullið tækifæri til að
koma stöðunni í 2-1 sér í vil gegn
Steingrími með því að neita að skrifa
undir fjölmiðlafrumvarið verði það
að lögum.
70-71 (58-59) Fólk 14.5.2004 21:35 Page 2