Fréttablaðið - 15.05.2004, Page 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Bakþankar
ANDRA SNÆS MAGNASONAR
Eftir upplestrarferð til Hafn-ar í Hornafirði árið 2002 var
ekið með okkur að Ratsjárstöð-
inni á Stokksnesi. Það var magn-
að að aka eftir eiði og koma að
einhverju sem leit út eins og
rústir af framtíðinni. Hús og
form sem voru eins og útstöð í
geimnum stóðu þarna í niður-
níðslu og dularfullir risaskermar
gnæfðu yfir, magnaðri en nokk-
uð umhverfislistaverk.
VIÐ KLIFRUÐUM upp í eina
kúluna og hljómburðurinn inni í
henni var eins og að upplifa of-
skynjanir. Sumsstaðar var þögn
þótt maður kallaði, sumsstaðar
lenti maður á punkti þar sem
hljóðið magnaðist og sló mann
nánast til jarðar.
ÞETTA VAR áhrifameira en
grísk hof eða rómverskar súlur
vegna þess að staðurinn kallaði
fram miklu sterkari og drama-
tískari tilfinningar; kalda stríðið
með sínar njósnir, kafbátaferðir
og kjarnorkuógn sem maður hélt
að myndi eyða öllu lífi á jörðinni.
EINKENNILEGT AÐ kalda
stríðinu skyldi ljúka án loka-
orrustu, með byltingu innan frá
án þess að við þyrftum að ,,frel-
sa“ neina þjóð með loftárásum,
að núna þyki sjálfsagt að eiga
vini frá Póllandi, Eistlandi, Lett-
landi, Rúmeníu, Rússlandi og
Austur-Þýskalandi. Maður
gleymir því að það var alls ekki
sjálfsagt.
RATSJÁRSTÖÐIN VAR rifin í
fyrra og flest mannvirkin í kring
með ærnum tilkostnaði. Skerm-
arnir felldir með stórvirkum
vinnuvélum, kúlurnar brotnar og
þar með einstæð form í bygging-
arsögu landsins. Menn töluðu um
að ,,færa landið til upprunalegs
horfs“. Á einfaldara máli: Ein-
hver fékk 10 milljónir til að
moka yfir minjarnar í stað þess
að nota peningana og smá hugs-
un í að finna staðnum nýtt hlut-
verk.
ROCKVILLE ER síðasta rat-
sjárstöðin frá tímum kalda
stríðsins sem enn er uppistand-
andi. Menn bíða eftir peningum
til að rífa hana. Það má kannski
benda á að saga er ekki bara
torf og bárujárn. Ratsjárstöðin
er efni í frábært kaldastríðs-
safn, leifar af heimsmynd sem
frýs vonandi aldrei föst í sama
fari og leystist svona: Tveir
menn hittust og töluðu saman.
Eitthvað til að læra af.
Ratsjá
Sumargleði 29/04–17/06
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
24
58
4
04
.2
00
4
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
4
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is
Svalandi sumar
BRYNET skurðarbretti 20x16 sm m/hníf
PLAST glas 50 cl 150,-
VINDPUST servíettur 30 stk. 24x24 sm 150,-
VINDPUST flugnaspaðar 3 stk.
DYNING handklæði 75x150 sm 890,-
KYLA kælitaska/stóll 37x41 sm
PLAST salatskál 590,-
1.990,-
590,-
890,-
75,-
DYNING taska/púði 42x30 sm
72 (60) bak 14.5.2004 20:08 Page 2