Tíminn - 11.02.1973, Blaðsíða 21

Tíminn - 11.02.1973, Blaðsíða 21
20 TÍMINN Sunnudagur 11. febrúar. 1973 Sunnudagur 11. febrúar. 1973 TÍMINN 21 Hafsteinn kynnir ósýnilega konu, sem komin er upp á sviðið til hans. Skynilega er konan kom- in út i kaupstað einhvers staðar á tslandi, og þar stendur hún fyrir framan húsið sitt og horfir á Haf- stein eins og i gegnum auga myndavélar. — Nú koma tvær systur, segir hann. Ég sé götu hér i Reykjavik. Systurnar bjuggu hvor i sinu húsi, segja þær. Með þeim er nokkuð holdugur maöur. Hann er þvoglulegur i máli, en hann segist hafa bakað góð vinarbrauð. Þegar köllin hafa gengið fram og aftur um stund, vitnast nöfn systranna, sem og mannsins sem með þeim er. Hann var bakari, danskur að uppruna, og hann hef- ur bersýnilega verið tengdur þessum systrum á einhvern hátt. Nú eru margar klukkustundir liðnar, og þetta fer aö verða dálit- ið staglsamt. Ég lit á Sigurð ann- að veifið. Hann hefur satt forvitni sina. Hinir framliðnu, sem koma fram að þessu sinni, hafa engin stórtiðindi aö segja. Ollum liður vel, og allir vilja koma kveðjum til fólks sins. Þeir virðast ganga i sams konar fatnaði og þeir not- uðu, áður en þeir dóu. Eða áður en þeir fóru, eins og Hafsteinn kemst að orði. Það leynir sér ekki, að hjón og fjölskyldur halda saman hinum megin. Þetta er furðulegt, hugsa ég með sjálfum mér. Og óhugnan- lega leiðinlegt — verra er það, sem við berum á borð i sænska út- varpinu. — Gangurinn á milli bekkjanna er nú troðfullur af fólki, segir Hafsteinn. Og hér kemur maður með hest. Hestinum liður lika vel. Eftir nærfellt þrjár klukku- stundirerum við Sigurður albúnir að fara. Kona sem situr i sömu bekkjarröð og við, hefur lagt þetta allt undir sig siðasta hálf- timann. Ættingjar hennar komu i hópum til þess aö heilsa upp á hana. Þeir hafa sagt henni, að hún eigi að færa bekkinn heima hjá sér, svo aö rúmist betur, þeg- ar þeir heimsækja hana. Lenónard afa minum hefur ekki skotið upp. EN SVO KEMUR einn kunningi Sigurðar Það er flugmaður. Ekkja hans er meðal samkomu- gestanna. — Þetta er rétt, segir konan hans, sem situr skammt frá okk- ur. KVIKMYNDAHÚSIÐ STÓRA, Austurbæiarbió, er troðfullt. Átta hundruð manns biða þess, að miðill- inn Hafsteinn komi fram á sviðið, og skyggnilýsing- ar hefjist i viðurvist alls þessa mannfjölda. Ég er dálitið órólegur, þvi að þetta er i fyrsta skipti, að ég kem á slika samkomu. Hér sit ég meðal átta hundr- uð íslendinga, sem hingað hafa leitað til þess að fregna af vinum og vandamönnum handan tjaldsins mikla. —■ Nú sé ég marga, kallar Haf- steinn. Það er margir, sem tala til min og vilja heyra frá ykkur. Hér er maður, sem dó fyrir skömmu, heldur Hafsteinn áfram. Hann segist hafa dottið niður stiga i frystihúsi, og höfuðkúpubrotnað. Nonni heitir hann. — Æ, er það Nonni, segir kven- rödd. Það virðist komin mergð látins fólks inn i kvikmyndahúsið — lát- ið fólk úr Reykjavik og hvaðan- æva af Islandi. Hafsteinn hefur mörgu að sinna samtimis. Hann fyllir vatnsglasið á ný. — Hér er gamall maður með hatt. Honum er fjarskalega stirt um gang, og hann dæsir og styn- ur. Sérlega hálsstuttur. Ég held hann heiti Halldór, og ég sé bæ i dal, þar sem jörðin er hlý. — Varmidalur, kallar kona. Jæja — það er þá hann Halldór gamli. Allir hlæja að einhverju, sem ég skil ekki. En Sigurður segir mér, að Halldóri gamla hafi hrotið eitt- hvað skemmtilegt af munni. Það leynir sér ekki, að menn geta gert að gamni sinu, þó að þeir séu dauðir. Þetta minnir mig á þátt i útvarpinu sænska. FÓLKIÐ I SALNUM þráspyr Hafstein. Hvar fæddist þetta fólk, hvert fluttist það? Hvernig bar dauða þess að höndum? Hafsteinn svarar, og svör hans eru rétt — það fær hannstaðfest hjá fólkinu, sem spyr. Og nú er fast sótt að Hafsteini. — Það eru svo mar-gir hinum megin frá, sem kalla á mig, segir hann. Það er á skipað i heimi and- anna, ekki siður en annars staðar. Og enn verður mér hugsað til Lenóards, afa mins. En það eru litlar likur til þess, að hann geti komið sér á framfæri innan um alla þessa tslendinga, þó að hann kynni að hafa tekið upp á þvi að bregða sér hingað. Og þó — afi gamli var nú alltaf þrekmenni. Svo virðist sem Hafsteinn sjái ekki aðeins fólkið að handan. Hann sér lfka fyrir sér sveitir og byggðarlög: Sveitabæina og þorpin inni i botni djúpra og langra fjarða, þar sem þetta fólk átti áður heima. Þetta hlýtur að vera eins og að horfa á tiu eða fimmtán kvikmyndir samtimis. Og allt þetta drekkur sjónhimnan á augum Hafsteins i sig, hvernig sem það nú gerist. Það, sem hér fer fram, er vissulega stórfeng- legt dularspil. Sviþjóð eru allir ærir i bingó, og það er miklu verra. — Já, kannski, segir Sigurður. Nú kemur Hafsteinn fram á sviðið og gengur i stólinn. Ég byrja á þvi að lýsa reynslu minni, segir hann. Hann talar i tuttugu minútur um þaö, sem fyrir hann hefur borið. — Hann er að segja frá þvi, hvernig hann lék sér við álfabörn, þegar hann var litill, segir Sigurður. Innar á bekknum okkar sitja fáeinir unglingar, sem krimta i barm sér. Mér verður andartak hugsað til afa gamla, móöurföður mins, Leónards. Mér kemur það lika i hug.er Hafsteinn miðill sagði við mig fyrir fáum klukkustundum, þegar ég hitti hann óvænt i litla herberginu i háborg Sálar- rannsóknarfélagsins i Garða- stræti: — Það verður of margt fólk til þess, að þessi samkoma verði þér að gagni persónulega. Ég býst við, að Hafsteinn hafi meint, að það yröi of margt fólk saman komið i kvikmyndahúsinu til þess, að ég gæti gert mér vonir um, að ættingjum minum i dánar- heimum skyti þar upp — og mikil þröng þeim megin til þess, að þeir kæmust að. Sem sagt: Salurinn troðfullur af lifandi fólki — og all- ir þeir, sem ósýnilegir eru. — Það gerist venjulega tals- vert margt, sagði Hafsteinn. Viö skröfuðum saman, við Haf- steinn, i litla herberginu, þar sem hann starfar að jafnaði, þegar hann er ekki i Ameriku eða ein- hvers staðar úti á landi með þessa fjölsóttu skyggnifundi sina. Það er þröngt i herberginu hans. Þar er litið borð með Kristsstyttu, og nokkrir stólar, sem mynda hálfhring um stól Hafsteins sjálfs. Yfir honum hangir lampi með rauðri hlif og lýsir beint niður á Hafstein. Hafsteinn talar ekki önnur tungumál en islenzku. Starfsmað- ur hjá Sálarrannsóknarfélaginu var túlkur okkar. Hann sagöi: — Þaöerleiðinlegt,að þú skul- ir ekki geta verið lengur og kom- izt á einkafund hjá Hafsteini. Þú færir héðan út annar maður. Hafsteinn benti fram i gang og andvarpaði. Þar var hópur fólks, sem lengi hafði beðið þess að ná tali af honum. Fólk af öllum horn- um landsins kemur i þetta litla herbergi Hafsteins til þess að sjá hliöin opnast og landið hulda ljúk- ast upp. — Það er mitt starf, sagöi Haf- steinn — að sýna, að til er lif eftir þetta og koma fólki i samband við þá, sem horfnir eru héðan. Hann er vingjarnlegur i við- móti, en samt dálitið mæðulegur á svip, og dökk og gerhugul aug- un hvildu á mér á meðan hann al- aði við mig. — Vertu velkominn i kvöld sagði hann. ÉG LITAST UM i salnum. Þarna eru margar manngerðir, fólk á öllum aldri, eftirvæntingarfullt fólk, hljótt fólk og djúpt sokkið i hugsanir sinar. Liklega eru konur talsvert fleiri en karlar. Þetta er svipað og á uppboði heima, hugsa ég. Allt getur gerzt. Margir finna kannski það, sem þeir leita að. Aðrir l'ara heim tómhentir, vonsviknir. Ég hef Sigurð með mér, þvi að hann á að vera túlkur minn. Ég útvegaði aðgöngumiða handa honum. Hann er tslendingur, en hefur aldrei fyrr komið á fund hjá Hafsteini. Hann er rithöfundur, og honum er um og ó, að tslend- ingarskuli hneigjast svona mikið að andatrú. — Hvers vegna? spyr ég. t SVO HEFJAST skyggnilýsing- arnar. Hafsteinn setzt við litiö borð, rétt hjá ræðustólnum, hellir vatni úr glerkönnu i glas, lýtur höfði og styður höndum á enni sér. Nú er dauðaþögn i salnum. Að- eins stöku maður hóstar. Ég heyri, að gömul kona, sem situr fyrir aftan mig, dregur andann þungt. Ljósið er slökkt, nema lit- ill ljóskastari i salnum varpar birtu á Hafstein miðil. Allt er hljótt i fimm minútur. Þetta er i senn ákaflega hátiðlegt, en þó dálitið spaugilegt. Ég þori ekki að lita á Sigurð. Allt i einu lætur Hafsteinn hendurnar siga og starir fram i salinn. — Ég sé konu, sem gengur hér inn á milli bekkjanna, kallar hann. Hún segist heita Helga. Tveir ungir menn eru með henni. — Hvaðan kemur hún? hrópar kona frammi i salnum. — Ég skal spyrja hana, svarar Hafsteinn. Og svo nefnir Hafsteinn kaup- stað á Norðurlandi. Nú kalla fleiri. Hvers dóttir er hún? Hvað heita synir hennar? Hafsteinn svarar. Og framan úr salnum er kallað, að þetta sé rétt. — Hvernig liður þeim? hrópar einhver. Er ekkert, sem hún vill segja okkur? — Hún segir, að þeim liði öllum vel, og henni finnst gaman aö koma hingað og hitta ykkur, svarar Hafsteinn. Hann lýsir klæðaburði konunn- ar ósýnilegu — islenzka þjóðbúningnum — og það er stað- fest framan úr salnum, að lýsing hans sé rétt. Þetta fólk er rétt hjá mér. Það dylst ekki, aö margir hafa þekkt þessa norðlenzku konu. Og nú fara mikil köll að ganga á milli samkomugestanna og Haf- steins. Ég held að það sé leiðinlegt, að vera miðill og flytja alltaf svipuð boð ár eftir ár. — Það var kannski eins gott, að þú fékkst ekki að tala við hann afa þinn, segir Sigurður. .1.11. þyddi. barn liggja undir borði og þenja út lérefsgrisjur. Það var skugg- sýnt i herberginu, en hvitt léreftið sást. Andarnir, sem fólk sá hjá henni, voru þessar léreftsgrisjur. — En menn fyrirgáfu henni. Og hún varð enn frægari en áður. Ekkjan talar við flugmanninn, sem Sigurður þekkti. — Allar lýsingar eru nákvæm- lega réttar, staðfestir Siguröur. Eftir þrjár klukkustundir er Hafsteinn oröinn örmagna. Kvik- myndahúsið er troðfullt — átta hundruð borguðu aögöngumiöa — og svo eru allir hinir, sem ekki sjást. Áreiðanlega mörg þúsund. Þeir fylla hvern kima og sitja á armstuðlum stólanna okkar. Og þó nokkrir virðast vera þarna með hestana sina. — Nú þrýtur mig mátt, segir Hafsteinn. Við þökkum öllum hin- um megin frá, sem komiö hafa hingað til þess að tala við okkur. Æm staðin var að prettum fyrir þrjátiu árum. Hún hafði orðið þess áskynja, að fólki nægðu ekki kveðjurnar að handan. Hún freistaöist til þess aö reyna að láta fólki meira i té — eitthvað stórfenglegra. Þess vegna lét hún Þeir voru margir. Hafsteinn drekkur það, sem eftir var i vatnskönnunni. Þetta hefur verið honum erfitt kvöld. En hann ber lika sitt úr býtum, þvi að mörg þúsund krónur verða afgangs, þegar húsaleigan hefur verið borguð. Þetta er síðasta greínin af þremur, sem sænski blaðamaðurinn Lars Westman skrifaði í tímaritið Vi um íslandsför sína í haust. Hér segir fré skyggnilýsingu hjó Hafsteini miðli í Austurbæjarbíói. Örstuttir kaflar eru felldir úr greininni. með Hafsteini miðl í Austurbæjarbíói VIÐ SIGURÐUR göngum út. Það er snjókoma. Við erum báðir dálitið vonsviknir. Það var gam- an, að allt þetta dána fólk skyldi koma til móts við okkur. En við erum litlu nær um lifið hinum megin. Sigurður talar um fjarskyldan ættingja, kunnan miðil — konu, íáii 1 ; l|j|í Jj ía j| a J 4 v 1 l'f 1. í 31 kí p | -\a ý jil j| m 3 | ; :| i<L'|Íli{ í é l <;|v h 1 Ms | Si| 1 |j| M m HIIÍl » í I ? m'-t-'l' I ii .1 4lfi Færeyskar rifja upp sumardaga á íslandi ,,VIÐ lögum af stað um miðnætti 22. júni og komum klukkan hálf fimm á flugvöltinn i Reykjavík, þar sem allar þessar elskulegu konur tóku á móti okkur með húrrahrópum, blómuin og ræðum. Já, það voru glæsilegar móttökur, sem við fengum. Ég held. að aldrei hafi nokkru kven- félagi verið eins vel fagnað, svo hjartanlegt var þetta allt, og □ □ □ Tvær vinkonur: Islenzk- ur búningur og færeysk- ur. — Timamynd: Ró- bert. svona var andrúmsloftið alla þá daga, sem við vorum á tslandi”. Þannig hefst ferðasaga fær- eysku kvennanna úr Þórshöfn, sem hingað komu i sumar i boöi kvenfélags Bústaðasafnaðar. Ferðasagan birtist um þessar mundir i færeyska blaðinu ,,17. september”. Við getum þessa hér vegna þess, að vafalaust hefðu ýmsir Reykvikingar gaman af að lesa þessa ferðasögu, og auk þess væri hentug æfing fyrir ís- lendinga, sem verið hafa skamm- arlega tregir til þess að lesa fær- eysku, sem öllum sæmilega gefn- um mönnum er þó auðskilin á prenti. Það er alls ekki ætlun að rekja hér ferðasögu kvennanna fær- eysku — fólk getur bara skrifað afgreiðslu 17. septembers og sent greiðslu fyrir 20. tölublaði og þeim, sem á eftir fara. En ekki sakar, þótt þess sé getið, að þarna eru að ýmsu vikið, allt frá glitr- andi peningunum i tæru vatni gjárinnar frægu á Þingvöllum og litlu kirkjunni, þar sem konungur svaf af nóttina fyrir hundrað árum til mjólkurbús Flóamanna, sem gestunum þótti stórt i sniðum, og kirkjuorgels i Selfoss- kirkju, sem þær Mia og Turid Waagstein sannreyndu, að var ósvikinn dýrgripur. Það kom þeim kunnuglega fyrir sjónir, að mjólkurbilarnir á Suðurlandi fluttu einnig póst og böggla og stundum ferðafólk — ,,á sama hátt sum Tróndur hjá maiarin- um” i Færeyjum. t byggðasafn- inu á Selfossi varð konunum lika minnisstætt sjal, sem kona hafði gert úr hári, sem hún hafði safnað árum saman, spunnið og prjónað. Þannig er hvert atvikið rifjað upp af öðru, sagt frá islenzku fólki og islenzkum háttum, og svo auð- vitað frá Þórshafnarkonunum sjálfum, er áttu þessa sumardaga á Islandi. — J.H. □ □ □ Þórshafnarkonurnar i Reykjavik siðasta sum- ar. — Timamynd: Ró- bert. j f I IJ | 1 | jn : I í ] ^ 4 - 1 u j mmíip*i 'íj wnSal L3 'imÉ ff I Br If g r

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.